
Árborg

Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi
Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á meintu mútubroti þar sem einn eigenda Sigtúns þróunarfélags var sakaður um að hafa boðið kjörnum bæjarfulltrúa í Árborg fjárhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann myndi stuðla að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi árið 2020.

Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi
Nýrri brú yfir Ölfusá, norðan við Selfoss, er ætlað að létta af umferð gegnum bæinn. En það er til önnur leið yfir Ölfusá til að komast framhjá. Hún liggur um Þrengslin og Eyrarbakkaveg.

Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug
Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni vísar gagnrýni fyrrverandi Samgönguráðherra á fyrirhugaða Ölfusársbrú á bug, og segir Vegagerðina í stellingum til að hefja verkið. Boltinn sé nú hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar.

Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi samgönguráðherra, segir nýja Ölfusárbrú allt of dýra í þeirri mynd sem hún er áformuð og fullyrðir að hægt sé að smíða einfaldari brú á mun skemmri tíma fyrir þriðjung af kostnaðinum.

Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag
Boðað hefur verið til fundar meirihluta fjárlaganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis með fulltrúum fjármálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins um stöðu nýrrar Ölfusárbrúar í dag.

Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg
Bæjarstjóri Árborgar óttast ekki flótta úr sveitarfélaginu eftir að samþykkt var að hækka útsvar á íbúa tímabundið, sem mun skila sveitarfélaginu um einum milljarði króna í tekjur. Eftir að meirihluti Sjálfstæðismanna tók við völdum í Árborg 2022 hefur stöðugildum hjá sveitarfélaginu verið fækkað um eitt hundrað, sem hluti af aðhaldsaðgerðum bæjaryfirvalda.

Af hverju þetta tímabundna álag á útsvarið?
Umræða um fjárhagsstöðu Sveitarfélagsins Árborgar hefur verið áberandi á kjörtímabilinu og aukist mjög - síðustu daga. Álagið sem hefur þurft að setja á útsvar íbúa Árborgar hefur verið kynnt og eðlilega er enginn ánægður með slíkan auka reikning.

Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi
Um hundrað og tíu erlendir starfsmenn komu sérstaklega til landsins til að vinna í sláturtíðinni hjá SS á Selfossi, margir vanir slátrar og fólk, sem hefur komið oft áður til að vinna í sláturtíðinni. Um hundrað þúsund fjár verður slátrað nú í haust í sláturhúsinu.

Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð
Smíði nýrrar Ölfusárbrúar er í uppnámi vegna skilyrðis um að gjaldtaka fyrir akstur yfir brúna standi undir kostnaði. Sérfræðingar ríkisábyrgðarsjóðs efast um að dæmið gangi upp. Fjármálaráðherra og innviðaráðherra leita leiða til að koma verkefninu í gang.

Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára
Sveitarfélagið Árborg vekur athygli íbúa sinna á því að álag var sett á útsvar í upphafi þessa árs. Íbúar eru hvattir til að hafa þetta í huga þegar þeir skipuleggja fjármál sín næsta árið. Ítrekað er að útsvarsaukningin er „aðeins hugsuð til að hámarki tveggja ára“.

Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg
Maðurinn sem lést í vinnuslysi er hann féll af fjölbýlishúsi í byggingu í Árborg á þriðjudag hét Eiríkur Rúnar Eiríksson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.

Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá
Þeir sem bera hag Norður-Atlantshafslaxins fyrir brjósti biðla nú til þeirra sem enn stunda netaveiði í Ölfusá að hlífa því sem eftir lifir stofns í stærsta ferskvatnakerfi í Evrópu. Þeir segja þetta ljótan blett á orðspori Íslands og laxinn sé í útrýmingarhættu. Sveitin er klofin. Jörundur Gauksson lögmaður, formaður í Veiðifélagi Árnessýslu, stendur hins vegar fastur fyrir og á sínu.

Banaslys á byggingarsvæði í Árborg
Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg fyrr í dag. Karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu.

Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins opnuð á Selfossi
Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins hefur verið opnuð á Selfossi en þar geta tuttugu og sex bílar af öllum stærðum og gerðum hlaðið í einu allan sólarhringinn. Það er hópferðafyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar, sem á heiðurinn af hleðslustöðinni með samstarfsaðilum sínum.

Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn
Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því.

Rannsóknarleit Selfossveitna heldur áfram að skila árangri
Sveitarfélagið Árborg er ört stækkandi samfélag sem hefur tekist á við talsverðar áskoranir á undanförnum árum. Selfossveitur sjá sveitarfélaginu fyrir heitu vatni og hafa svo sannarlega fundið fyrir vextinum.

Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar
Sundlaugasvæði Sundahallar Selfoss verður lokað næstu daga vegna alvarlegrar bilunar í klórframleiðslukerfi. Unnið er að viðgerð.

Nýtt fimleikahús óskast á Selfossi
Yfirþjálfari fimleikadeildarinnar á Selfossi skorar á bæjaryfirvöld í Árborg að byggja nýtt fimleikahús þar sem núverandi hús sé orðið allt of lítið og lélegt fyrir deildina. Níu stelpur úr fimleikunum er á leiðinni til Azerbaijan til að taka þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum.

Stefnan er skýr - höldum ótrauð áfram
Í stóru samfélagi er að mörgu að hyggja. Það veldur óneitanlega áhyggjum þegar fréttir af auknum vopnaburði og ofbeldi barna koma í fjölmiðlum. Við þurfum öll að bregðast við með yfirveguðum hætti með það að markmiði að gera samfélagið okkar öruggara.

Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi
Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu.

Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu
Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum.

Fyrsti Hjallastefnuleikskólinn á Selfossi
Mikil ánægja er á Selfossi með nýjan leikskóla en það er Hjallastefnuleikskóli, sá fyrsti í bæjarfélaginu. Hefðbundin leiktæki, sem voru á lóðinni hafa öll verið fjarlægð en í staðinn hefur lóðinni verið breytt í opinn efnivið og náttúrulegt umhverfi barna eins og tíðkast í Hjallastefnuleikskólum.

Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum
Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár.

Altjón á vélaskemmu í bruna við Stokkseyri
Vélaskemma á jörðinni Hoftúni II rétt norðan við Stokkseyri varð eldi að bráð nú síðdegis. Enn er unnið að því að slökkva í glæðum en slökkviliðsstjóri segir töluvert af búnaði hafi brunnið inni, þar á meðal ferðaþjónustubifreið sem verið var að gera við.

Ólympíufara fagnað á Selfossi
Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig
Berglind Fríða Viggósdóttir missti tvo elstu syni sína með sex ára millibili. Þann 5. maí árið 2018 var Viggó Emil bráðkvaddur á Spáni. Ingvi Hrafn féll fyrir eigin hendi í klefa sínum á Litla Hrauni, á dánardegi bróður síns þann 5. maí síðastliðinn. Bræðurnir áttu það sameiginlegt að hafa árum saman barist við eiturlyfjafíkn og voru þeir báðir í afplánun á einhverjum tímapunkti í lífi sínu.

Neitaði að borga heita vatnið og slapp með skrekkinn
Kona í Árborg komst upp með að borga ekki heitavatnsreikninga frá Selfossveitum vegna þess að vatnið var ekki nógu heitt. Reikningar konunnar vegna húshitunar voru meira en tvöfalt hærri en í sambærilegum fasteignum í sveitarfélaginu, af því vatnið var gallað og inntakshiti þess ekki nógu mikill.

Margverðlaunaður garður með sólskini allan daginn
Hjónin Agnes Ósk Snorradóttir og Björgvin Guðmundsson hafa nostrað við verðlaunagarð í kringum húsið sitt á Selfossi undanfarin ár. Þau hafa skipulagt hann þannig að hægt er að njóta sólar í garðinum allan daginn frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld en Vala Matt kíkti í heimsókn í Íslandi í dag.

Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna
Rawad Nouman vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar nágranni hans á Selfossi hafði uppi hótanir við hann og litla bróður hans, og makaði svo tómatsósu á hurðina að íbúð þeirra. Rawad segist ekkert hafa á móti manninum en vill vera látinn í friði.

Aspir fjarlægðar á Selfossi vegna umferðaröryggis
Nú er búið að saga niður flestar aspirnar við þjóðveg númer eitt þegar ekið er í gegnum Selfoss en í staðin á að gróðursetja nýja tegund trjáa við veginn og setja upp öryggisgirðingu.