Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Smári Jökull Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 12:00 Árásin var mjög fólskuleg að sögn lögreglunnar. Vísir/Vilhelm Lögreglan segir að líkamsárás sem átti sér stað í Garðabæ á föstudagskvöldið hafi verið mjög fólskuleg og telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðarásinni. Þrír eru grunaðir í málinu en árásarmennirnir eru 16 og 17 ára.
Lögreglu barst tilkynning um hálf tólf leytið á föstudagskvöld um líkamsárás á Hafnarfjarðarvegi til móts við Ásgarð í Garðabæ. Þolandinn, Daníel Örn Sigurðsson, var að bíða eftir strætó og á leið heim til sín eftir að hafa horft á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur á Evrópumótinu í handbolta ásamt vini sínum. „Ég valt bara á hliðina þegar ég reyni að standa upp. Þegar ég dett á hliðina þá fæ ég annað högg í höfuðið. Þeir halda áfram að sparka í höfuðið á mér,“ sagði Daníel í viðtali í Bítinu í morgun. Að sögn Skúla Jónssonar, stöðvarstjóra lögreglunnar í Hafnarfirði, er lögreglan komin með ágæta mynd af atburðarásinni. „Við fengum tilkynningar inn frá fleiri vegfarendum sem voru að láta vita af þessu og meðal annars bárust okkur myndir og myndbönd frá vegfarendum sem eru teknar úr bíl sem sýna bara hvernig þeir ráðast á þennan mann,“ sagði Skúli í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Þetta er bara mjög fólskulegt“ Þrír eru grunaðir í málinu, 16 og 17 ára og því undir lögaldri en sakhæfir. „Lögreglan náði nú þarna einhverjum á staðnum sem eru nefndir til sögunnar í þessu máli sem málsaðilar. Svo var einn handtekinn daginn eftir.“ Áverkar Daníels eru töluverðir en hann handarbrotnaði, tennur í honum brotnuðu auk þess sem hann hlaut skurð á höfði. „Maður náttúrulega skilur ekkert hvað fólki gengur bara. Einn af hinum handteknu, hann endaði nú í neyðarvistun á Stuðlum og þetta er bara mjög fólskulegt,“ sagði Skúli að lokum. Veistu meira um málið? Áttu myndefni frá vettvangi? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Lögreglumál Garðabær Ofbeldi barna Tengdar fréttir Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson hélt að hann myndi aldrei fá að sjá dætur sínar aftur er hann lá máttvana undir kjaftshöggum og spörkum ungmenna í Garðabæ á föstudagskvöld, sem virðast hafa ráðist tilefnislaust á hann. Daníel rankaði marinn við sér á bráðamóttöku með brotinn handlegg, glóðarauga og skurð fyrir ofan annað augað. 1. febrúar 2026 11:34 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira
Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson hélt að hann myndi aldrei fá að sjá dætur sínar aftur er hann lá máttvana undir kjaftshöggum og spörkum ungmenna í Garðabæ á föstudagskvöld, sem virðast hafa ráðist tilefnislaust á hann. Daníel rankaði marinn við sér á bráðamóttöku með brotinn handlegg, glóðarauga og skurð fyrir ofan annað augað. 1. febrúar 2026 11:34