Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. júní 2025 11:03 Baldvin Karel fylgist með Björgvini Guðmundssyni sýna ljósmyndara tvo nýveidda laxa. Bjarnfinnur Þorkelsson og Guðmundur Sævarsson sýsla í bakgrunni. Magnús Karel Halldórsson Um helgina eru síðustu forvöð að sjá ljósmyndasýninguna „Veiðidagur í Óseyrarnesi 1993“ í Gömlu kartöflugeymslunni við Búðarstíg á Eyrarbakka.
Á sýningunni eru myndir sem Eyrbekkingurinn Magnús Karel Hannesson tók af laxveiði í net fyrir landi Óseyrarness einn sumardag árið 1993. Guðmundur Sævarsson og aðstoðarmaður hans, Bjarnfinnur Þorkelsson, leysa landfestar.Magnús Karel Hannesson Jörðin, sem hét áður Nes eða Ferjunes, liggur að Ölfusá neðanverðri og komst í eigu Eyrarbakkahrepps árið 1906. Sagt er að bærinn hafi verið fluttur fimm sinnum til austurs undan ágangi árinnar og landbroti sem enn stendur. Óseyrarnesi fylgdu mikil hlunnindi af lax- og silungsveiði í Ölfusá. Eftir að hreppurinn eignaðist jörðina var veiðirétturinn leigður út og stunduðu ýmsir veiðina sem leigutakar – einna lengst Magnús Magnússon í Laufási á Eyrarbakka. Netin lögð út.Magnús Karel Hannesson Öllum hnútum kunnugur Síðust leigutakarnir voru Bjarnfinnur Ragnar Jónsson og Guðmundur Sæmundsson frá 1984 til 1996 en þá var veiðunum hætt vegna minnkandi veiði og lækkandi fiskverðs. Síðustu árin annaðist Guðmundur veiðarnar með hjálp yngri aðstoðarmanna. Guðmundur var öllum hnútum kunnugur, þekkti aðstæður og vissi hvernig standa ætti að framkvæmdinni – enda hafði hann starfað hjá Magnúsi í Laufási áður fyrr. Drengirnir leika sér í sandinum meðan fullorðna fólkið horfir út á sjó.Magnús Karel Hannesson Ljósmyndirnar voru teknar á góðum sumardegi árið 1993 og endurspegla það verklag sem beita þurfti við veiðarnar og þann andblæ og eftirvæntingu sem ríkti á veiðistaðnum. Þær sýna hlunnindanýtingu sem nú er aflögð og verður væntanlega ekki tekin upp aftur í Óseyrarnesi. Ljósmyndirnar hafa verið falinn fjársjóður sem nú er dreginn fram í dagsljósið og gerður almenningi sjáanlegur. Sýningin var opnuð á Jónsmessu síðustu helgi í Gömlu kartöflugeymslunni sem Björgvin Guðmundsson, einn veiðimannanna, rekur ásamt konu sinni, Agnesi Ósk Snorradóttur. Um helgina verður sýningin opin frá 13 til 15 laugardaginn 28. júní og frá 13 til 16 sunnudaginn 29. júní. Laxinn dreginn á land.Magnús Karel Hannesson
Ljósmyndun Árborg Sjávarútvegur Lax Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Fleiri fréttir Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur Stórstjörnur úr dansheiminum í Tjarnarbíói Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Dularfull glæpasaga fær bókafólk til að klóra sér í kolli Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður með flest verðlaun á Grímunni Frægasti ástarþríhyrningur sögunnar fær nýtt líf Ljóð Lomma reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar Eva Fretheim hlaut Glerlykilinn Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“