
Indland

Fjórir sýknaðir vegna lestarárásar í Indlandi árið 2007
Dómstóll í ríkinu Himachal Pradesh í Indlandi hefur sýknað fjóra menn af ákæru um að hafa komið fyrir sprengjum í lest á ferð milli Indlands og Pakistans árið 2007.

Indverskur tæknifrömuður gefur 878 milljarða til góðgerðamála
Næst ríkasti maður Indlands, milljarðamæringurinn Azim Premji , sem gegnir stöðu stjórnarformanns tæknifyrirtækisins Wipro hefur ákveðið að gefa hlutabréf að andvirði 530 milljarða rúpía sem jafngildir um 878 milljarða króna til góðgerðamála

Ólafur Ragnar prúðbúinn í indversku stjörnubrúðkaupi ásamt Blair og Ban
Fyrrverandi forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, er nú staddur ásamt eiginkonu sinni, Dorrit Moussaieff í brúðkaupi milljarðaerfingja í Indlandi. Þar hitti Ólafur gamla kunningja og lét taka af sér mynd.

Í klandri vegna átaka í Kasmír
Stjórnarandstaðan á Indlandi hefur undanfarna daga gagnrýnt Narendra Modi forsætisráðherra og ríkisstjórn BJP-flokksins, harðlega fyrir að beita indverska hernum í pólitískum tilgangi.

Sagðir brjóta samkomulag
Talsmaður bandaríska sendiráðsins í Islamabad, höfuðborg Pakistan, staðfesti í samtali við fréttastofu Reuters að verið væri að skoða ásakanir þess efnis.

Bandaríkin krefja Pakistan um svör vegna herflugvélar
Bandaríkin leita nú upplýsinga um hvers konar herflugvél var notuð af Pakistan til að granda indverskri herflugvél.

Áratugalöng átök um Kasmírsvæðið
Indverjar og Pakistanar hafa tekist á í Kasmír undanfarna viku. Forsætisráðherra Pakistans leysti Indverja úr haldi í gær. Átök um Kasmír eiga sér langa sögu, stríð hefur brotist út áður. Heimsbyggðin stendur á öndinni enda búa ríkin yfir kjarnorkuvopnum.

Flugmaðurinn kominn að landamærum Indlands
Yfirvöld Pakistan ætla að sleppa indverskum flugmanni úr haldi og hafa flutt hann til landamæra Indlands.

Khan reynir að stilla til friðar
Pakistanar leysa fangelsaðan indverskan herflugmann úr haldi. Indverjar taka vel í ákvörðunina. Herforingjar beggja ríkja kveðast þó enn í viðbragðsstöðu enda er togstreitan á milli ríkjanna mikil.

Tilbúnir að sleppa flugmanninum dragi það úr spennu
Indverjar hafa krafist þess að flugmanninum verði sleppt úr haldi og ríkisstjórn Imran Khan, forsætisráðherra Pakistan, lýsti því yfir í morgun að það kæmi til greina, ef það myndi draga úr spennu á milli kjarnorkuveldanna tveggja.

Herþotum grandað
Pakistanar segjast hafa skotið niður tvær indverskar herflugvélar. Indverjar segja flugvélina hafa verið eina. Áratugalöng deila ríkjanna hefur stigmagnast og valdamestu ríki heims hvetja til stillingar og viðræðna þeirra á milli.

Pakistanar kalla eftir viðræðum
„Sagan segir okkur að stríð sé full af misreikningum. Mín spurning er þessi: Miðað við þau vopn sem við eigum, höfum við efni á því að misreikna okkur? Við ættum að setjast niður og tala saman.“

Skutu niður tvær indverskar herþotur
Pakistanar fullyrða að þeir hafi í morgun skotið niður tvær indverskar herþotur í lofthelgi sinni í Kashmírhéraði í morgun.

Dökkar horfur vegna Kasmírárásar
Indverjar segjast hafa ráðist á þjálfunarbúðir hryðjuverkasamtakanna JeM í Pakistan og fellt 350 eftir árás JeM í Pulwama. Pakistanar segja það tilbúning og hyggjast svara árásinni.

Pakistanar heita því að bregðast við árásum Indverja
Indverjar hafa gert loftárásir gegn hryðjuverkasamtökum sem lýst hefur yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás þar sem 40 indverskir hermenn féllu fyrr í þessum mánuði.

Indverjar taldir hafa gert loftárás í Pakistan
Indverski flugherinn gerði í nótt loftárásir á bækistöðvar vígamanna.

Þjóðarsportið í hættu vegna Kasmírdeilu
Indverjar vilja ekki spila við Pakistana á HM í krikket. Vilja raunar ekki sjá þá taka þátt vegna meints skeytingarleysis Pakistana í garð hryðjuverkastarfsemi. Indverjar ætla einnig að skera á rennsli vatns til Pakistans.

Skemmdarvargar þurftu sjálfir að laga það sem þeir skemmdu
Þrír menn sem sáust á myndbandi ýta við súlu með þeim afleiðingum að hún féll við og brotnaði þurftu sjálfir að lagfæra skemmdirnar, ásamt þeim sem tók myndbandið upp.

Fjórir indverskir hermenn féllu í skotbardaga
Fjórir indverskir hermenn féllu í Kasmír-héraði í morgun eftir að til skotbardaga kom á milli indverskra hermanna og vígamanna.

Hraðskreiðasta lest Indlands bilaði í jómfrúarferðinni
Ný hraðlest, sem sögð er vera sú hraðskreiðasta í Indlandi, bilaði í jómfrúarferð sinni í dag

Indverjar hótar að einangra Pakistan vegna sjálfsmorðsárásar
Hátt í fimmtíu hermenn féllu í sjálfsmorðssprengjuárás samtaka íslamista sem Indverjar saka Pakistana um að hafa leyft að leika lausum hala.

Modi fordæmir árás í Kasmír
Að minnsta kosti 34 herþjálfaðir Indverjar fórust þegar skæruliðar í Kasmír-héraði gerðu sprengjuárás á bílalest þeirra í gær.

Á fjórða tug hermanna féll í sjálfsmorðsárás í Kasmír
Árásin er sú mannskæðasta í Kasmír í áraraðir. Samtök pakistanskra íslamista hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu.

Sautján látnir eftir eldsvoða á hóteli í Delí
Fólki reyndi að bjarga lífi sínu með því að stökkva út um glugga fimm hæða byggingarinnar, þar á meðal kona og barn sem eru sögð hafa farist.

Tugir létust eftir að hafa drukkið heimabrugg
Tugir eru látnir í Norður-Indlandi eftir að hafa drukkið heimabrugg sem innihélt mikið magn metanóls.

Spá því að þriðjungur ísbreiðu Himalajafjalla muni bráðna
Ítarleg rannsókn yfir 200 vísindamanna sem staðið hefur yfir í fimm ár á áhrifum loftslagsbreytinga á svokallað Hindu Kush-Himalaja-svæði (HKH) leiðir í ljós að þriðjungur af ísbreiðu Himalajafjalla mun bráðna vegna hnattrænnar hlýnunar á næstu 80 árum.

Upplýsingar úr bönkum fyrir allra augum
Upplýsingar frá milljónum viðskiptavina Ríkisbanka Indlands voru aðgengilegar öllum sem vildu.

Ausa mjólk yfir stjörnurnar
Mjólkursalar í Tamil Nadu á Indlandi eru foxillir og hafa ítrekað kvartað til lögreglu yfir því að mjólkurþjófnaður hefur stóraukist í aðdraganda frumsýninga á kvikmyndum í ríkinu.

Kvarta yfir þyrlueinokun á Indlandi
Flokksmenn Congress, stærsta stjórnarandstöðuflokks Indlands, sögðust í gær eiga í vandræðum með að finna þyrlur til að ferja leiðtoga flokksins á milli staða í aðdraganda þingkosninga sem fara fram í vor.

Fóru inn í hof þar sem konum hefur verið meinaður aðgangur öldum saman
Tvær indverskar konur skráðu nöfn sín í sögubækurnar í dag þegar þær urðu fyrstu konurnar til þess að fara inn í hof hindúa í ríkinu Kerala í suðurhluta Indlands, en öldum saman hefur konum á aldrinum tíu til fimmtíu ára verið meinaður aðgangur að hofinu.