
El Salvador

Ólíkar meiningar um valdsvið Trump og dómstóla
Áhyggjur manna af árekstrum milli Donald Trump Bandaríkjaforseta og dómstóla virðast vera að raungerast en Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Trump, sagði í yfirlýsingu í gær að dómstólar hefðu ekki vald til að skipta sér af aðgerðum forsetans í utanríkismálum.

Bannaði Trump að nota lög frá átjándu öld
Bandarískur alríkisdómari meinaði í gærkvöldi Donald Trump, forseta, að nota lög frá lokum átjándu aldar til að gera auðveldara að flytja farand- og flóttafólk úr landi. Skipaði hann ríkisstjórn Trumps að snúa við flugvélum með fólki sem verið var að flytja úr landi.

Trump fetar í fótspor Breivik
„Sá sem bjargar landi sínu brýtur engin lög,“ sagði Donald Trump á samfélagsmiðlum síðustu helgi. Frasinn er gjarnan eignaður Napóleon Bónaparte og hefur verið notaður af ýmsum mönnum, þar á meðal forseta El Salvador og Anders Behring Breivik.

El Salvador býðst til að taka við hættulegum glæpamönnum
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir stjórnvöld í El Salvador hafa boðist til að taka við „hættulegum“ glæpamönnum frá Bandaríkjunum, bæði ólöglegum innflytjendum og bandarískum ríkisborgurum.

Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS
Stjórnvöld í El Salvador segjast ætla að halda áfram að stækka varaforða sinna af rafmyntinni bitcoin og jafnvel spýta í þrátt fyrir lánasamning sem þau gerðu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Samningurinn fól í sér að þau ættu að draga úr áhættuskuldbindingum vegna bitcoin.

Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS
Stjórnvöld í El Salvador hafa fallist á að vinda ofan að umdeildri rafmyntarvæðingu landsins gegn því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti því 1,4 milljarða dollara lán. El Salvador varð fyrsta ríki heims til þess að gera rafmyntina bitcoin að gjaldmiðli sínum árið 2021.

Kona sem var dæmd fyrir þungunarrof laus úr fangelsi
Ungri konu frá El-Salvador hefur verið sleppt úr fangelsi eftir sjö ára vist en hún var sakfelld fyrir að hafa rofið þungun. Konan var dæmd í þrjátíu ára fangelsi árið 2015.

Leika fyrir luktum dyrum næsta árið eftir að tólf manns létu lífið
Heimaleikir salvadorska knattspyrnufélagsins Alianza FC næsta árið verða leiknir fyrir luktum dyrum en knattspyrnusamband El Salvador hefur kveðið upp dóm sinn í kjölfar troðnings sem varð á leikvangi félagsins og dró tólf manns til bana.

Kjósendur styðja forseta sem ætlar að brjóta gegn stjórnarskrá
Hátt í sjötíu prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun styðja Nayib Bukele, forseta El Salvador, til endurkjörs þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins kveði á um að forseti geti ekki setið fleiri en eitt kjörtímabil í einu. Bukele ætlar að bjóða sig fram engu að síður.

Þúsundir meintra glæpamanna flutt í risafangelsi
Yfirvöld í Mið-Ameríkuríkinu El Salvador byrjuðu að flytja þúsundir grunaðra glæpamanna í risavaxið fangelsi sem á að hýsa allt að fjörutíu þúsund fanga. Aðgerðin er liður í harðlínustefnu Nayibs Bukele forseta gegn glæpagengjum.

Sendir inn 10.000 hermenn til að svæla út glæpagengi
Forseti El Salvadors sendi um 10.000 her- og lögreglumenn til þess að umkringja úthverfi höfuðborgarinnar San Salvador og handtaka félaga í glæpagengjum. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt herför forsetans gegn gengjum landsins.

Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku
Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador.

Þóttist vera fórnarlamb og gæti hlotið dauðarefsingu
Vörubílstjóri sem keyrði vörubíl sem fannst yfirgefinn í Texas á mánudag með 53 látið farandfólk innanborðs segist ekki hafa vitað af bilaðri loftræstingu. Upphaflega faldi vörubílstjórinn sig nálægt vörubílnum og þóttist vera einn af farandfólkinu en var handtekinn stuttu síðar. Verði hann sakfelldur gæti hann hlotið dauðarefsingu.

El Salvador á barmi greiðslufalls vegna Bitcoin-hruns
Efasemdir eru um að ríkissjóður El Salvador geti staðið við skuldbindingar sínar vegna verðfalls á rafmyntinni bitcoin. Ríkisstjórn landsins gerði rafmyntina að lögmætum gjaldmiðli í fyrra.

Bitcoin löggiltur gjaldmiðill í El Salvador
Löggjafarþing El Salvador samþykkti í dag frumvarp um löggildingu Bitcoin sem gjaldmiðils. El Salvador er fyrsta ríki heimsins sem löggildir Bitcoin. Forseti landsins, Nayib Bukele, barðist fyrir frumvarpinu og segir um söguleg tímamót að ræða.

Laus eftir níu ár í fangelsi fyrir þungunarrof
Sara Rogel, sem var dæmd í þrjátíu ára fangelsi í El Salvador fyrir að hafa rofið þungun, hefur losnað úr fangelsi eftir níu ár á bak við lás og slá. Þungunarrofslög í El Salvador eru meðal ströngustu þungunarrofslöggjafa í heiminum.

Þekkt brimbrettakona lést þegar hún varð fyrir eldingu
Þekkt brimbrettakona frá El Salvador lést síðastliðin föstudag þegar hún varð fyrir eldingu. Katherine Diaz Hernandez var við æfingar rétt hjá heimili sínu þegar atvikið átti sér stað.

Kosningar gætu fært forseta með einræðistilburði frekari völd
Útlit er fyrir að flokkur Nayibs Bukele, forseta El Salvador, hafi unnið sigur í þingkosningum í Mið-Ameríkulandinu í gær. Gagnrýnendur Bukele saka hann um einræðistilburði og óttast að kosningasigur hans gæti grafið undan brothættu lýðræði í landinu.

Fordæma meðferð á föngum í El Salvador
Mannréttindasamtök fordæma Nayib Bukele, forseta El Salvador, vegna mynda sem hann birti af hundruðum fanga sem höfðu verið strípaðir niður á nærbuxurnar og látnir sitja þétt upp við hver annan. Bukele sagði meðferðina hluta af refsingu fanganna fyrir morðöldu um helgina.

Sakar glæpagengi um að notfæra sér faraldurinn
Forseti El Salvador sakar þarlend glæpagengi um að notfæra sér að öryggissveitir landsins beini nú kröftum sínum að því að stöðva útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Fleiri en fimmtíu manns voru myrtir í Mið-Ameríkulandinu um helgina.

Vopnaðir hermenn ruddust inn í þinghúsið í El Salvador
Þungvopnaður hópur lögreglu- og hermanna ruddist í nótt inn í þinghúsið í El Salvador og krafðist þess að þingmenn samþykki lán upp á rúmar hundrað milljónir Bandaríkjadala sem fara á í kaup á vopnum og búnaði til þeirra.

„Þeir ætluðu að ræna mér, stelpunni með kórónuna“
Linda Pétursdóttir, athafnakona og fyrrverandi ungfrú heimur, segir að skæruliðar í El Salvador hafi reynt að ræna henni á árum áður. Það hafi gerst þegar hún heimsótti landið í kjölfar þess að vinna Miss World keppnina.

Dómi yfir konu sem sökuð var um að hafa myrt andvana fætt barn sitt snúið við
Dómi yfir hinni 21 árs gömlu Evelyn Hernandez frá El Salvador hefur verið snúið við eftir að mál hennar var tekið upp aftur fyrir dómstólum. Hernandez hefur dvalið í 33 mánuði á bak við lás og slá eftir að hafa verið sakfelld fyrir morð en Hernandez fæddi andvana barn í apríl 2016.

Réttað aftur yfir konu sem var dæmd fyrir að eignast andvana barn
Þungunarrofslög í El Salvador er ein þau ströngustu í heimi. Konur sem missa fóstur eða fæða andvana börn eru stundum sakaðar um að hafa drepið fóstrið.

Feðginin sem drukknuðu í Río Grande lögð til hinstu hvílu
Myndin af þeim þar sem þau liggja í Ríó Grande ánni hefur vakið mikla athygli víða um heim.

Dauði feðgina á landamærunum El Salvador að kenna
Forseti El Salvador segir að bæta þurfi aðstæður þar í landi svo fólk þurfi ekki að flýja þaðan.

Ameríski draumurinn sem drukknaði í Río Grande
Mynd af feðginum frá El Salvador sem drukknuðu við að reyna að komast til Bandaríkjanna hefur vakið athygli á hættunni sem fólk frá Rómönsku Ameríku leggur sig í við leit að betra lífi.

Fyrrverandi borgarstjóri San Salvador kjörinn forseti
Nayib Bukele er nýr forseti El Salvador, en úrslit í forsetakosningunum voru kunngjörð í gærkvöldi

Salvadorar ganga til forsetakosninga í dag
Salvadorar ganga í dag til forsetakosninga,líkur eru á því að í fyrsta sinn síðan 1989 verði kjörinn forseti utan tveggja stærstu flokka landsins.

Verður ekki refsað fyrir að fæða barn nauðgara síns
Þungunarrof er ólöglegt undir öllum kringumstæðum í El Salvador og var Cortez ákærð fyrir tilraun til morðs.