
Börn og uppeldi

Börn niður í ellefu ára aldur beiti ofbeldi til þess eins að fá „læk“ á samfélagsmiðlum
Ofbeldi meðal ungra krakka hefur aukist og stöðugt fleiri börn bera á sér vopn, að sögn lögreglu. Dæmi séu um að krakkar allt niður í ellefu ára aldur taki þátt í slagsmálum – oft í þeim eina tilgangi að geta birt af þeim myndbönd á samfélagsmiðlum.

Mælt með að börn sem hafa fengið Covid-19 fái líka bólusetningu
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öllum fimm til ellefu ára börnum hér á landi verði boðin bólusetning gegn Covid 19. Sjúkdómurinn geti verið alvarlegur hjá börnum á þessum aldri og bólusetning minnki líkur á langtímaáhrifum. Bólusett verður í grunnskólum landsins.

13/12 Styrktarsjóður
Fyrir fjórum árum varð frúin hálfrar aldar gömul og slegið var upp 100 kvenna stelpupartýi þar sem eðal stjörnur stigu á stokk og allir skemmtu sér konunglega. Ekkert skorti konuna og gjafir voru því afþakkaðar en í staðinn var gamall draumur gerður að veruleika;

Veittu skátunum veglegan styrk
Hringfarinn Kristján Gíslason og eiginkona hans Ásdís Rósa Baldursdóttir vilja láta gott af sér leiða og hafa meðal annars stutt við bataferli fíkla. Læt að nýju styrktarmálefni leiddi þau að fjölskylduskátun, nýju verkefni á vegum skátahreyfingarinnar. Í gær veittu þau skátunum tíu milljóna króna styrk.

Meiri skjátími, minni hreyfing og lítið grænmeti í faraldrinum
Skjátími barna jókst, þau hreyfðu sig minna og borðuðu minna grænmeti eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst en fyrir hann. Þá voru menntaskólanemar meira einmana en áður. Þetta sýna niðurstöður nýrrar úttektar á heilsu og líðan borgarbúa í faraldrinum.

Foreldrar og kennarar eru saman í liði
Mikil umræða á sér nú stað meðal foreldra um stöðu barna þeirra í skólakerfinu og réttindi þeirra. Rætt hefur verið um svokölluð gul herbergi og hvernig við meðhöndlum nemendur sem falla utan við hin hefðbundnu viðmið.

Börnin á samfélagsmiðlum
Í vinnu okkar með unglingum sem annars vegar lögreglumaður og hinsvegar rannsakandi höfum við rekið okkur á að eldri kynslóðin virðist ekki vera fyllilega meðvituð um hvað börnin okkar eru að upplifa í gegnum samfélagsmiðla.

Hætta sem Skoppa og Skrítla eftir átján ár
Hrefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir leggja litríkum búningum Skoppu og Skrítlu eftir átján ár. Hugmyndin að Skoppu og Skrítlu kom upp þegar þær byrjuðu að eignast börn og fundu fyrir því að það var lítið sem ekkert barnaefni fyrir yngstu börnin.

„Ef hjartað er á réttum stað þá bara gerast hlutirnir“
„Árið 2021 er búið að vera annasamasta árið okkar frá upphafi,“ segir leikkonan og leikstjórinn Agnes Wild einn stofnanda atvinnuleikhópsins Miðnættis.

Meistaraflokkur kvenna hjá KR styrkti Barnaspítala Hringsins
Meistaraflokkur kvenna hjá KR færði Barnaspítala Hringsins í gær fallega gjöf. Knattspyrnukonurnar mættu færandi hendi á sjúkrahúsið með leikföng, bækur og fleira fyrir börnin sem þar dvelja yfir hátíðarnar. Þær hvetja önnur lið til að gera slíkt hið sama.

Thompson sagður hafa eignast barn í lausaleik
Hin 31 árs gamla Maralee Nichols eignaðist barn á dögunum og segir hún körfuboltaleikmanninn Tristan Thompson vera faðir barnsins. Thompson hefur viðurkennt að hann hafi sofið hjá Nichols en hann var aftur á móti í sambandi með Khloé Kardashian þegar barnið kom undir.

„Er ekkert hægt að gera fyrir litlu stelpuna mína?“
„Þegar maður lendir í svona áfalli þá fer maður ósjálfrátt í eitthvað svona „survival mode“ fyrstu vikurnar. Svo kemur sá tími að raunveruleikinn fer að kikka aftur inn og þá fær maður kannski bakslag því þá fyrst fer þetta að vera raunverulegt,“ segir Tinna Dögg Guðlaugsdóttir sem missti Stellu, dóttur sína á 22. viku meðgöngu.

Umboðsmaður barna krefur Strætó um svör vegna verðhækkana
Umboðsmaður barna hefur sent forsvarsmönnum Strætó bs. bréf þar sem krafist er ýmissa svara í tengslum við nýlega verðhækkun á árskorti ungmenna.

Stefna á að safna milljón fyrir Barnaspítalann með bóksölu um jólin
Næst segjum við ykkur frá ofurhetjum sem stefna á að safna einni milljón fyrir Barnaspítala hringsins með bóksölu um jólin.

Vinirnir ákváðu að búa saman og sofa í sama rúmi til að missa ekki af neinu
Eins og fram kom í Íslandi í dag í apríl á þessu ári ákváðu vinirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn að eignast barn saman.

Skreytum hús: Umturnaði vinnurými fyrir fallegan málstað
Þórunn og Fríða mynda saman Mía Magic sem starfar að málefnum langveikra barna. Soffía stóðst ekki mátið að aðstoða þessar hetjur í lokaþættinum af Skreytum hús.

Segir leikskólamálin í ólestri og þörf á nýjum áherslum
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að leikskólamálin í Reykjavík séu í miklum ólestri og að fullreynt sé með núverandi stjórn leikskólamála.

Ósanngjarnt að svo mikið hafi verið lagt á eina manneskju
„Það getur verið erfitt í sjálfu sér að ala upp barn sem þú veist ekki hvað er að. Í okkar tilfelli var ekki hægt að sjá á útlitinu fyrstu árin að hún bæri einhvern sjúkdóm með sér. Fyrir vikið var maður dæmdur, eðli málsins samkvæmt, úti í búð og á almannafæri fyrir að vera með óþekkt barn, bandbrjálað barn.“

Hækka barnabætur á næsta ári fyrir tekjulægri
Skerðingamörkum barnabóta verður breytt á næsta ári og hækka neðri skerðingamörk hjá einstæðum foreldrum úr 351.000 krónum á mánuði í 379.083 krónur.

Umhverfisvænir jólasveinar
Nú þegar umhverfismál eru í brennidepli og ein mesta innkaupahátíð ársins hafin langar okkur að ávarpa jólasveinana sem fara að tínast til byggða innan skamms og stinga gjöfum í skó barna.

„Vorum alltaf meiri vinir heldur en par“
Skiptir máli hvernig fólk skilur, hver eru líklegustu vandamálin, hefur skilnaður áhrif á börn og þá hversu mikil?

Áhugavert að börn séu hlynnt klámbanni og telur fulla ástæðu að skoða það
Forsætisráðherra telur fulla ástæðu til að skoða hvort tilefni sé til að banna klámáhorf barna. Hann segir áhugavert að börn og unglingar séu fylgjandi slíku banni.

Klám og rafræn skilríki
Árið 1972 var bandaríska klámmyndin Deep Throat frumsýnd í Bandaríkjunum. Myndin rauk upp vinsældarlistana, halaði inn 30 milljónum Bandaríkjadala á fyrstu mánuðunum (á núvirði ríflega 24 milljarða íslenskra króna).

Þórunn Eva er framúrskarandi ungur Íslendingur
Þórunn Eva G. Pálsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 í gær. Þórunn Eva hefur vakið athygli á málefnum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Hún hefur skrifað bók um efnið, stofnað góðgerðarsamtök og stendur á bak við Míuverðlaunin.

Lyfjastofnun Evrópu mælir með bólusetningu fimm til ellefu ára
Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið grænt ljós á að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði bólusett gegn Covid-19. Á leyfið þó einungis við um bóluefni Pfizer en þegar hefur notkun þess verið heimiluð öllum tólf ára og eldri.

Sonur Hjartar og Beru kominn í heiminn
Fótboltakappinn Hjörtur Hermannsson og kærasta hans Bera Tryggvadóttir eignuðust sitt fyrsta barn á mánudaginn. Þetta tilkynntu á Instagram reikningum sínum í kvöld. Drengurinn hefur hlotið nafnið Högni Hjartarson.

„Á tímabili höfðum við áhyggjur af því að hann tæki sitt eigið líf“
Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands birti á dögunum pistil á Vísi um einelti sem sonur hans Jón Gautur varð fyrir í grunnskóla. Rætt var við Hannes í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Umdeilt klámbann: Unglingar með, þingmenn á móti
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Pírata leggjast gegn hugmyndum menntamálaráðherra um að loka á klám fyrir ungmenni. Ekki rétta leiðin, segja þeir. Nemendur í Hagaskóla eru aftur á móti margir fylgjandi klámbanni, enda sé það stórskaðlegt.

Börn skipa sess í borgarmenningu
Ég vil að Reykjavíkurborg verði enn betra heimili fyrir börn. Á þessu kjörtímabili hefur heilmargt verið lagt að mörkum til að svo megi verða.

Skýrt bann þarf við umskurði drengja – Áskorun til barnamálaráðherra á degi mannréttinda barna
Í dag 20. nóvember er dagur mannréttinda barna sem er helgaður fræðslu um málefnið. Margt hefur áunnist í baráttunni undanfarin ár og er það mikils virði. Undanfarin áratug hefur umræðan um varanlegar, óafturkræfar og ónauðsynlegar skurðaðgerðir á börnum aukist mikið og hefur orðið vitundarvakning í þeim efnum.