Landspítalinn
37 38 39 40 41 42 43 44 45 … 59 ›
Enginn greindist og sóttkví aflétt af hjartadeild Landspítalans Niðurstöður úr Covid-19 skimun allra sjúklinga og meirihluta starfsfólks hjartadeildar Landspítala liggja núna fyrir og eru allar neikvæðar. Innlent 13.1.2021 13:06
Vongóður um að staðan á Landakoti sé ekki að endurtaka sig Yfirlæknir hjartadeildar Landspítalans er vongóður um að staðan á Landakoti í október sé ekki að endurtaka sig. Hvorki starfsmenn né sjúklingar á hjartadeild hafi greinst með kórónuveiruna í umfangsmiklum prófunum sem hófust á deildinni í gær eftir að einn sjúklinga greindist jákvæður við útskrift í gærdag. Innlent 13.1.2021 11:50
Neikvæðar niðurstöður komnar hjá liðlega helmingi þeirra sem þarf að skima Landspítali hefur nú fengið niðurstöður rannsókna sýkla- og veirufræðideildar á Covid-skimun liðlega helmings þeirra 180 einstaklinga sem þarf að skima eftir að sjúklingur á hjartadeild greindist með Covid-19 í gær. Innlent 13.1.2021 11:42
Öll sýni af starfsfólki hafa enn sem komið er reynst neikvæð Enn sem komið er hafa öll sýni af starfsfólki á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, deild 14 EG, reynst neikvæð eftir að sjúklingur á deildinni greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Innlent 13.1.2021 08:19
Öll sýni annarra sjúklinga reyndust neikvæð Enginn annar sjúklingur sem liggur inni á hjartadeild 14 EG í Landspítalanum við Hringbraut er smitaður af Covid-19. Öll sýni sem tekin voru í dag reyndust neikvæð en skimun á starfsfólki deildarinnar stendur enn yfir. Innlent 12.1.2021 22:44
Sjúklingur á hjartadeild Landspítala greindur með Covid-19 Lokað hefur verið fyrir innlagnir á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut eftir að sjúklingur þar greindist með Covid-19. Ekki er vitað hvernig sjúklingurinn smitaðist en vitað að hann smitaðist á meðan hann lá inni. Innlent 12.1.2021 19:02
Nýtt Covid-greiningartæki verði loks klárt í febrúar Nýtt greiningartæki Landspítala, sem á meðal annars að nýtast við greiningar á Covid-19, hefur enn ekki verið tekið í notkun. Tækið var keypt síðasta sumar og stóðu þá vonir til að það yrði tekið í gagnið í nóvember, en nú standa hins vegar vonir til að það verði í febrúar. Innlent 7.1.2021 07:36
Mikið álag á bráðamóttökuna í Fossvogi og fólki vísað annað Mikið álag er núna á Landspítalanum, meðal annars á bráðamóttöku í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttökuna vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Innlent 6.1.2021 14:26
Segir bólusetninguna hafa gríðarlega þýðingu fyrir bráðamóttökuna Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir það mjög ánægjulegt og hafa gríðarlega þýðingu fyrir deildina að byrjað sé að bólusetja starfsmenn. Hann segir starfsmenn varla hafa fundið fyrir nokkrum aukaverkunum af fyrri bólusetningunni. Innlent 3.1.2021 12:31
Lena dreif sig í heiminn til að vera fyrsta barn ársins Fyrsta barn ársins hefur verið nefnd Lena. Hún fæddist á fæðingardeild Landspítala klukkan 00:24 í nótt. Innlent 1.1.2021 14:25
Tveggja ára barn á meðal þeirra sem slösuðu sig á flugeldum Um tíu manns leituð á bráðamóttöku Landspítalans í nótt eftir að hafa slasað sig á flugeldum. Fimm þeirra voru börn en það yngsta var tveggja ára. Innlent 1.1.2021 10:17
Svifryksmengun gæti kallað á heimsókn á bráðamóttöku Yfirlæknir á bráðamóttöku hefur áhyggjur af því að fólk gæti þurft að leita á bráðamóttöku í nótt vegna mikillar svifryksmengunar. Innlent 31.12.2020 17:00
Rannsaka dauðsfall á réttargeðdeild Ungur karlmaður á sjálfsvígsgát á réttargeðdeild svipti sig lífi á jóladag. Málið er í rannsókn lögreglu og óháður aðili verður fenginn til að fara yfir verkferla. Yfirlæknir segir að harmleikur sem þessi eigi ekki að geta gerst. Innlent 30.12.2020 18:31
Bólusett hvert á fætur öðru í matsalnum Bólusetning starfsmanna Landspítalans hófst í matsal Landspítala í Skaftahlíð 24 klukkan 10 í morgun. Síðar í dag hefst bólusetning á Landakoti og Vífilsstöðum. Reiknað er með því að um 770 starfsmenn verði bólusettir á spítalanum í dag og á morgun. Innlent 29.12.2020 10:33
Andlát vegna Covid-19 á Landspítala Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Innlent 29.12.2020 08:46
„Fólk slasast almennt ekki mikið við að horfa á sjónvarpið“ Almennt hefur gengið nokkuð vel á bráðamóttöku Landspítalans nú um jólin og hefur álagið verið minna í ár en oft áður. Það má meðal annars rekja til þess að matarvenjur þjóðarinnar hafa að mörgu leyti breyst til hins betra auk þess sem í ljósi kórónuveirufaraldursins hafa færri þurft að leita á bráðamóttöku vegna áverka. Þetta segir Hjalti Már Björnsson bráðalæknir sem ræddi stöðuna á bráðamóttökunni í þættinum Reykjavík sídegis á Bylgjunni í dag. Innlent 28.12.2020 18:01
„Þigg bólusetningu þegar kemur að mér“ Starfsmönnum bráðamóttöku Landspítalans eru farin að berast boð í bólusetningu. Þetta staðfestir Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir göngudeildar Covid-19. Sjálfur hefur hann ekki fengið boð en segist afar rólegur; mikilvægast sé að bólusetja aldraða og þá sem eru í nánum samskiptum við sjúklinga. Innlent 28.12.2020 13:59
Gefa einstæðum mæðrum og heimilislausum gjafabréf í tuga tali Læknar af lyflækningasviði Landspítalans gáfu áttatíu gjafabréf sín í skóbúð til Mæðrastyrksnefndar fyrir jólin. Fleiri deildar söfnuðu gjafabréfum, sem eru jólagjöf til starfsmanna, saman og gáfu til góðgerðarmála, svo sem Hjálparstofnunar Kirkjunnar. Innlent 23.12.2020 11:53
Læknir hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart konu sem lést nokkrum klukkutímum eftir útskrift Niðurstaða rannsóknar embættis landlækni á andláti Eygló Svövu Kristjánsdóttur er sögð leiða í ljós að læknir á bráðamóttöku Landspítalans hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart henni þegar komið var með Eygló á bráðamóttökuna í mars. Hún lést nokkrum klukkutímum eftir að hún var útskrifuð af bráðamóttökunni. Innlent 22.12.2020 21:06
Hjartasjúklingi aftur dæmdir tugir milljóna í héraði Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða hjartasjúklingi 27,5 milljónir í bætur vegna galla í leiðslu bjargráðs sem græddur var í hann. Ríkið hafði áður verið dæmt til að greiða manninum sambærilega upphæð en Landsréttur ómerkti þann dóm og sendi aftur í hérað, þar sem dómur var kveðinn upp í gær. Innlent 22.12.2020 19:45
Byrjað að steypa upp meðferðarkjarna Landspítala eftir áramót Byrjað verður að steypa upp meðferðarkjarna nýja Landspítalans fljótlega upp úr áramótum. Þetta verður stærsta bygging nýja Landspítalans eða sjötíu þúsund fermetrar og fara um sextíu þúsund rúmmetrar af steypu í húsið. Innlent 22.12.2020 19:21
Undirrituðu samning vegna uppsteypu nýja Landspítalans Stjórnvöld og Eykt skrifuðu í dag undir samning um uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi. Stefnt að þvi að uppsteypan hefjist fljótlega eftir áramót. Meðferðarkjarninn, sem verður um 70 þúsund fermetrar að stærð, er stærsta byggingin í uppbyggingu við nýjan Landspítala við Hringbraut. Viðskipti innlent 22.12.2020 14:15
„Læknirinn okkar er bráðamóttakan og það er ansi dýr læknir“ „Honum var eins og mörgum í okkar hóp, ekki hugað langt líf, en hefur svo sannarlega afsannað það um langt skeið. Hins vegar höfum við oft dansað á línunni,“ segir Sigríður K. Hrafnkelsdóttir verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu. Lífið 22.12.2020 08:00
Framkonur mættu með fullan poka af jólagjöfum á Barnaspítala Hringsins Meistaraflokkur kvenna í fótbolta í Fram safnaði fyrir jólagjöfum til að gefa krökkunum á Barnaspítala Hringsins. Íslenski boltinn 17.12.2020 15:46
Hvernig eru jól á spítala? Við sem sinnum sálgæslu, sjúkrahúsprestar- og djákni á Landspítala, fáum iðulega þær spurningar í tengslum við jól og aðventu hvort hægt sé að halda jól á spítala og hvernig slík jól séu. Eins deilir fólk vangaveltum sínum um það hvort jólin geti yfirhöfuð komið til þeirra sem dvelja á sjúkrahúsi um hátíðina. Skoðun 16.12.2020 10:32
Koma mun betur undan fyrstu bylgju en kollegarnir úti í heimi Frumniðurstöður rannsóknarinnar Líðan þjóðar á tímum Covid-19 eru afar áþekkar niðurstöðum þeirra rannsókna sem þykja sambærilegar hinni íslensku sem framkvæmdar hafa verið erlendis þó að einum meginþætti undanskildum. Innlent 14.12.2020 15:22
„Deildin verður með þessu á heimsmælikvarða“ Með tilkomu nýs greiningartækis, sem barst loksins til landsins eftir margra mánaða bið, verður sýkla-og veirufræðideild Landspítalans á heimsmælikvarða hvað varðar afkastagetu og möguleika á greiningu. Þetta sagði Karl G. Kristinsson, yfirlæknir deildarinnar, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 14.12.2020 13:12
Jólagjafirnar á Landspítalanum talsvert dýrari í ár Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum, segir að kostnaður við jólagjafir til starfsmanna spítalans þetta árið hafi verið talsvert meiri en venjulega. Alls hafi spítalinn greitt 36 milljónir króna fyrir sjö þúsund króna gjafabréf í Skechers og Omnom súkkulaði til sinna sex þúsund starfsmanna. Viðskipti innlent 14.12.2020 09:02
„Alvarlegt hvernig farið er með Landspítalann“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir alvarlegt að gerð sé aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnanir nú á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Formaður fjárlaganefndar segir að krónutölur þurfi að skoða í stærra samhengi hvað varðar aðhaldskröfur á Landspítalann. Hann vill að því verði hætt að setja almennar aðhaldskröfur og vill að tekin verði upp ný aðferðafræði í staðinn. Innlent 13.12.2020 15:45
Starfsfólk Landspítalans fær að nota jólagjöfina á Session Kráin Session Craft Bar auglýsti á Facebook-síðu sinni fyrr í dag að starfsmenn Landspítalans muni geta notað sjö þúsund króna gjafabréf sem þeir fengu í jólagjöf frá spítalanum á kránni. Viðskipti innlent 12.12.2020 17:40