

Ólympíuleikar 2024
Fréttir af Ólympíuleikunum sem fram fóru í París í Frakklandi dagana 26. júlí til 11. ágúst 2024.

Mateta kom heimamönnum í undanúrslit
Heimalið Frakka er komið í undanúrslit í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París eftir sigur á Argentínumönnum, 1-0, í kvöld.

Hin sem féll á kynjaprófinu á HM vann einnig
Hin taívanska Lin Yu-ting, sem var vísað úr keppni á HM í hnefaleikum í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf, vann fyrsta bardaga sinn á Ólympíuleikunum í París.

Spánverjar sitja eftir
Sterkt lið Spánar kemst ekki í átta liða úrslit í körfuboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París. Þetta var ljóst eftir tap fyrir Kanada í dag, 88-85.

Ólympíufari sem á ekki fyrir leigu
Bandaríski kringlukastarinn Veronica Fraley keppir í kvöld í kringluvarpi á Ólympíuleikunum í París. Hún vakti hins vegar athygli á því á samfélagsmiðlum að þrátt fyrir að skara fram úr í sinni íþróttagrein hefur hún enn ekki efni á leigu heima fyrir.

Þýskaland bar sigur úr býtum í æsispennandi leik gegn Spáni
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í handboltalandsliði Þýskalands lögðu Spán 33-31 í æsispennandi viðureign í næst síðustu umferð riðlakeppninnar á Ólympíuleikunum.

Marokkó áfram í undanúrslit eftir stórsigur gegn Bandaríkjunum
Knattspyrnulandslið Marokkó er komið áfram í undanúrslit Ólympíuleikanna eftir afar öruggan 4-0 sigur gegn Bandaríkjunum.

Tvö hundruð þúsund smokkar í ólympíuþorpinu: „Ekki deila öðru en sigrinum“
„Ekki deila öðru en sigrinum, verðu þig fyrir kynsjúkdómum,“ stendur á umbúðum smokka sem keppendur í ólympíuþorpinu á Ólympíuleikunum í París geta nálgast sér að kostnaðarlausu. Alls hafa yfir tvö hundruð og tuttugu þúsund smokkar verið gerðir aðgengilegir fyrir íþróttafólk á Ólympíuleikunum í ólympíuþorpinu þetta árið.

Króatískir lærisveinar Dags steinlágu fyrir Svíum
Króatíska handboltalandsliðið undir stjórn Dags Sigurðssonar steinlá fyrir því sænska, 38-27, í leik liðanna á Ólympíuleikunum.

Giannis forðaði Grikkjum frá heimsendingu
Körfuboltalið Grikklands forðaðist það að vera sent heim af Ólympíuleikunum með 77-71 sigri gegn Ástralíu.

Hákon Þór í 22. sæti eftir fyrsta keppnisdag
Hákon Þór Svavarsson situr í 22. sæti þegar þrjár umferðir af fimm hafa verið spilaðar í undanrásum leirdúfuskotfimi á Ólympíuleikunum. Síðustu tvær umferðirnar fara fram í fyrramálið.

Utan vallar: Þegar mektarfólk lætur sig kvennaíþróttir varða
Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum.

Segir heimsmetið ómögulegt afrek og líkir við lyfjamisnotkun Austur-Þjóðverja
Ástralski sundþjálfarinn og fyrrum Ólympíufarinn Brett Hawke sakar kínverska sundmanninn Pan Zhanle um lyfjamisnotkun eftir að hann stórbætti eigið heimsmet í hundrað metra skriðsundi og synti sekúndu hraðar en næsti maður í lauginni.

Reynir við 72 ára gamalt afrek Emils Zátopek
Stórstjarna langhlaupanna ætlar að reyna við sögulega þrennu á Ólympíuleikunum í París. Hér á ferðinni hollenska hlaupakonan Sifan Hassan sem er sigurstrangleg í öllum greinunum þremur.

Fyrsti Ólympíumeistarinn í meira en hálfa öld sem ekki er táningur
Sannfærandi sigur bandarísku fimleikakonunnar Simone Biles í fjölþraut kvenna á Ólympíuleikunum í París er sögulegur á svo margan hátt.

Næsti andstæðingur Khelifs ætlar að berjast allt til enda: „Ég vil bara vinna“
Óhætt er að segja að hin alsírska Imane Khelif hafi verið mikið milli tannanna á fólki eftir hnefaleikabardaga hennar á Ólympíuleikunum í París í gær.

Biles sýndi 546 demanta geitarhálsmen eftir að hafa unnið gullið
Simone Biles frumsýndi sérstakt hálsmen eftir að hafa unnið sigur í fjölþraut í fimleikakeppni Ólympíuleikanna í dag.

Ólympíunefndin skýtur föstum skotum á hnefaleikasambandið
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Imane Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag.

Norsku stelpurnar komnar í átta liða úrslit
Noregur tryggði sér sæti í átta liða úrslitum í handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í París með öruggum sigri á Slóveníu í kvöld, 22-29.

Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti ræddi við Frans páfa í dag um atriði á setningarhátíð Ólympíuleikanna, sem hann kallar „siðlaust sviðsverk“. Í atriðinu sátu dragdrottningar við borð og virtist uppsetningin minna mikið á málverk Da Vinci af síðustu kvöldmáltíð Krists.

Biles vann enn eitt Ólympíugullið
Bandaríska fimleikakonan Simone Biles vann í dag til gullverðlauna í fjölþraut á Ólympíuleikunum í París. Þetta er sjötta Ólympíugull Biles og önnur gullverðlaunin sem hún vinnur í París.

Keppinautar virða Kínverjann ekki viðlits: „Mér leið eins og hann liti niður til okkar“
Kínverski sundmaðurinn Pan Zhanle stórbætti heimsmetið í hundrað metra skriðsundi. Hann segir skorta virðingu hjá keppinautum sínum, sem tala ekki við hann og virtust skvetta vatni á þjálfara hans.

Fagnaði eins og Cristiano Ronaldo eftir óvænt gull á ÓL
Ekvadorinn Brian Daniel Pintado varð í dag óvænt Ólympíumeistari í 20 kílómetra göngu á leikunum í París.

Úlfúð á Ólympíuleikunum: „Hef aldrei verið slegin svona áður“
Þátttaka hinnar alsírsku Imane Khelif í kvennaflokki í hnefaleikum á yfirstandandi Ólympíuleikum í París hefur valdið fjaðrafoki. Khelif var meinuð þátttaka á heimsmeistaramóti síðasta árs eftir að hafa ekki staðist kynjapróf.

Stjarna Svía ekki með gegn Króötum Dags: Sjaldséð blátt spjald fór á loft
Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson tekur út leikbann gegn Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í króatíska landsliðinu þegar að liðin mætast í mikilvægum leik á Ólympíuleikunum í París. Gottfridsson fékk að líta sjaldséð blátt spjald í leik Svía gegn Slóvenum á dögunum og tekur því út leikbann í leik morgundagsins.

Af dragdrottningum og grátkórum
Árið 2000 var haldið upp á lok Ólympíuleikanna í Sidney með stórri hátíð á Ólympíuleikvanginum. Þar mátti meðal annars sjá furðuleg farartæki á hlaupabrautinni, en það voru raunar risavaxnir glitrandi hælaskór á hjólum.

Á tuttugu bestu tíma sögunnar
Bandaríska sundkonan Katie Ledecky vann í gær yfirburðasigur í 1500 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í París og bætti einum tímanum í viðbót í hóp þeirra bestu í sögunni.

Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972
Fyrrverandi yfirmaður öryggismála Ólympíusveitar Ísrael hjá öryggisstofnuninni Shin Bet, segir að auka ætti öryggi keppenda landsins á Ólympíuleikunum í París í kjölfar árásar Hezbollah á þorp í Gólan-hæðum um helgina og aukinnar spennu á svæðinu.

Sú efsta á heimslistanum úr leik
Hin pólska Iga Świątek tapaði í undanúrslitum í einliðaleik í tennis á Ólympíuleikunum í París. Hin kínverska Zheng Qinwen hafði betur gegn henni á Roland Garros-vellinum.

Niðurbrotin Marta gekk grátandi af velli
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Marta gekk grátandi af velli eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í leik Brasilíu gegn Spáni á Ólympíuleikunum í París í gær. Leikurinn gæti hafa verið sá síðasti á glæstum landsliðsferli Mörtu og var sá tvöhundruðasti í röðinni hjá leikmanninum með brasilíska landsliðinu.

„Þetta eru Ólympíuleikarnir, þá vill maður alls ekki gefast upp“
Guðlaug Edda Hannesdóttir varð í gær fyrst Íslendinga til að keppa í þríþraut á Ólympíuleikunum. Hún kláraði keppnina þrátt fyrir meiðsli, er stolt af sínum afrekum þrátt fyrir að hafa viljað ná betri niðurstöðu og vonast til að geta byggt á því fyrir framtíðina.