
Tekinn á 194 kílómetra hraða við Arnarnesveg
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut við Arnarnesveg á 194 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, um klukkan eitt í nótt.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut við Arnarnesveg á 194 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, um klukkan eitt í nótt.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók gest í samkvæmi í Grafarvogi um klukkan tvö í nótt, grunaðan um að hafa ráðist á einstakling sem tilkynnti um hávaða frá samkvæminu.
Lögreglan telur amfetamínbasa nú framleiddan hér á landi en síðustu mánuði hefur verið lagt hald á 13,5 lítra í umfangsmiklum málum er varða skipulagða glæpastarfsemi.
Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og sakaður um morð í Pensacola á Flórída í Bandaríkjunum á mánudag. Maðurinn er sagður hafa skotið gest á heimili hans til bana.
Húsráðandi hafði komið að honum þar sem hann hafði brotið rúðu og reyndi hann að komast undan á hlaupum.
Einu máli hefur lokið með sektargreiðslu þar sem brotið hafði verið gegn samkomubanni.
Kveikt var í gaskútum á fjórum stöðum innan bæjarmarka á Selfossi og rétt fyrir utan bæinn upp úr miðnætti í nótt. Málið er talið tengjast stuldi á gaskútum.
Neyðarlínunni barst í gær símtal úr Hafnarfirði þar sem álftarungi hafði komist í hann krappan í Læknum.
Tveir starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland eru með réttarstöðu sakbornings vegna rannsóknar lögreglu á vélsleðaferð á vegum fyrirtækisins í janúar.
Karlmaður um þrítugt, sem grunaður er um að hafa orðið móður sinni að bana í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. maí.
Þrátt fyrir háværa umræðu á samfélagsmiðlum um hið gagnstæða segir lögreglan að nýliðin helgi hafi verið hin rólegasta.
Drengirnir þrír sem handteknir voru í aðgerðum lögreglunnar á Suðurlandi, sérsveitar Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar síðastliðinn fimmtudag eru þeir sömu og lögregla þurfi að beita naglamottu á til að stöðva för þeirra fyrr á árinu.
Mikið tjón varð þegar eldur kom upp í samkomuhúsi og gistiaðstöðu á Kjalarnesi í morgun. Um tíu manns voru innandyra þegar eldurinn kom upp en engan sakaði.
Lögregla sinnti í það minnsta sex útköllum frá klukkan 15 í gær þar til klukkan 5 í morgun vegna vímuefnaaksturs á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölda útkalla í nótt þar sem tilkynnt hafði verið um hávaða vegna samkvæma í heimahúsum.
Lögreglumenn handtóku í gærkvöldi þrjá aðila á Vestfjarðavegi eftir að þau höfðu stolið bílum, ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna, velt einum bílanna og veist að manni.
Konan sem lögregla hefur leitað að er komin fram.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um umferðaróhapp við Holtagarða um klukkan 23 í gærkvöldi þar sem bíl hafði verið ekið utan í slökkvibíl.
Skömmu eftir klukkan tíu í kvöld var tilkynnt um manneskju sem lá í götunni í Hafnarfirði.
Lögreglunni á Norðurlandi vestra hefur ekki borist tilkynning í kvöld en á laugardagskvöld var tilkynnt um möguleg spor eftir hvítabjörn.
Tveir karlmenn um þrítugt voru handteknir eftir að tilkynning barst um að þeir hefðu ógnað þriðja manninum með skotvopni í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan 19:00 í kvöld. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til.
Landsréttur staðfesti að karlmaður um fimmtugt skuli áfram sæti farbanni fram í júní í tengslum við rannsókn á mannsláti í Úlfarsárdal í desember. Maðurinn er grunaður um að hafa valdið dauða manns sem féll þá fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss.
Þrír piltar struku á stolnum bíl af vistheimili fyrir ungmenni á Suðurlandi seint í gærkvöldi. Lögregla hélt úti miklum viðbúnaði vegna málsins en piltarnir voru loks handteknir við útihús í Þykkvabæ.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björgu Ólavíu Ólafsdóttur, 48 ára, til heimilis í Kópavogi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir eldri konu sem ekki hafði sést til síðan síðdegis í dag. Konan er nú fundin.
Frá og með gærdeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega hafist er handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða.
Þrír drengir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Suðurlandi, sérsveitar Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar skömmu eftir miðnætti. Drengirnir struku af meðferðarheimili eftir að hafa ógnað starfsmanni og stolið bíl.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem gerð var í húsi í Hafnarfirði í byrjun þessa mánaðar.
Þúsundir eru heima hjá sér um þessar mundir. Veikir eða í sóttkví eða hræddir við það að veikjast. Við getum ekki hitt margar í einu, skólarnir eru ekki fúnkerandi sem skildi og börnin því meira heima
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið nokkuð af tilkynningum um að fólk hafi fengið ógnandi og grófa pósta þar sem reynt sé að kúga fé úr fólki.