Erlent

Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa

Smári Jökull Jónsson skrifar
Veggjalýsnar fundust um borð í vél ástralska flugfélagsins Qantas.
Veggjalýsnar fundust um borð í vél ástralska flugfélagsins Qantas. Vísir/Getty

Ástralska flugfélagið Qantas neyddist til að kyrrsetja eina af vélum sínum í Róm eftir að veggjalýs fundust í farangursrými vélarinnar. Vélin hafði komið til Rómar frá Perth í Ástralíu.

Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið.

Taka þurfti vélina úr umferð til hreinsunar eftir komuna til ítölsku höfuðborgarinnar og var flugi Qantas til baka til Perth frá Róm, sem fara átti daginn eftir, aflýst af þeim sökum.

„Geta ekki flogið á flugvéla“

Talsmaður flugfélagsins segir flugið hafa verið fellt niður svo flugvirkjar og viðhaldsteymi gæti þrifið vélina rækilega eftir „vandamál sem greindist í fáeinum sætum í almennu farrými.“ Flugfélagið segir farþegarými véla sinna þrifin reeglulega og samkvæmt ströngustu kröfum auk þess sem sótthreinsiefni sé borið á þau á fimmtíu daga fresti.

Í frétt Guardian er vísað í orð Michelle Power, sníkjudýrasérfræðings vi Macquarie-háskóla, sem segir afar líklegt að lýsnar hafi borist um borð með farangri eða á fatnaði farþega og síðan skriðið út í farþegarýmið.

„Þær tengjast ferðalögum, fólk gistir kannski á hóteli þar sem eru veggjalýs og þar sem þeim finnst gott að vera í myrkri og laðast að lykt á fötum fólks. Þannig komast þær í farangur,“ segir hún.

„Þær geta ekki flogið án flugvéla,“ bætir Power við.

Að hennar sögn eru veggjalýs ekki hættulegar þó bit þeirra geti valdið kláða og ertingu. Hins vegar sé mjög erfitt að losna við þær því þær geti falið sig lengi í rúmfötum án þess að nærast.

Þá séu tvær hliðar á því hvernig veggjalýs þrífist. Efnameira fólk sem ferðast mikið fái þær og dreifi áfram en fólk sem býr við verri kjör hafi ef til vill ekki efni á meindýraeitri eða á að hita vatn í 55 gráður, sem þarf til að drepa þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×