Á annað hundrað milljóna í hættu vegna þurrka, flóða og hita Allt að 118 milljónir Afríkubúa sem búa við örbirgð verða í hættu vegna þurrka, flóða og öfgahita fyrir lok þessa áratugs verði ekki gripið til mótvægisaðgerða samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) um áhrif loftslagsbreytinga í álfunni. Erlent 19. október 2021 09:25
Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni. Erlent 18. október 2021 23:21
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 16. október 2021 12:58
Ekki lengur hrópandinn í eyðimörkinni Lisa Murkowski öldungardeildarþingmaður Republikana fyrir Alaska mætti áhugaleysi og jafnvel efasemdum um raunveruleika loftlagsbreytinganna innan flokksins þegar hún hóf að vekja athygli á málefnum norðurslóða á Bandaríkjaþingi. Hún hefur sótt Hringborð norðurslóða frá upphafi og segir stöðuna hafa breyst mikið í dag. Erlent 16. október 2021 10:00
Hungurvísitalan 2021: Vannærðum fjölgar hratt Samkvæmt öðru heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna á hungri að vera útrýmt í heiminum árið 2030. Heimsmarkmiðin 15. október 2021 12:54
Mikilvægi þess að hugsa tuttugu ár fram í tímann Hvernig framtíð sérðu fyrir þér eftir 20 ár? Spurning sem þessi getur verið flókin, tíminn afstæður og að hugsa til ársins 2041 getur virst fjarstæðukennt. Skoðun 15. október 2021 08:01
Grænar hindranir Flestir stjórnmálaflokkar virðast sammála um að framtíð Íslands sé best borgið með áherslu á sjálfbærni og græna atvinnuuppbyggingu. Ekki er raunverulegur ágreiningur um að hraða skuli orkuskiptum í samgöngum; byrja á bifreiðum, svo vinnuvélum, skipum og flugvélum, eftir því sem tækninni fleygir fram. Spurning er ekki hvort, heldur hvenær, allar samgöngur á Íslandi verða umhverfisvænar. Skoðun 15. október 2021 07:00
„Nú er síðasti séns, kæru vinir“ Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða Arctic Circle, segir að skilaboðin frá Hringborðinu fyrir mikilvæga loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í næsta mánuði séu skýr, nú sé síðasti séns til þess að grípa til alvarlegra aðgerða vegna loftslagsmála. Innlent 14. október 2021 20:20
Vilja vindorkugarða við nær alla strandlengju Bandaríkjanna Ríkisstjórn Joes Biden vill láta reisa vindorkuver við nærri alla strandlengju Bandaríkjanna á næstu árum. Stefnt er að því að vindorkuframleiðendur geti byrjað að sækja um leyfi til að reisa vindtúrbínur fyrir utan ströndina fyrir árið 2025. Erlent 14. október 2021 10:39
Geta kolefnismarkaðir bjargað loftslagsmarkmiðum Íslands? Til að ná markmiðum Parísarsamningsins er ekki nóg að draga úr kolefnislosun heldur er nauðsynlegt að finna leiðir til að binda það kolefni sem nú þegar hefur verið losað út í andrúmsloftið af mannavöldum og ná fram jafnvægi í losun og bindingu. Skoðun 14. október 2021 08:00
Losun koltvísýrings að ná fyrri hæðum Losun koltvísýrings fer nú aftur vaxandi í heiminum og samkvæmt nýrri skýrslu hefur hann aukist í 20 ríkustu löndum jarðar miðað við síðasta ár. Erlent 14. október 2021 07:00
Loftslagsmál vega þungt í stjórnarmyndunarviðræðum Formenn ríkisstjórnarflokkanna funda áfram í dag og reyna að finna leiðir til áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfs. Framsókn og Vinstri græn leggja mikla áherslu á loftslagsmál á komandi kjörtímabili en sýn þeirra á málaflokkinn er enn ólík. Innlent 13. október 2021 13:22
Ljón í vegi rafvæðingar bílaflota Evrópu og Bandaríkjanna Aðeins rúmlega 1.500 hleðslustöðvar eru fyrir rafbíla í New York þrátt fyrir að allir nýir fólksbílar þar eigi að vera vistvænir fyrir árið 2035. Innviðauppbygging hefur ekki haldið í við vaxandi sölu rafbíla í Evrópu og Bandaríkjunum og krefst hún gífurlegrar fjárfestingar á næstu árum. Erlent 13. október 2021 10:44
Tölum um orkuþörf Samkvæmt orkustefnu sem unnin var í þverpólitísku samstarfi á Ísland að verða jarðefnaeldsneytislaust árið 2050. Það er metnaðarfullt markmið sem myndi halda okkur fremst í röð þjóða heims í loftslagsmálum. Skoðun 13. október 2021 07:02
Aldrei jafn mikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í september Aldrei áður hefur mælst jafnmikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í septembermánuði. Var síðasti mánuður jafnframt næst mesti umferðarmánuður frá upphafi mælinga en örlítið meiri umferð mældist í maí 2019. Innlent 12. október 2021 14:11
Sameinuðu þjóðirnar skila auðu um kvörtun Thunberg Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins segist ekki geta tekið afstöðu til kvörtunar Gretu Thunberg og annarra ungra loftslagsaðgerðasinna sem halda því fram að aðgerðaleysi ríkja heims brjóti á réttindum þeirra. Ungmennin hefðu átt að snúa sér að dómstólum í hverju landi fyrir sig fyrst. Erlent 12. október 2021 14:04
Áróðursherferðin gegn landinu Síðustu daga hafa forsvarsmenn stórra orkufyrirtækja komið fram í fjölmiðlum og haldið því fram að á Íslandi sé brýnt að framleiða meiri orku en nú er gert. Þeir hafa sagt að til þess að hægt sé að fara í orkuskiptin sé bráðnauðsynlegt að taka úr sambandi faglega ferla sem lög kveða á um þegar ákvörðun er tekin um hvort virkjanir skuli rísa. Skoðun 12. október 2021 09:01
Hey, þetta er ekki flókið Það er eðlilegt að fólki fallist hendur þegar reynt er að rýna í loftslagsmál af einhverri dýpt. Orð og skammstafanir eins og IPPC, LULUCF, ETS kerfi, Carbfix, koltvísýringsígildi, Gígatonn og Terawattstundir geta virkað sem konfekt í eyrum sérfræðinga en eru kannski ekki jafnaðlaðandi fyrir almenning. Skoðun 11. október 2021 14:01
AGS útvatnaði varnaðarorð um áhættu vegna loftslagsbreytinga Stjórnendur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum lúffuðu fyrir fulltrúum Brasilíu og milduðu orðalag þar sem varað var við áhættu brasilísks efnahagslífs vegna loftslagsbreytinga í árlegri skýrslu. Framkvæmdastjóri sjóðsins á fyrir í vök að verjast vegna ásakana um að hún hafi gengið erinda Kínverja hjá Alþjóðabankanum. Viðskipti erlent 11. október 2021 13:41
Trjárækt í Sierra Leone til að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga og auka fæðuöryggi Verkefnið byggir á þátttöku samfélaga á áherslusvæðum og hefur margþættan tilgang. Heimsmarkmiðin 8. október 2021 13:46
Kínverskum kolanámumönnum sagt að spýta í lófana Stjórnvöld í Beijing hafa skapað kolanámufyrirtækjum Kína að auka framleiðslu sína til þess að vinna gegn orkuskorti í landinu. Skerða hefur þurft rafmagn til milljóna heimila og fyrirtækja undanfarnar vikur. Erlent 8. október 2021 10:49
Google bannar auglýsingar með loftslagsafneitun Tæknirisinn Google hefur ákveðið að banna afneiturum loftslagsvísinda að kaupa auglýsingar í leitarvélinni og á samfélagsmiðlinum Youtube og að hagnast á auglýsingum. Ákvörðunin var tekin vegna óánægju auglýsenda með að auglýsingar þeirra birtust við slíkt efni. Viðskipti erlent 8. október 2021 08:45
Gríðarháar niðurgreiðslur til jarðefnaeldsneytisiðnaðarins Jarðefnaeldsneytisiðnaður heimsins fær um ellefu milljónir Bandaríkjadala í niðurgreiðslur frá ríkjum heimsins á hverri einustu mínútu allan ársins hring. Erlent 6. október 2021 07:41
Enginn árangur án breytinga á orkustefnu heimsins Formaður Hringborðs norðurslóða segir að ef ekki takist að breyta orkukerfum heimsins náist aldrei árangur í baráttunni gegn loftlagsbreytingunum. Þing Hringborðsins í Hörpu í næstu viku sé mjög mikilvægt í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow síðar í mánuðinum. Innlent 5. október 2021 19:41
Vilja að ný ríkisstjórn lýsi yfir neyðarástandi í loftslagsmálum Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar krefjast þess að loftslagsmál verði í kjarna nýs ríkisstjórnarsamstarfs og að þau komi sér strax að verki. Segja þau að síðastliðin fjögur ár hafi loftslagsstefna stjórnvalda verið „ófullnægjandi og einkennst af hálfkáki.“ Innlent 4. október 2021 12:33
Stór og mikill borgarísjaki undan ströndum Melrakkasléttu Stærðarinnar borgarísjaki lónar nú skammt undan ströndum Melrakkasléttu, við Hraunhafnartanga. Sennilegt er að hann hafi brotnað úr Grænlandsjökli. Innlent 1. október 2021 11:09
Óbreyttur hraði orkuskipta dugar ekki til Jarðefnaeldsneytisnotkun Íslendinga verður ennþá yfir þeim mörkum sem þurfa að nást til að Ísland geti staðið við núverandi skuldbindingar sínar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030. Orkumálastjóri segir að skipuleggja verði orkuskipti núna strax til að markmiðin náist á tilskildum tíma. Innlent 1. október 2021 08:01
Á þriðja tug tegunda bætast við lista útdauðra dýra Bandaríkin hafa lýst 23 dýrategundir útdauðar, þar á meðal timburdólinn. Vísindamenn segjast hafa gert allt til að reyna að finna fleiri dýr þessara tegunda en ekkert hafi gengið. Ekkert annað sé því í stöðunni en að lýsa þær útdauðar. Erlent 30. september 2021 10:28
Börn í dag upplifa mun alvarlegri loftslagsáhrif en fyrri kynslóðir Ný skýrsla Barnaheilla - Save the Children um áhrif loftslagsbreytinga er komin út. Heimsmarkmiðin 28. september 2021 09:42