Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 16:01 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, fellur frá áformum um að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps og alvarlegra líkamsárása í þjónustu við fatlað fólk. Hann vill mæta áhyggjum fatlaðs fólks af öryggi sínu. Vísir/Viktor Freyr Fallið verður frá áformum um að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps og alvarlegra líkamsárása í þjónustu við fatlað fólk. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hyggst fella breytinguna úr frumvarpsdrögum til að mæta áhyggjum fatlaðs fólks af öryggi sínu.
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfðu gagnrýnt að aflétta ætti banninu án þess að áhrif á öryggi þjónustunotenda væru metin. „Félags- og húsnæðismálaráðherra telur afar mikilvægt að mæta áhyggjum fatlaðs fólks af öryggi sínu og hyggst fella breytinguna brott úr frumvarpinu áður en það verður lagt fram á Alþingi,“ segir í svarinu. Gamall dómur geti útilokað stuðningsfjölskyldu Tillagan fól í sér að fólk sem hefði hlotið dóm fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir yrði ekki lengur sjálfkrafa útilokað frá störfum í þjónustu við fatlað fólk. Í staðinn yrði lagt mat á hæfi hvers umsækjanda. Bann vegna kynferðisbrota átti áfram að gilda. Ráðuneytið segir breytinguna hafa verið lagða til eftir ábendingar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, um ósamræmi við barnaverndarlög. Samkvæmt þeim sæti önnur brot en kynferðisbrot einstaklingsbundnu mati þar sem horft sé til alvarleika brotsins, starfsins og þess tíma sem liðinn sé frá brotinu. Í þjónustu við fatlað fólk hafi hins vegar gilt víðtækara bann, óháð því hversu langt sé liðið frá broti eða hvernig aðstæður viðkomandi hafi breyst. Ráðuneytið nefnir sem dæmi að einstaklingur sem hafi fengið dóm fyrir fjörutíu árum fái sjálfkrafa synjun um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda fatlaðs barns. Það geti gerst þótt jákvæðar umsagnir liggi fyrir og viðkomandi geti sýnt fram á verulega breyttar aðstæður. Slík synjun geti verið andstæð hagsmunum fatlaðs einstaklings sem þurfi á stuðningi að halda. Tillögunni hafi verið ætlað að skapa svigrúm til að meta slíkar aðstæður og stuðla samhliða að vernd og öryggi fatlaðs fólks. Vöruðu við hættu á ofbeldi Einhverfusamtökin bentu í umsögn sinni á að þjónustunotendur gætu verið mjög háðir aðstoð annarra og átt takmarkaða möguleika á að greina frá ofbeldi eða leita sér hjálpar, meðal annars vegna lítils eða einskis talmáls. Samtökin töldu samræmingu við önnur lög ekki nægja sem rök fyrir breytingunni. Fyrst þyrfti ítarlegan rökstuðning og mat á áhrifum hennar á öryggi þjónustunotenda. ÖBÍ gerði einnig athugasemdir við ákvæðið. Samtökin bentu á að fatlað fólk væri mun útsettara fyrir ofbeldi en annað fólk. Mikið væri óunnið við að vernda það gegn ofbeldi og áherslur stjórnvalda ættu að taka mið af því. Ráðuneytið segir frumvarpsdrögin einmitt hafa verið birt í samráðsgátt til að kalla eftir umsögnum og sjónarmiðum þeirra sem málið varðar. Ráðherra hyggst nú taka breytinguna úr drögunum áður en frumvarpið verður lagt fram.
Málefni fatlaðs fólks Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Félagsmál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira