Býst við að Síldarvinnslan verði skráð í Kauphöll í maí Forstjóri Síldarvinnslunar býst við að félagið verði skráð í Kauphöllina í maí. Ekki verða gefin út ný hlutabréf heldur ætli stærstu eigendur að selja af sínum hlutum við skráningu í félaginu. Viðskipti innlent 20. febrúar 2021 13:31
Stefnt á skráningu Síldarvinnslunnar í Kauphöllina Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar í Neskaupstað tilkynntu fyrir fáeinum dögum þá ákvörðun sína að hefja skráningu félagsins í Kauphöll. Gangi allur undirbúningur eftir er stefnt að skráningu á fyrri helmingi þessa árs. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta. Viðskipti innlent 20. febrúar 2021 09:59
Eignast helmingshlut í Hringrás og HP Gámum Samkomulag hefur náðst um að TFII framtakssjóður eignist helmingshlut í Hringrás og HP Gámum. Viðskipti innlent 19. febrúar 2021 07:44
Íslandsbanki verður viðskiptavaki hlutabréfa Arion banka Arion banki hefur undirritað nýjan samning við Íslandsbanka um að Íslandsbanki gegni hlutverki viðskiptavaka á hlutabréfum útgefnum af Arion banka sem skráð eru í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Viðskipti innlent 18. febrúar 2021 19:10
Ásthildur Margrét hættir í stjórn Marel Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 18. febrúar 2021 14:58
Olíusjóði Noregs verður beitt til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja Forsvarsmenn norska olíusjóðsins ætla að beita sér fyrir því að fleiri konur fái sæti í stjórnum fyrirtækja og félaga sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Sjóðurinn er einn sá stærsti í heiminum og á 9.202 fyrirtækjum um heiminn allan Viðskipti erlent 15. febrúar 2021 14:11
Goldman Sachs kaupir meirihluta í Advania Sjóður í eigu fjárfestingabankans Goldman Sachs hefur fest kaup á meirihluta í Advania. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Sjóðurinn bætist þannig í hluthafahóp Advania sem samanstendur meðal annars af VIA Equity og lykilstjórnendum á Norðurlöndum. Kaupin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda. Viðskipti innlent 15. febrúar 2021 07:23
Lent á Íslandi eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu Icelandair endurheimti í dag tvær fyrstu Boeing 737 Max-þotur sínar eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu og lentu þær í Keflavík með stuttu millibili upp úr hádegi. Flugstjóri fyrri vélarinnar segir endurkomu þeirra gefa von um nýja og betri tíma fyrir félagið. Innlent 14. febrúar 2021 21:36
Bregðist ferðasumarið þyrfti Icelandair sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að hefja áætlunarflug til borga í Bandaríkjunum snemma í sumar. Stór hluti af 51 milljarðs króna tapi félagsins á síðasta ári sé vegna afskrifa á flugvélum. Taki ferðalög ekki við sér í sumar þurfi félagið sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð í haust. Viðskipti innlent 14. febrúar 2021 18:00
Líf og dauði í ferðaþjónustunni í Víglínunni Eftir að bólusetningar gegn kórónuveirunni hófust hér á landi og víða um heim hafa vonir glæðst um að ferðaþjónustan fari að taka við sér. Hvenær það verður ræðst bæði af aðstæðum innanlands og utan og hversu hratt tekst að bólusetja meirihluta þjóðarinnar og heimsbyggðina. Innlent 14. febrúar 2021 16:51
Fyrstu MAX-vélarnar komnar til landsins Fyrstu tvær Boeing 737 MAX-þotur Icelandair lentu á Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum í dag. Alls á Icelandair sex slíkar vélar. Innlent 14. febrúar 2021 14:27
Sá sjötti sem kemur til greina í fimm manna stjórn Icelandair Steinn Logi Björnsson, sem starfaði um árabil hjá Icelandair, mun gefa kost á sér í stjórn Icelandair group. Hann er sá sjötti sem gefið hefur kost á sér til setu í fimm manna stjórn félagsins. Aðalfundur félagsins fer fram 12. mars. Viðskipti innlent 13. febrúar 2021 13:44
Festu kaup á fasteign Sóltúns Reginn hf., eitt stærsta fasteignafélag landsins, gekk frá kaupum á 90 prósenta hlut í félaginu Sóltúni fasteign ehf. sem á fasteign hjúkrunarheimilisins Sóltúns við samnefnda götu í Reykjavík. Um þetta er fjallað í tilkynningu sem fylgdi ársreikningi Regins. Viðskipti innlent 13. febrúar 2021 09:50
Ársreikningar fyrirtækja nú opnir öllum hjá Creditinfo Creditinfo hefur opnað fyrir gjaldfrjálsan aðgang að ársreikningum fyrirtækja. Öllum er heimilt að sækja upplýsingar um stöðu fyrirtækja hjá Creditinfo með þessum hætti. Viðskipti innlent 12. febrúar 2021 20:09
Leggur til að stjórnin verði óbreytt Tilnefninganefnd Icelandair Group hefur lagt til að stjórn félagsins verði óbreytt. Aðalfundur félagsins fer fram hinn 12. mars næst komandi. Viðskipti innlent 12. febrúar 2021 11:06
Icelandair selur restina af hlut sínum í Icelandair Hotels Icelandair Group hefur gert samning við Berjaya um sölu félagsins á 25% eftirstandandi hlut í hótelfélaginu. Berjaya á fyrir 75% hlut í Icelandair Hotels. Söluverðið er um 440 milljónir króna eða 3,4 milljónir Bandaríkjadala og kemur til greiðslu við afhendingu hlutarins og þegar skilmálar samningsins hafa verið uppfylltir. Viðskipti innlent 11. febrúar 2021 09:33
Íslandsbanki tvöfaldaði hagnað sinn á síðasta ársfjórðungi Íslandsbanki hagnaðist um 3,5 milljarða króna eftir skatta á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Er um að ræða tvöföldun frá sama tímabili árið 2019 þegar hagnaður nam 1,7 milljarði króna. Viðskipti innlent 10. febrúar 2021 23:29
Arion banki fer úr einum milljarði í tólf og hálfan Arion banki hagnaðist um 12,5 milljarða króna á síðasta ári. Þá var afkoma bankans af áframhaldandi starfsemi 16,7 milljarðar króna á árinu. Arðsemi eiginfjár var 6,5 prósent. Viðskipti innlent 10. febrúar 2021 18:23
Hrap hjá Icelandair í fyrstu viðskiptum Hlutabréfaverð í Icelandair hefur fallið um þrettán prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Viðskipti með bréf í flugfélaginu hafa numið tæplega 200 milljónum króna það sem af er degi. Verð á bréfum eftir lækkun er 1,58 krónur á hlut. Viðskipti innlent 10. febrúar 2021 10:18
Rekstur Icelandair í ár aðeins þrjátíu prósent af því sem var fyrir faraldur Icelandair gerir ráð fyrir að rekstrarumfang félagsins á þessu ári verði aðeins þrjátíu prósent af því sem var áður en heimsfaraldurinn skall á. Forstjórinn Bogi Nils Bogason segir verulega óvissu um hve marga starfsmenn verði hægt að endurráða í sumar. Viðskipti innlent 9. febrúar 2021 20:12
Segir Icelandair getað lifað fram á vor 2022 þótt ekkert fari í gang Forstjóri Icelandair segir félagið geta lifað í rúmt ár til viðbótar án þess að nokkuð fari í gang og kveðst bjartsýnn á að þurfa ekki að nýta ríkisábyrgð sem Alþingi samþykkti síðastliðið haust. Fyrirtækið var rekið með 51 milljarðs króna tapi á síðastliðnu ári. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Viðskipti innlent 9. febrúar 2021 13:16
Áhrifavaldar og áhugafjárfestar Margir fagfjárfestar súpa hveljur yfir atburðarás síðustu vikna, þar sem hlutabréf einstakra fyrirtækja, sem vogunarsjóðir höfðu að sögn tekið miklar skortstöður í, voru keypt af áhugafjárfestum í svo miklum mæli að verð þeirra hækkaði jafnvel um þúsundir prósenta. Skoðun 9. febrúar 2021 07:31
Icelandair tapaði 51 milljarði króna í fyrra Icelandair Group tapaði 51 milljarði króna árið 2020. Faraldur nýju kórónuveirunnar og ferðatakmarkanir höfðu gífurleg áhrif á félagið og dróst sætaframboð saman um 81 prósent á árinu. Viðskipti innlent 8. febrúar 2021 19:53
Risadagur í Kauphöllinni hjá Icelandair eftir flökkusöguhelgi Viðskipti með bréf í flugfélaginu Icelandair voru 444 talsins í dag sem er fjórði stærsti dagurinn í fjölda viðskipta frá hlutafjárútboðinu síðastliðið haust og sá stærsti á árinu 2021. Veltan nam 544 milljónum króna svo meðalstærð viðskipta var 1,2 milljónir króna. Viðskipti innlent 8. febrúar 2021 16:31
Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra. Viðskipti innlent 7. febrúar 2021 16:55
Icelandair auglýsir stöður flugstjóra Icelandair hefur undanfarið auglýst stöður flugstjóra, bæði fyrir farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX og Boeing 757 farþegaþotum, á meðal starfandi flugmanna hjá félaginu. Viðskipti innlent 7. febrúar 2021 13:31
Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila Bandaríski fjárfestirinn Michelle Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila sem haldi á hlutunum fyrir sig. Hún sé þó raunverulegur eigandi hlutanna, en er þó ekki á meðal tuttugu stærstu hluthafa samkvæmt hluthafalista. Viðskipti innlent 4. febrúar 2021 20:47
Kaupa Esso-húsið á 1,2 milljarða króna Félag hjónanna Birgis Bieltvedt fjárfestis og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, Eyja fjarfestingarfélag, hefur keypt fasteignina við Suðurlandsbraut 18, Esso-húsið svokallaða, af fasteignaþróunarfélaginu Festi. Kaupverðið er 1,2 milljarðar króna. Viðskipti innlent 4. febrúar 2021 14:52
Síldarvinnslan undirbýr skráningu í Kauphöll Stjórn Síldarvinnslunnar hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað Nasdaq Iceland og hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans til að hafa umsjón með verkefninu. Viðskipti innlent 4. febrúar 2021 12:42
Sextán milljarða króna hagnaður á krefjandi ári Hagnaður Marel nam 102,6 milljónum evra eða um 16 milljörðum króna á síðasta ári og dróst saman um 6,8% frá árinu 2019. Alls námu tekjur félagsins 1.237,8 milljónum evra í fyrra eða um 191 milljarði króna og drógust þær saman um 3,6% í evrum talið. Viðskipti innlent 4. febrúar 2021 11:44