Rússar vilja hengja hermennina Rússar vilja hengja hermenn úr Azov-herdeildinni. Þeir segja hermennina eiga skilið niðurlægjandi dauðdaga en Úkraínumenn segja ummælin viðurstyggileg. Erlent 30. júlí 2022 16:11
„Fjöldamorð á úkraínskum stríðsföngum“ Rússar og Úkraínumenn saka hvorir aðra um að hafa orðið fimmtíu manns að bana í sprengjuárás á stríðsfangelsi í Donetsk héraði. Úkraínuforseti kallar árásina stríðsglæp og kallar eftir rannsókn Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossins. Erlent 30. júlí 2022 08:51
Úkraínuforseti birtist óvænt á stuttermabol á höfninni í Odessa Forseti Úkraínu heimsótti óvænt hafnarborgina Odessa ásamt sendiherrum sjö ríkja í dag til að kynna sér undirbúning fyrir útflutning á milljónum tonna af korni frá Úkraínu. Vonir eru bundnar við að útflutningurinn geti hafist í dag eða á morgun. Erlent 29. júlí 2022 20:01
Putin heldur áfram að ofsækja fjölmiðla Rússnesk stjórnvöld halda áfram að ofsækja fréttamenn og fjölmiðla sem voga sér að lýsa andstöðu við innrás Rússa í Úkraínu og kalla hana stríð en ekki sérstaka hernaðaraðgerð. Fjölmiðlaráð Rússlands hefur krafist þess að Hæstiréttur landsins afturkalli starfsleyfi vefútgáfu eina frjálsa dagblaðsins í landinu. Erlent 29. júlí 2022 13:13
Verðbólga á evrusvæðinu aldrei verið meiri Samræmd verðbólga innan evrusvæðisins hefur náð nýju hámarki, í 8,9 prósentum. Rekja má þessa miklu verðbólgu að hluta til hás orkuverðs vegna stríðs Rússa í Úkraínu. Þrátt fyrir þetta hefur hagvöxtur aukist lítillega á þessum öðrum ársfjórðungi. Viðskipti erlent 29. júlí 2022 11:11
Eldfjöll, sundlaugar, ís og nammi í uppáhaldi Skapandi sumarnámskeið ætlað úkraínskum börnum sem flúið hafa hingað til lands hefur vakið mikla lukku, en þar fá þau útrás fyrir sköpunargleðina. Þau segjast hrifin af Íslandi, en eldfjöll, sundlaugar og rjómaís eru á meðal þess sem þeim finnst best við landið. Innlent 29. júlí 2022 08:31
Vörpuðu sprengjum á háskólabyggingu í Kharkív Næst stærsta borg Úkraínu, Kharkív, varð fyrir sprengjuárásum í nótt og í morgun. Borgarstjórinn Ihor Terekhov segir að sprengjur hafi lent í norðuaustuhluta borgarinnar á tveggja hæða húsi og á háskólabyggingu. Erlent 29. júlí 2022 07:02
Úkraína ætlar að útvega Evrópu rafmagn Almenningur í Þýskalandi er byrjaður að undirbúa sig undir kaldan vetur vegna þess að Rússar hafa meira og minna skrúfað fyrir gasflutninga til landsins. Í Köln er hiti lækkaður í mörgum fjölbýlishúsum yfir nóttina til að spara gasið. Erlent 28. júlí 2022 21:47
Íbúar fari í kaldar sturtur til þess að spara gas Stjórnvöld í þýsku borginni Hannover hafa skrúfað fyrir heitt vatn í byggingum sem opnar eru almenningi til þess að spara gas en Þjóðverjar hafa kvartað yfir skertu flæði á gasi frá Rússlandi. Erlent 28. júlí 2022 18:43
Fimm drepnir og 25 særðir í árás Rússa á Kropyvnytskyi Fimm voru drepnir og 25 særðust í loftárás Rússa á Kropyvnytskyi fyrr í dag. Rússar halda áfram loftárásum sínum í suðri og austri Úkraínu en eru auk þess farnir að beina sjónum sínum aftur að Kænugarði í fyrsta skiptið í margar vikur. Erlent 28. júlí 2022 15:58
Bjóða Rússum skipti á körfuboltakonunni og Kaupmanni dauðans Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að fá bandarísku körfuboltakonuna Brittney Griner heim og nú berast fréttir um að bandarísk yfirvöld hafi nú gert Rússum tilboð. Körfubolti 28. júlí 2022 07:30
Segir eldflaugum hafa verið skotið frá Hvíta-Rússlandi Héraðsstjórinn í Chernhiv, Viacheslav Chaus, segir eldflaugum hafa verið skotið á svæðið í morgun. Hann segir flaugarnar hafa komið frá Hvíta-Rússlandi. Erlent 28. júlí 2022 06:54
Gasverð í Evrópu hefur hækkað um tvö prósent Gasverð hefur hækkað á mörkuðum í dag eftir að Rússar skertu enn frekar gasflutninga sína til Þýskalands og annarra mið-Evrópuríkja. Erlent 27. júlí 2022 22:29
Úkraínuforseti segir 40 þúsund Rússa hafa fallið í innrásinni Úkraínuforseti segir að fjörutíu þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í innrásinni í Úkraínu. Her landsins hefur vaxið ásmegin eftir að hann fékk langdræg og nákvæm eldflaugakerfi frá Bandaríkjunum og Evrópuríkjum. Vonast er til að kornútflutningur geti hafist innan fárra daga. Erlent 27. júlí 2022 22:00
Skipafélög fara sér hægt við að hefja kornútflutning frá Úkraínu Skipafélög eru varkár varðandi útflutning á korni frá Úkraínu sem enn hefur ekki hafist þrátt fyrir samkomulag Rússa og Úkraínumanna fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Rússar hafa í tvígang gert loftárásir á Odessa eftir að samkomulagið var undirritað og siglingaleiðir eru krökkar af tundurduflum. Erlent 27. júlí 2022 15:22
Ekki víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn Á mánudag tilkynnti rússneska fyrirtækið Gazprom að flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna myndi skerðast niður í 20 prósent. Að sögn bandarískra embættismanna hefur gas minnkun Rússa verið þeirra „versti ótti.“ Umræður vegna aukinnar kjarnorkunotkunar séu á næsta leyti og ekki sé víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn. Erlent 26. júlí 2022 23:41
Átök Rússlands og vesturveldanna ná út í geim Rússar hyggjast slíta sig frá samstarfinu um Alþjóðlegu geimstöðina árið 2024 og byggja upp sína eigin geimstöð. Yuri Borisov, nýr yfirmaður rússnesku geimferðastofnunarinnar Roskosmos, segir Rússar ætla að efna allar skuldbindingar sínar fram að því en þeir hafa átt í samstarfi við Bandaríkin og fleiri ríki um rekstur Alþjóðlegu geimstöðvarinnar frá árinu 1998. Erlent 26. júlí 2022 16:08
Sprengjum rigndi í Odesa, Kharkiv og Mykolaiv í nótt Rússar hafa látið sprengjum rigna víða í Úkraínu í nótt. Fregnir hafa borist af árásum á Kharkiv, Mykolaiv og hafnarborgina Odesa. Árásir á Odessa hafa sérstaklega verið gagnrýndar en ekki liðu nema nokkrir klukkutímar frá samkomulagi um kornútflutning frá Úkraínu uns sprengjum var skotið á borgina, þvert á hið nýgerða samkomulag. Erlent 26. júlí 2022 07:38
Rússar skerða gasútflutninginn á ný Volodómír Zelenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að standa í Gas-stríði við Evrópu og að endurteknar lokanir á Nordstream leiðslunni séu hugsaðar til að hræða Evrópubúa og draga úr andstöðunni við stríðið í Úkraínu. Innlent 26. júlí 2022 07:09
Lavrov ferðast um Afríku til að styrkja tengslin Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands flaug til Kongó-Brazzaville í morgun en hann er á ferðalagi um álfuna í von um að styrkja tengslin við önnur ríki en í Evrópu. Afríkuríki hafa ekki tekið þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússum vegna Úkraínustríðsins og vonast Rússar til að góðvilji sé til staðar til að styrkja tengslin enn frekar. Erlent 25. júlí 2022 13:58
Stjórnarandstæðingur handtekinn í Rússlandi Rússneski stjórnmálamaðurinn Leonid Gozman var í dag handtekinn af lögregluþjónum í Moskvu. Gozman er leiðtogi stjórmálaflokksins Bandalag hægriafla. Erlent 25. júlí 2022 12:45
Eurovision verður í Bretlandi á næsta ári Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Bretlandi á næsta ári. Úkraína sigraði keppnina í ár og ætti því samkvæmt reglunum að halda keppnina á næsti ári en ekki er hægt að tryggja öryggi allra gesta þar vegna innrásar Rússa inn í landið. Því var ákveðið að keppnin færi fram í öðru landi. Lífið 25. júlí 2022 11:29
Vesturlönd sníði reglur sínar eftir hentugleika Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þvertekur fyrir það að Rússar hafi valdið hungursneyð um allan heim. Hann segir Vesturlönd vera að reyna að sýna fram á að þau séu sterkari en aðrar þjóðir. Erlent 24. júlí 2022 23:04
Dularfull dauðsföll rússneskra auðmanna Tæpur tugur rússneskra milljarðamæringa hefur látist við grunsamlegar aðstæður frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Í sumum tilfellum hefur öll fjölskylda milljarðamæringanna verið myrt. Erlent 24. júlí 2022 14:31
Úkraínski herinn sækir fram í hernumdu héraði Úkraínuforseti segir hersveitum sínum hafa orðið ágengt í Kherson héraði „skref fyrir skref“. Erlent 24. júlí 2022 12:20
Árásirnar sýni að Rússum sé ekki treystandi Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um villimennsku í kjölfar árása á hafnir Odessa, sem gerðar voru örfáum klukkutímum eftir undirritun samnings um útflutning á korni frá landinu. Erlent 24. júlí 2022 07:50
Sprengjum varpað á höfnina klukkutímum eftir undirritun samningsins Rússar vörpuðu sprengjum á höfn úkraínsku borgarinnar Odessa í dag, aðeins degi eftir að hafa skrifað undir samning við Úkraínumenn um að hleypa kornútflutningi aftur af stað þaðan. Erlent 23. júlí 2022 12:42
Gagnsókn í Kherson og vopnahlé kemur ekki til greina Minnst þrjú eru látin eftir að þrettán flugskeytum var skotið á herstöð úkraínska hersins og lestarstöðina í Kirovohrad í morgun. Úkraínuforseti segir vopnahlé ekki koma til greina og enn er hart barist um borgina Kherson. Erlent 23. júlí 2022 09:32
Verð á korni lækkar í það sem var fyrir stríð Eftir að samningar náðust um útflutning á Úkraínsku korni hefur verð á korni í heiminum lækkað snarlega og hefur ekki verið jafn lágt síðan fyrir innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 23. júlí 2022 08:53
Segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu Toria Nuland, starfsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu og láti rússneskar fjölskyldur ættleiða þau. Hún segir Rússa hafa alls rænt allt að þúsund börnum. Erlent 22. júlí 2022 23:35