Leigufélag lækkar leiguna um þriðjung í desember Leigufélagið Bríet hyggst veita leigjendum sínum 30 prósenta afslátt af leigu nú í desembermánuði. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum. Viðskipti innlent 30. nóvember 2022 08:05
Hefja mestu uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi Fyrsta skóflustunga að mestu uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi var tekin í dag en reiturinn er þar sem Hafnarfjarðarbíó og Kaupfélag Hafnarfjarðar voru áður. Til stendur að reisa níu þúsund fermetra blandað íbúða- og verslunarhúsnæði á svæðinu auk hótels og bókasafns. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir í um 21 ár og er markmiðið að tengja saman Fjarðargötu og Strandgötu. Innlent 29. nóvember 2022 20:10
Segir borgina í forystu en lánastofnanir virðist draga lappirnar Oddiviti Framsóknar í borginni segir sjaldan eða aldrei annað eins lóðaframboð hafa verið í boði þar og nú. Hann hafnar með öllu gagnrýni Samtaka iðnaðarins um að borgin dragi lappirnar í málinu. Hins vegar sé áhyggjuefni að lánastofnanir virðist tregari en áður til að lána til byggingarframkvæmda. Innlent 29. nóvember 2022 12:00
Verðbólgan mjakast lítillega niður á við Verðbólga síðustu tólf mánaða lækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,3 prósent en stóð í 9,4 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 29. nóvember 2022 09:07
Segir stærsta hluta nýrra íbúða enda í höndum eignafólks Samtök iðnaðarins gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir lóðarskort. Uppbygging nýs íbúðarhúsnæðis sé ekki að mæta þörf. Þá taki skipulagsferlið í kringum nýbyggingar alltof langan tíma. Formanni samtaka leigjanda líst ekkert á stöðuna og segir það á ábyrgð ríkisins og sveitarfélaga að útvega almenningi húsnæði á viðráðanlegu verði. Innlent 28. nóvember 2022 22:41
Húsnæðisverð leitar upp á við þrátt fyrir minni eftirspurn Þrátt fyrir að íbúðum í byggingu hafi fjölgað um ríflega fimmtung milli ára vantar enn að minnsta kosti þúsund til að uppfylla þörfina að mati sérfræðings hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Töluvert hafi dregið úr eftirspurn eftir húsnæði en verð samt haldið áfram að hækka. Innlent 28. nóvember 2022 13:30
Ábyrgð Seðlabanka eða ríkisstjórnar? Vaxtahækkun Seðlabankans á miðvikudag er enn einn vitnisburðurinn um að ríkisstjórninni hefur mistekist að beita tækjum ríkisfjármálanna til að sporna gegn þenslu. En það sem er kannski alvarlegra er algjört sinnuleysi stjórnarmeirihlutans gagnvart því verkefni að verja viðkvæma hópa fyrir verðbólgu og hækkandi húsnæðiskostnaði, tryggja að auknar byrðar dreifist með sanngjörnum hætti um samfélagið. Skoðun 24. nóvember 2022 18:00
Uppbygging íbúðarhúsnæðis og metfjöldi lóðaumsókna Að búa í víðfeðmu fjölkjarna samfélagi getur oft á tíðum verið flókið en það er jafnframt mjög lærdómsríkt því hver og einn byggðarkjarni býr yfir einstakri sögu sem einkennir hann og skilgreinir. Frá því ég tók sæti sem bæjarfulltrúi í maí hefur ýmislegt gengið á eins og venja er fyrir á þessum vettvangi. Skoðun 24. nóvember 2022 11:00
Hver fasteignaauglýsing fær nú umtalsvert færri smelli Hver fasteignaauglýsing fær að jafnaði umtalsvert færri smelli nú en áður sem gefur til kynna að færri séu að leita sér að íbúð. Í febrúar síðastliðinn, þegar framboð íbúða var í lágmarki, fékk hver auglýsing á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 149 smelli á dag en í fyrri hluta nóvember var sú tala komin niður í 42. Viðskipti innlent 24. nóvember 2022 07:52
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. Viðskipti innlent 23. nóvember 2022 11:34
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. Viðskipti innlent 23. nóvember 2022 09:00
Hvernig byggja fjárfestar ódýrar íbúðir? Í grein sem ég ritaði í rit Sameykis, „Stærri leigumarkaður hjálpar tekjulágum“, benti ég á þá staðreynd að erfitt er að byggja „ódýrt húsnæði". Það sem gerist oftar er að nýjar fasteignir eru byggðar (eða eldri endurnýjaðar) og þar sem nýtt er dýrara en gamalt er nauðsynleg leiga til að gera slíkar fjárfestingar aðlaðandi hærri en á eldri fasteignum. Skoðun 21. nóvember 2022 08:00
Nýi Skerjafjörður og flugvöllurinn Þann 14. september sl. ritaði formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar grein um það sem hann kallaði „Nýja Skerjó“ og talaði þar um uppbyggingu 685 íbúða. Skoðun 19. nóvember 2022 14:31
Uppbygging hafin á fjölbreyttri byggð á Heklureit Tæplega tvö hundruð íbúðir verða í fyrstu tveimur húsunum af fimm sem fyrirhugað er að reisa á Heklureitnum og verða tilbúnar eftir um þrjú ár. Skipulagið tengist einnig borgarlínu og uppbyggingu Hlemmtorgs í næsta nágrenni. Innlent 18. nóvember 2022 19:20
Fatlað fólk mun líklegra til að vera á leigumarkaði Fatlað fólk er mun líklegra til að vera á leigumarkaði og borga stærri hluta tekna sinna í húsnæðiskostnað en aðrir á Íslandi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði fyrir ÖBÍ réttindasamtök. Innlent 17. nóvember 2022 18:23
„Þetta kom mér alls ekki á óvart“ Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur segir margar skýringar á því hvers vegna mannfjöldi var oftalinn um tíu þúsund hér á landi, eins og kom í ljós í nýju manntali Hagstofunnar. Ein sú helsta séu útlendingar sem flytja aftur til síns heima. Innlent 17. nóvember 2022 08:47
Innviðaráðherra vill styrkja stöðu leigusala Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra innviðamála hefur nú í þriðja sinn lagt fram frumvarp um breytingu á húsaleigulögum sem kveður á um skráningaskyldu á leigusamningum og um breytingu á leigufjárhæð. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um breytingar á 37. gr núverandi húsaleigulaga um sanngjarna húsaleigu. Skoðun 17. nóvember 2022 07:00
Óvænt hækkun á verði í fjölbýli Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent milli september og október. Verð á sérbýli lækkar um 0,7 prósent en verð íbúða í fjölbýli hækkar um 0,9 prósent. Viðskipti innlent 16. nóvember 2022 10:34
Leigjendum fórnað á altari fasteignafélaga Formaður Leigjendasamtakanna segir áform Reykjavíkurborgar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á næstu árum lítið gagnast leigjendum vegna þess að hún væri öll á forsendum fasteignafélaga. Eina vonarglætan fyrir leigjendur væri í uppbyggingu verkalýðsfélaganna sem enn væru aðeins með lítinn hluta leigumarkaðarins. Innlent 9. nóvember 2022 19:20
Byggjum lífsgæðaborg Í lok síðustu viku fór fram kynningarfundur Reykjavíkur um húsnæðisuppbyggingu í borginni. Þessi árlegi fundur hefur nú farið fram síðustu 10 ár og var upphaflega hugsaður sem vettvangur til upplýsingagjafar um stöðu skipulagsmála og íbúðauppbyggingar í Reykjavík og til að blása lífi í koðnaðan byggingariðnað eftir þunga tíð eftirhrunsáranna. Skoðun 9. nóvember 2022 14:31
Hversu mörg ljós viltu slökkva herra borgarstjóri? Á föstudaginn síðasta var haldinn kynningarfundur um húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Var fundurinn sem haldinn var í Tjarnarsal ráðhússins vel sóttur af hagsmunaaðilum í húsnæðis- og mannvirkjageiranum. Bar fundurinn yfirskriftina “Hvernig byggjum við lífsgæðaborg?” Skoðun 7. nóvember 2022 07:00
Lóðir fyrir allt að 3.000 nýjar íbúðir á ári næstu fimm árin í Reykjavík Borgarstjóri segir að Reykjavík muni ekki ráða hraða uppbyggingar íbúðahúsnæðis á næstu árum sem muni ráðast af fjármögnun fjármálastofnana. Hann óttast að verið sé að framkalla kulnun á uppbyggingarmarkaði húsnæðis. Innlent 4. nóvember 2022 19:21
Borgarstjóri hefur áhyggjur af kulnun í íbúðaframkvæmdum Borgarstjóri segir að ekki muni standa á Reykjavíkurborg að hafa nægar lóðir í boði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í borginni. Hann óttast hins vegar að flöskuháls geti myndast vegna tregðu lánastofnana og getu byggingaraðila til að halda í við eftirspurnina. Innlent 4. nóvember 2022 15:19
Frysta leiguverð næstu þrjá mánuði Stjórn Brynju leigufélags hyggst frysta leiguverð næstu þrjá mánuði. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé tekin í ljósi mikillar verðbólgu á þessu ári. Viðskipti innlent 4. nóvember 2022 07:54
Hvernig byggjum við lífsgæðaborg? Kynningarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur Kynningarfundur um uppbyggingu í húsnæðismálum í Reykjavík verður haldinn í Tjarnarsal ráðhússins á morgun, föstudag. Húsið opnar kl. 8.30 og hefst fundurinn kl. 9. Samstarf 3. nóvember 2022 15:42
Borg í vexti þarf fjölbreyttan og sveigjanlegan húsnæðismarkað Reykjavík er í miklum vexti þessi árin. Aldrei hafa fleiri nýjar íbúðir komið inn á húsnæðismarkað í Reykjavík eins og síðustu ár. Borgin stefnir að því að bæta áfram í þennan fjölda og því ljóst að framundan mikið uppbyggingarskeið í Reykjavík. Samstarf 2. nóvember 2022 14:13
Hægt á húsnæðisuppbyggingu til að verja seljendur lúxusíbúða í miðbænum Í ársbyrjun 2019 kom út skýrsla átakshóp Þjóðhagsráðs um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu húsnæðismarkaði. Þar var máluð kolsvört mynd af stöðunni á húsnæðismarkaði, miklum húsnæðisskorti og lélegri framleiðni á íslenskum húsbyggingarmarkaði. Skoðun 1. nóvember 2022 08:32
Verðbólga hækkar lítillega og mælist 9,4 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,4 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 27. október 2022 09:15
Fimm ný ríkisstörf á Akureyri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst flytja fimm opinber sérfræðistörf til Akureyrar. Nýtt teymi verður stofnað í bænum og 21 stöðugildi verða á skrifstofum stofnunarinnar á Akureyri. Ráðherra fagnar fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Innlent 25. október 2022 21:13
Réttur og úrræði leigusala þegar vanskil verða á leigugreiðslum Til Húseigendafélagsins leita leigusalar oftsinnis og óska eftir aðstoð þess, þegar leigjendur greiða húsaleigu ekki á tilsettum tíma, eða alls ekki. Hér er stiklað á stóru um framgang slíkra mála. Skoðun 25. október 2022 10:30