Viðskipti innlent

Live verður Lifa

Agnar Már Másson skrifar
Guðmundur Þ. Þórhallsson er framkvæmdastjóri Lifa, eða Lifu en ekki liggur fyrir hvort beygja eigi nafnið í kvenkyni eða hvorugkyni.
Guðmundur Þ. Þórhallsson er framkvæmdastjóri Lifa, eða Lifu en ekki liggur fyrir hvort beygja eigi nafnið í kvenkyni eða hvorugkyni.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið „Lifa lífeyrissjóður“ að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá sjóðnum.

„Lifa er fyrst og fremst hugsað sem eðlileg þróun heitis sjóðsins, þar sem styttingin Live var orðin ráðandi,“ segir í tilkynningu sjóðsins.

„Lifa er fallegt íslenskt heiti með merkingu sem tengir beint við hlutverk okkar, að vera til staðar – fyrir lífstíð.“

Fram kemur að í nafninu sé nafnháttur sagnarinnar „að lifa“ gerður að sérnafni. 

Ekki er tekið fram hvort þetta nýyrði eigi að vera í kvenkyni (þf. „Lifu“) eða hvorugkyni (þf. „Lifa“) þar sem nafnið er haft í nefnifalli í alls staðar þar sem það kemur fyrir í tilkynningunni.

„Nýja nafnið endurspeglar framtíðarsýn sjóðsins og þann fjölbreytta hóp sjóðfélaga sem hann þjónar,“ segir enn fremur.

Samhliða nafnabreytingunni tekur sjóðurinn upp nýtt merki. Öll þjónusta er óbreytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×