„Ég hugsa að ég myndi vinna þig“ Heims- og Ólympíusmeistarinn í stangarstökki karla er viss um að hann geti hlaupið hraðar en hraðasta kona síðustu ára. Hann vill mæta Shelly Ann Fraser-Pryce á hlaupabrautinni. Sport 27. júní 2023 23:30
Belgískur kúluvarpari hljóp í skarðið í grindahlaupi Belgíski kúluvarparinn Jolien Boumkwo vakti verðskuldaða athygli á Evrópubikarnum í frjálsum íþróttum þegar hún hljóp í skarðið fyrir liðsfélaga sína í grindahlaupi. Sport 26. júní 2023 10:01
Íslenska liðinu tókst ekki að bjarga sér frá falli Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum féll í dag úr 2. deild Evrópubikarsins, en þriðji og síðasti keppnisdagur fór fram í Póllandi í dag. Sport 22. júní 2023 18:06
Met í gær en æsileg barátta fyrir lífi sínu í deildinni í dag Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum berst fyrir að halda sæti sínu í 2. deild Evrópubikarsins, en þriðji og síðasti keppnisdagur er í Póllandi í dag. Sport 22. júní 2023 13:01
Aftur jafnaði Kolbeinn Íslandsmetið Kolbeinn Höður Gunnarsson jafnaði í dag Íslandsmetið í 100 metra hlaupi í annað sinn á stuttum tíma þegar hann keppti á Evrópubikarmótinu í Silesia í Póllandi. Sport 20. júní 2023 19:30
Lést vegna vandræða við fæðingu Bandaríski spretthlauparinn Tori Bowie lést vegna vandræða við fæðingu, samkvæmt krufningarskýrslu, en frá þessu greindi umboðsmaður hennar, Kimberly Holland. Sport 13. júní 2023 09:00
Glæsilegt met Elísabetar í Texas Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR náði sjöunda sæti í sleggjukasti á sínu fyrsta ári á bandaríska háskólameistaramótinu í frjálsum íþróttum, sem fram fer í Austin í Texas. Hún stórbætti eigið Íslandsmet. Sport 9. júní 2023 12:30
Andrúmsloftið í stofunni var þykkt af sorg Það eru ekki mörg verkefni í blaðamennsku þannig vaxin að maður viti að þau muni sitja föst í minninu út lífið. Helgarviðtalið við Árna Johnsen í DV fyrir fimm árum er eitt af þeim verkefnum. Lífið 7. júní 2023 23:44
Silfur í úrslitum og hljóp undir metinu Kolbeinn Höður Gunnarsson vann í dag silfur á Copenhagen Athletics games mótinu í Kaupmannahöfn. Hann hljóp 100 metra á 10,45 sekúndum í undanúrslitum sem er undir Íslandsmeti í greininni. Sport 7. júní 2023 19:13
„Sagði upp vinnunni og ákvað að gefa þessu séns“ „Maður var búinn að safna sér í smásjóð og vildi sjá hvort að maður kæmist ekki eitthvað lengra,“ segir Kolbeinn Höður Gunnarsson sem hætti í vinnunni og hefur síðan þá náð hverjum áfanganum á fætur öðrum á hlaupabrautinni. Sport 6. júní 2023 09:00
„Fínt að deila þessu með honum í smástund“ „Það er ágætis afrek,“ segir Kolbeinn Höður Gunnarsson sem nú getur státað sig af því að enginn Íslendingur hafi nokkru sinni hlaupið hraðar en hann – að minnsta kosti frá því að tímatökur í frjálsum íþróttum hófust. Sport 5. júní 2023 12:31
Bolt vill komast að hjá IAAF: Segir skort á súperstjörnum Spetthlaupsgoðsögnin Usain Bolt sækist nú eftir því að fá hlutverk hjá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Sport 31. maí 2023 14:31
Þrjú hafa slegið Íslandsmet í ár sem voru sett áður en þau fæddust FH-ingurinn Irma Gunnarsdóttir sló um helgina næstum því 26 ára gamalt Íslandsmet þegar hún var að keppa á Norðurlandamótinu í frjálsum íþróttum sem fór fór fram í Kaupmannahöfn í Danmörku. Sport 30. maí 2023 13:30
Tvö Íslandsmet og tvö gull á Norðurlandamótinu í dag Irma Gunnarsdóttir úr FH og Kolbeinn Hörður Gunnarsson settu bæði ný Íslandsmet á Norðurlandamótinu í frjálsum íþróttum í dag. Sport 28. maí 2023 23:31
Þrjár íslenskar á lokamótið og sentímetra munaði Þrjár íslenskar frjálsíþróttakonur tryggðu sér í gær sæti á bandaríska háskólameistaramótinu (NCAA) en í einu tilviki mátti það ekki tæpara standa. Sport 26. maí 2023 11:01
Heimsmethafi dæmdur í bann vegna lyfjamisnotkunar Rhonex Kipruto frá Kenía hefur verið dæmdur í keppnisbann vegna lyfjamisnotkunar. Hinn 23 ára gamli Rhonex setti heimsmet í Valencia á Spáni í janúar árið 2020. Sport 18. maí 2023 10:30
Elísabet Rut setti Íslandsmet og varð svæðismeistari á Myrtle Beach Íslenski sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir fagnaði sigri á svæðismeistaramóti sínu, Sun Belt Outdoor Championships. Sport 12. maí 2023 10:30
Fyrrverandi heims- og Ólympíumeistari látin, aðeins 32 ára Bandaríski spretthlauparinn Tori Bowie, sem vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum og heimsmeistaramóti, er látin, 32 ára að aldri. Sport 3. maí 2023 15:00
„Hlaut að koma að því að maður færi að skora“ „Ég var í handbolta og frjálsum en var aldrei 100 prósent eins og í fótboltanum. Ég er sjöfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur bikarmeistari með FH í yngri flokkum í handbolta en hætti árið 2016,“ segir Örvar Eggertsson, hinn 24 ára gamli kantmaður HK, sem hefur byrjað sumarið með látum. Íslenski boltinn 27. apríl 2023 12:10
Boðar táraflóð á tímamótum í London Breski hlauparinn Mo Farah segir að komandi London maraþon á sunnudaginn næstkomandi verði síðasta maraþon sitt á hlaupaferlinum. Í viðtali við BBC segist hann búast við því að tár muni falla að maraþoninu loknu. Sport 21. apríl 2023 12:30
Barnabarn Tarzans vill verðlaunagripina aftur Barnabarn hlaupahetjunnar Tarzans Brown kallar eftir því að hafa uppi verðlaunagripi sem afi hennar vann í Boston maraþoninu, sem hann vann tvisvar. Brown seldi gripina vegna örbirgðar. Sport 12. apríl 2023 09:00
Ætlaði á hlaupaæfingu en hætti við og varð Íslandsmeistari og setti Íslandsmet Laugardagurinn tók nokkuð óvænta stefnu hjá íþróttakonunni fjölhæfu, Andreu Kolbeinsdóttur. Hún ætlaði að skella sér á hlaupaæfingu en endaði á því að verða Íslandsmeistari í skíðagöngu og slá 29 ára gamalt Íslandsmet í fimm þúsund metra hlaupi innanhúss. Sport 29. mars 2023 08:01
Tvö hafa slegið Íslandsmet í vetur sem voru eldri en þau sjálf Þau eru ófá Íslandsmetin sem féllu á þessu innanhúss tímabili í frjálsum íþróttum og enn eitt metið féll um helgina. Sport 27. mars 2023 15:00
Setti Íslandsmet í 5000 metra hlaupi þremur tímum eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitil í skíðagöngu Andrea Kolbeinsdóttir bætti í gær 29 ára gamalt Íslandsmet í 5000 metra hlaupi innanhúss. Fyrr um daginn hafði hún unnið Íslandsmeistaratitil í 5 kílómetra skíðagöngu. Sport 26. mars 2023 11:44
Bætti Íslandsmetið í 1500 metrum um 38 sekúndubrot Baldvin Þór Magnússon byrjaði utanhústímabilið vel í gær þegar hann keppti í 1500 metra hlaupi á Raleigh Relays í Norður-Karólínu. Sport 24. mars 2023 16:30
Trans konur fá ekki að keppa í kvennaflokki frjálsra íþrótta Alþjóðafrjálsíþróttasambandið hefur tilkynnt að trans konur fái ekki að keppa í kvennaflokki í mótum á vegum sambandsins. Sport 23. mars 2023 17:43
Maðurinn sem breytti hástökki til frambúðar er látinn Dick Fosbury, maðurinn sem breytti því hvernig fólk kom sér yfir slána í hástökki til frambúðar, er látinn. Sport 13. mars 2023 20:07
Dagbjartur Daði einum sentimetra frá fyrsta sætinu á Evrópubikarkastmóti í Portúal Evrópubikarkastmótið fór fram í Leria í Portúgal í gær og í dag og voru alls fimm íslenskir keppendur sem tóku þátt. Sport 12. mars 2023 13:46
Erna Sóley sjöunda á bandaríska háskólameistaramótinu Erna Sóley Gunnarsdóttir heldur áfram að gera góða hluti í kúluvarpinu en hún keppti á bandaríska háskólameistaramótinu í nótt. Sport 12. mars 2023 10:00
„Verðum að sýna fólki að Úkraína lifir“ Hástökkvarinn Yaroslava Mahuchikh færði Úkraínu einu gullverðlaun þjóðarinnar á Evrópumótinu innanhúss í frjálsum íþróttum, í Istanbúl um helgina. Hún tjáði sig um stríðið heima fyrir og mögulega þátttöku Rússa á Ólympíuleikum í viðtali eftir keppni. Sport 6. mars 2023 15:30