Jón Arnór sjóðheitur í frábærum sigri í Slóvakíu Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann frækinn útisigur, 75-81, gegn Slóvakíu í dag. Þetta var annar leikur liðsins í A-riðli fyrir undankeppni EM. Körfubolti 18. ágúst 2012 17:50
Logi er veikur Logi Gunnarsson verður ekki með íslenska körfuboltalandsliðinu þegar liðið mætir Slóvakíu á laugardaginn. Körfubolti 17. ágúst 2012 06:00
Strákarnir stóðu í Serbum - myndir Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sýndi stórt hjarta, dug og þor er það tók á móti Serbum í Laugardalshöll en Serbar eru með eitt besta landslið heims. Körfubolti 14. ágúst 2012 22:27
Verður örugglega troðið í grillið á okkur Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik hefur í kvöld leik í undankeppni Evrópumótsins. Mótherjinn er landslið Serbíu sem hefur án nokkurs vafa á að skipa einu sterkasta landsliði heims. Silfurverðlaun á Evrópumótinu 2009 og fjórða sæti á heimsmeistaramótinu ári síðar eru til marks um getu þeirra. Körfubolti 14. ágúst 2012 07:00
U-18 ára liðið komst ekki áfram Íslenska U-18 ára landsliðið í körfuknattleik komst ekki í úrslitakeppni átta efstu liðanna í B-deild EM eftir tap gegn Finnum í kvöld, 86-78. Ísland leiddi í hálfleik, 49-45. Körfubolti 13. ágúst 2012 19:47
Tómas Heiðar snýr heim | Leikur með Fjölni Bakvörðurinn Tómas Heiðar Tómasson leikur með meistaraflokki Fjölnis í körfuknattleik í Domino's-deildinni í vetur. Tómas staðfestir þetta í samtali við Karfan.is. Körfubolti 8. ágúst 2012 13:57
Helgi Már ráðinn spilandi þjálfari KR Helgi Már Magnússon hefur verið ráðinn spilandi þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá KR. Körfubolti 7. ágúst 2012 16:41
Íslands- og bikarmeistaranir saman í riðli í Lengjubikar karla Það styttist í að körfuboltatímabilið hefjist og í dag var dregið í riðla í Lengjubikar karla og kvenna. Íslandsmeistarar Grindavíkur í karlaflokki lentu í sama riðli og bikarmeistarar Keflavíkur og hjá honunum drógust Reykjanesbæjarliðin, Njarðvík og Keflavík, í sama riðli. Körfubolti 7. ágúst 2012 14:02
Annar Kani kominn til Snæfells Asim McQueen er genginn í raðir karlaliðs Snæfells í körfuknattleik. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Körfubolti 1. ágúst 2012 20:45
Jones hættur við að spila með Njarðvík Bandaríkjamaðurinn Jonathan Jones, sem spila átti með Njarðvík í efstu deild karla í körfuknattleik í vetur, mun ekki koma til liðsins. Karfan.is greinir frá þessu. Körfubolti 1. ágúst 2012 18:00
Páll Axel búinn að semja við nýliða Skallagríms Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Íslandsmeistara Grindavíkur, verður ekki með liðinu á næsta tímabili því hann er búinn að semja við nýliða Skallagríms. Karfan.is segir frá þessu. Páll Axel hefur áður spilað í Borgarnesi en hann skoraði 21,2 stig að meðaltali í níu leikjum með liðinu veturinn 1997 til 1998. Körfubolti 27. júlí 2012 12:14
Bullock eltir Watson til Finnlands Körfuknattleiksmaðurinn J'Nathan Bullock, sem varð Íslandsmeistari með Grindavík á síðustu leiktíð, hefur samið við finnska úrvalsdeildarliðið Karhu. Frá þessu er greint á Karfan.is. Körfubolti 21. júlí 2012 20:15
Formaður KKÍ: Þurfum að endurskoða vinnubrögð okkar Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, hefur dregið sig úr æfingahópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt í undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í ágúst og september. Hörður heldur þess í stað til móts við félag sitt Mitteldeutscher BC í efstu deild þýska körfuboltans og æfir með liðinu á undirbúningstímabilinu. Körfubolti 16. júlí 2012 06:45
Brynjar og Helgi komnir heim Körfuknattleiksdeild KR tilkynnti formlega til leiks í gær þá Brynjar Þór Björnsson og Helga Má Magnússon sem eru komnir heim í heiðardalinn. Körfubolti 14. júlí 2012 14:30
Bandarískur leikstjórnandi til liðs við Snæfell Karlalið Snæfells í körfuknattleik hefur samið við bandarískan leikstjórnanda fyrir komandi átök í Domino's deildinni í vetur. Körfubolti 13. júlí 2012 11:15
Böðvar um Helga og Brynjar: Kunna allt upp á tíu Landsliðsmennirnir Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson hafa ákveðið að koma heim og spila með KR í Dominos-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Þetta er gríðarlegur liðstyrkur fyrir KR-liðið en báðir þessir leikmenn eru uppaldir KR-ingar og því á leiðinni heim í Vesturbæinn. Helgi Már er 30 ára framherji en Brynjar er 24 ára skotbakvörður. Körfubolti 3. júlí 2012 08:00
Brynjar: Krefst þess að ungu strákarnir standi sig betur en í fyrra Brynjar Þór Björnsson er á leið heim í KR eftir eitt ár í atvinnumennsku í Svíþjóð. Hann mun spila með liðinu ásamt Helga Má Magnússyni sem er annar uppalinn KR-ingur sem ætlar að æfa og spila í DHL-höllinni næsta vetur. Körfubolti 2. júlí 2012 17:30
Helgi Már og Brynjar komnir heim í KR - eiga bara eftir að skrifa undir Landsliðsmennirnir Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson hafa ákveðið að spila með KR í í Domino´s deildinni í körfubolta á næstu leiktíð en þetta staðfesti Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR við Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins. Böðvar segir að Helgi og Brynjar eigi bara eftir að skrifa undir. Körfubolti 2. júlí 2012 15:55
Shouse áfram hjá Stjörnunni Justin Shouse hefur samið við Stjörnuna á ný og mun því leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Það verður hans fjórða tímabil í Garðabænum og sjöunda á Íslandi. Körfubolti 2. júlí 2012 09:52
Njarðvík semur við tvo Bandaríkjamenn Körfuknattleiksdeild UMFN hefur samið við tvo Bandaríkjamenn um að leika með karlaliði félagsins á komandi tímabili í Domino´s deildinni. Þeir Cameron Echols og Travis Holmes sem léku með liðinu síðasta vetur munu ekki snúa aftur í haust en Jonathan Jones og Marcus Van koma í þeirra stað og eru hugsaðir fyrir baráttuna í teignum. Körfubolti 2. júlí 2012 06:00
Darrel Lewis til Keflavíkur: Hefur saknað Nonnabita Darrel Lewis spilar með Keflavík í Dominosdeildinni á næsta tímabili en Lewis er íslenskur ríkisborgari sem getur spilað bæði skotbakvörð og lítinn framherja. Hann var frábær með Grindvíkingum á árunum 2002 til 2005 en hefur síðan spilað á Ítalíu og í Grikklandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur. Körfubolti 28. júní 2012 10:30
KKÍ kynnti Domino's-deildirnar í dag Nýtt nafn á Úrvalsdeildir karla og kvenna í körfuknattleik var kynnt til sögunnar í dag en þær hafa heitið Iceland Express deildirnar undanfarin sjö ár eða frá og með 2005-06 tímabilinu. Næstu þrjú árin munu efstu deildir karla og kvenna hinsvegar bera nafn Domino's og heita Domino's deild karla og Domino's deild kvenna. Körfubolti 27. júní 2012 13:45
Kaninn frá Þór kominn til ÍR Eric James Palm, sem spilaði með Þór í næstefstu deild karla á síðustu leiktíð, hefur gengið frá samningum við ÍR. Breiðhyltingar halda áfram að styrkja lið sitt fyrir átökin í Iceland Express-deildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 21. júní 2012 17:15
Þór verður án Govens á næstu leiktíð Bandaríkjamaðurinn Darrin Govens, sem lék með Þór Þorlákshöfn við góðan orðstír á síðustu leiktíð, hefur samið við félagið Elitzur Ramla í Ísrael en félagið leikur í næstefstu deild í Ísrael. Þetta kemur fram á Karfan.is. Körfubolti 21. júní 2012 12:55
Búið að velja æfingahóp körfuboltalandsliðsins Hinn sænski landsliðsþjálfari körfuboltalandsliðs karla, Peter Öqvist, hefur valið 21 leikmanna æfingahóp sem mun æfa saman um helgina. Körfubolti 13. júní 2012 19:13
Cothran á batavegi eftir skotárásina Fram kemur á heimasíðu Stjörnunnar að Bandaríkjamaðurinn Keith Cothran sé á batavegi eftir lífshættulega skotárás í heimabæ hans á dögunum. Körfubolti 11. júní 2012 10:45
Hreggviður snýr heim í Breiðholtið Körfuknattleikskappinn Hreggviður Magnússon er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt ÍR. Breiðhyltingurinn hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍR-inga en hann hefur spilað með KR undanfarin tvö tímabil. Körfubolti 6. júní 2012 09:47
Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deildunum í körfubolta á næsta tímabili en þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur. Falur Harðarson ákvað að hætta þjálfun kvennaliðsins eftir aðeins eitt ár með liðið en hann stígur til hliðar sökum anna. Körfubolti 19. maí 2012 12:40
Shouse og Pálína leikmenn ársins í körfuboltanum Stjörnumaðurinn Justin Shouse og Keflavíkurmærin Pálína Gunnlaugsdóttir voru valdir bestu leikmenn Iceland Express-deildanna á lokahófi KKÍ sem fram fór í Stapanum í kvöld. Körfubolti 12. maí 2012 14:48
Sverrir Þór tekur við Grindavíkurliðinu Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Íslandsmeistara kvenna hjá Njarðvík og íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, verður næsti þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur. Grindvikingar voru fljótir að ganga frá eftirmanni Helga Jónasar Guðfinnssonar sem hætti með liðið í gær. Þetta kemur fram á karfan.is í kvöld. Körfubolti 9. maí 2012 22:59