Rússland

Rússland

Höfuðborg: Moskva. Mannfjöldi: 146,0 milljónir (2025). Flatarmál: 17.098.246 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov

Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hætt við tón­leika Kanye í Rúss­landi

Hætt hefur verið við tvenna tónleika sem rapparinn Ye betur þekktur sem Kanye West átti að halda í Rússlandi í október. Ástæðan virðist vera sú að samningar hafi aldrei tekist á milli eigenda tónleikahalla og skipuleggjenda.

Lífið
Fréttamynd

Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás

Yfirvöld í Eistlandi segja útsendara Rússlands hafa gert íkveikjuárás á eistneskt hergagnafyrirtæki í Tallinn í ágúst. Rússneskir starfsmenn þarlendra leyniþjónusta hafi staðið að árásinni og er hún sögð liður í skuggastríði Rússa gegn Evrópu, sem ætlað sé að ógna ráðamönnum og íbúum heimsálfunnar og grafa undan stuðningi við Úkraínumenn.

Erlent
Fréttamynd

Veturinn verði Rússum erfiður

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf.

Erlent
Fréttamynd

Bað Trump um „vetrarpakka“

Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Bað Selenskí um að stöðva á­rásir á rúss­neskar olíuvinnslur

Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað.

Erlent
Fréttamynd

Pútín sló öll met

Flokkur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur unnið metfjölda þingsæta í kosningunum sem haldnar voru í Rússlandi um helgina. Sameinað Rússland mun væntanlega stjórna 355 af 450 þingsætum í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, miðað við talin atkvæði þegar búið var að telja 95 prósent greiddra atkvæða.

Erlent
Fréttamynd

Utan­ríkis­ráð­herra Úkraínu lýsir yfir gríðar­legu þakk­læti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip.

Erlent
Fréttamynd

Rússar kjósa sér 450 skoðana­bræður

Rússar ganga að kjörborðinu um helgina og eiga þeir þar að velja á milli tíu flokka, sem allir virðast sammála stærsta flokki landsins og Vladimír Pútín. Eini flokkurinn sem stóð gegn stríðinu í Úkraínu hefur verið bannaður.

Erlent
Fréttamynd

Rússar hafi skipu­lagt fjölþáttaárás gegn Pól­landi

Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan.

Erlent
Fréttamynd

Af­hjúpa RIS-vanda í Evrópu og Banda­ríkjunum

Saksóknarar í Bandaríkjunum opinberuðu í gær ákærur gegn fimm mönnum sem grunaðir eru um að ætla sér að skipuleggja fjölþáttaógnir í Evrópu og framkvæma launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd.

Erlent
Fréttamynd

Pútín er hvergi nærri því að láta undan

Pútín er reiðubúinn að halda þessu stríði áfram árum saman. Það er ekki vegna þess að ráðgjafar hans lofi honum skjótum sigri, þótt vel megi vera að þeir geri það. Stríðið er orðið innbyggt í pútínismann, rétt eins og pútínisminn er orðinn innbyggður í stríðið. Stjórnkerfi hans veitir honum frelsi til að gera það sem hann vill og arfleifð hans verður ekki lengur skilin frá stríðinu. Bæði Pútín og Rússland hafa búið sig undir langvinnt stríð.

Umræðan
Fréttamynd

Lýsti yfir sam­komu­lagi sem lá ekki fyrir

Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir.

Erlent
Fréttamynd

Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps

Draumabrúðkaup Donalds Trump yngri og Bettinu Anderson, nú Trump, á tveimur einkaeyjum í Bahamaeyjum í vor var að stórum hluta fjármagnað af rússneskum auðjöfri, sem hefur tengingar til Kremlar og Vladimírs Pútín. Umar Kremlev var einn nokkurra rússneskumælandi manna sem sóttu brúðkaupið, sem var að öðru leyti eingöngu fyrir nánustu vini og ættingja.

Erlent
Fréttamynd

Trump segir að á­rásum á orkuinnviði verði hætt

Donald Trump segir að ráðamenn í bæði Kænugarði og í Moskvu hafi samþykkt að ráðast ekki á orkuinnviði hvors annars. Þá heldur hann því fram að hærra olíuverð sé vegna Úkraínustríðsins en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Rússar hafa ekki staðfest að samkomulag hafi náðst en Úkraínumenn hafa boðið Rússum slíkt um nokkuð skeið.

Erlent
Fréttamynd

Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um

Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað.

Erlent
Fréttamynd

John­son rétt slapp við á­rás Rússa

Rússneskur dróni hæfði lest í bænum Yahodyn í Úkraínu, skammt frá landamærunum að Póllandi, skömmu eftir að fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Boris Johnson og hátt settir öryggisráðgjafar Evrópuríkja höfðu farið sömu leið.

Erlent
Fréttamynd

Rússar gómaðir með leyni­lega sæstrengjaklippu

Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki.

Erlent