Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2026 16:27 Katie Zacharia hélt langt ávarp á sínum fyrsta blaðamannafundi og svaraði svo spurningum þriggja blaðamanna frá vinveittum miðlum. AP/Julia Demaree Nikhinson Katie Zacharia, nýr upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, þykir ekki hafa riðið feitum hesti frá sínum fyrsta blaðamannafundi í gær. Sá fundur stóð yfir í einungis fjórtán mínútur og hún svaraði einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum, ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum og samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu eru strax byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu.
Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og hefur verið gestur hjá bæði Fox News og Newsmax. Þá hefur Trump sagt að hún hafi komið að forsetaframboðum hans. Í ávarpi sínu sagðist hún hafa lengi viljað vinna beint fyrir Trump. „Ég fæ að halda áfram að gera það sem ég var þegar að gera utan kerfisins, sem er að vinna að því að efla, margfalda og útvíkka hina stórbrotnu stefnu Trumps forseta í þágu bandarísku þjóðarinnar.“ Eins og tekið er fram í grein AP fréttaveitunnar nefndi hún aldrei að hlutverk hennar fælist í að upplýsa bandarísku þjóðina með réttum og áreiðanlegum upplýsingum. Leggur áherslu á „nýmiðla“ Á vef Hvíta hússins birtist í gær grein þar sem segir að Zacharia hafi farið vel af stað í starfi. Fyrsti fundur hennar hafi fengið mikla umfjöllun og er vísað til þess að hún hafi farið sérstaklega yfir helstu atriðin hvernig Trump á að hafa lækkað verðlag í Bandaríkjunum. Það hefur hann ekki gert, þó að hann segi sjálfur að svo sé. Hagstofa Bandaríkjanna gaf í dag út að verðbólga þar hefði mælst 3,7 prósent í september. Það var umfram spár og hækkun um 0,3 prósentustig milli ára. Í ávarpi sínu á blaðamannafundinum í gær sagði Zacharia að ríkisstjórn Trumps ætlaði að leggja aukna áherslu á það sem hún kallaði „nýmiðla“. Forveri hennar, Karoline Leavitt, breytti venjum Hvíta hússins á þá leið að starfsmenn Trumps ætluðu sjálfir að velja hvaða blaðamenn fengju að sækja Hvíta húsið heim og sitja blaðamannafundi. Það hafði áður verið ákveðið af samtökum blaðamanna. Sjá einnig: Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Frá því hann varð aftur forseti hefur verið lögð meiri áhersla á vinveitta bloggara og hlaðvarpsstjórnendur í Hvíta húsi Trumps. Þessu virðist Zacharia ætla að halda áfram, ef marka má fyrsta fundinn hennar í gær. Ekki tilbúin til að svara um Úkraínu Á þessum fjórtán mínútna blaðamannafundi Zacharia í gær fóru átta mínútur í ávarp sem hún las beint af blaði og virtist hún nokkuð stressuð. .@PressSec @KatieZacharia: "I am so honored to work for President Trump and the American people as the new White House Press Secretary." https://t.co/vJV8ckuKnH— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 13, 2026 Eftir það svaraði hún spurningum frá blaðamönnum þriggja miðla, sem allir þykja hliðhollir Trump. Það eru Breitbart, Fox News og The Daily Mail. Ein spurninganna snerist um mál sem hefur verið mikið í deiglunni á undanförnum dögum. Það mál snýr að Úkraínu og hótunum Trump-liða um að hætta aðstoð við Úkraínumenn. Zacharia var ekki tilbúin til að svara spurningu um það mál. .@PressSec @KatieZacharia ticks through just some of the accomplishments of President Trump's second term so far https://t.co/7n070PgmGI— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 13, 2026 Það var blaðamaður Fox sem spurði hana hvort Bandaríkjamenn væru hættir að deila upplýsingum með Úkraínumönnum en það hefur verið til umræðu þar sem rússneskar eldflaugar hafa á undanförnum dögum lent í Kænugarði, án viðvörunar sem hefur á undanförnum árum komið frá Bandaríkjamönnum. „Ég verð að hafa samband við þig seinna um það,“ sagði Zacharia. Hún var síðan spurð um það hvernig hún ætlaði að tvinna saman nýju vinnuna og fjölskyldulífið, þar sem hún ætti fjögur börn. Síðasta spurningin sem hún svaraði leiddi þó til fréttaflutnings, þar sem hún var spurð út í stöðu Kimberly Guilfoyle, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Grikklandi. Þá tilkynnti hún að Guilfoyle hefði verið beðin um að segja af sér. Sjá einnig: Sendiherrann beðinn um að segja af sér Zacharia svaraði ekki spurningum um Guilfoyle sem fylgdu heldur tilkynnti að blaðamannafundurinn væri búinn og að Trump myndi sjálfur ræða við blaðamenn á leiðinni í þyrlu sína seinna. .@PressSec @KatieZacharia: "We have asked Ambassador Guilfoyle to resign. She has been a wonderful asset to the team, and we wish her well." https://t.co/gSZfl1RTQp— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 13, 2026 Trump gekk síðar í gær úr Hvíta húsinu með Zacharia þar sem blaðamenn biðu eftir honum. Þar sagði hann að hún hefði staðið sig mjög vel. Þegar Trump tilkynnti að hún yrði upplýsingafulltrúi hans titlaði hann hana sem lögmann, sem hún hefur einnig gert. Trump var í gær spurður að því hvar hún hefði staðist lögmannapróf og leit hann þá á hana og Zacharia svaraði: „Þegar ég flutti til Kína.“ Katie Zacharia fylgist með Trump ræða við blaðamenn.AP/Julia Demaree Nikhinson Samkvæmt New York Times hefur frekari fyrirspurnum ekki verið svarað. CNN hefur eftir heimildarmönnum sínum í Hvíta húsinu að Trump hafi sjálfur beðið Zacharia um að halda blaðamannafundinn og hefur það vakið furðu, þar sem hún er mjög ný í starfinu. Þá segir miðillinn að innan Hvíta hússins sé strax farin af stað umræða um að hún muni ekki endast í starfinu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira