Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. september 2026 23:09 Vladímir Pútin Rússandsforseti bauð Jared Kushner tengdason Bandaríkjaforseta velkominn á sinn fund í Moskvu í dag. EPA/GAVRIIL GRIGOROV Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið. „
Þeir munu mæta til þeirra með tillögu um að binda enda á stríðið,“ sagði Trump þegar hann var spurður út í heimsóknina. Hingað til hafa tilraunir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra til að miðla friðarsamkomulagi ekki tekist. Í upphafi fundarins á Rússlandsforseti að hafa sagt að hann bæri „fullt traust“ til milligöngu Bandaríkjanna milli Rússlands og Úkraínu, að því er kemur fram í umfjöllun bandaríska miðilsins Axios, og þakkað Bandaríkjaforseta fyrir hans friðarviðleitni. Auk þess hafi hann lýst aðstæðum í Úkraínu sem „erfiðum“. Viðræðurnar fóru fram fyrir luktum dyrum og stóðu yfir í um þrjár klukkustundir. Pútín sagði fyrr í vikunni að Rússar væru að sigra Úkraínu og að varnir þeirra væru við það að falla saman. Auk þess hafi hann skipað Rússlandsher að auka umfang árása á orkuinnviði fyrir haustið. Júrí Úsjakov, ráðgjafi Rússlandsforseta, var einnig viðstaddur fundinn en hann er hér fyrir miðju á myndinni og snýr baki í myndavélina. EPA/GAVRIIL GRIGOROV Þá hafa Rússar verið að gera ítrekaðar og umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði með skotflaugum og sjálfsprengidrónum. Sjá einnig: Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Selenskí sagði í fyrradag að rússneskir drónar hefðu hæft höfuðstöðvar öryggisstofnunar Úkraínu. Í morgun var greint frá því að fjórir hefðu fallið í árás Rússa í borginni. Fimm til viðbótar hefðu særst. Hlé gert á árásum á meðan viðræðum stendur Þriggja daga hlé var gert á árásum á höfuðborgir beggja ríkja meðan á heimsókn sendinefndarinnar stendur. Pútín hafi sagt að Rússland myndi gera sitt ýtrasta til þess að tryggja öryggi samningaviðræðnanna en ekki fyrirskipað vopnahlé annars staðar en í Kænugarði. Úkraínuforseti var á svipuðu máli. „Frá og með nú og fram á laugardagskvöld, sem og á sunnudag og mánudag, er Úkraína reiðubúin að halda aftur af árásum á Moskvu og við væntum þess að Rússar geri slíkt hið sama varðandi Kænugarð,“ sagði Selenskí. Halda til Kænugarðs á morgun Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur gefið það út að hann muni hitta þá Wirkoff og Kushner í Kænugarði á morgun. Hann sagði að hann hefði rætt við tvímenningina í dag og vinna væri þegar hafin á milli þeirra tveggja og Rússlands. „Áætlun um diplómatískar viðræður morgundagsins í Kænugarði, með þátttöku bandaríska teymisins, hefur verið samþykkt. Við bíðum eftir Steve Witkoff og Jared Kushner og erum reiðubúin í innihaldsríkar viðræður,“ sagði Selenskí að auki. Kusner og Witkoff hafi nokkrum sinnum heimsótt Rússland, síðast í janúar, en á morgun verði þeirra fyrsta heimsókn til Kænugarðs. Sendinefndir frá Úkraínu hafi hins vegar sótt viðræður í Bandaríkjunum síðastliðna 18 mánuði. Ekki er ljóst hvernig Witkoff og Kushner munu ferðast frá Moskvu til Kænugarðs en flughelgi Úkraínu hefur verið lokuð frá því að Rússar gerðu sína allsherjarinnrás. Ferðist þeir með flugvél Bandaríkjanna verður það fyrsta alþjóðaflugið frá því í febrúar 2022 sem lendir í Úkraínu, segir að auki í umfjöllun Axios.
Rússland Úkraína Donald Trump Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira