Þvertekur fyrir nokkur tengsl Freyja Þórisdóttir skrifar 9. apríl 2026 21:43 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað neitað því að hann og Melania Trump, eiginkona hans, hafi vitað nokkuð um brot hins alræmda kynferðisafbrotamanns Jeffreys Epsteins. Getty/AP Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“.
Þetta kemur fram í umfjöllun BBC um málið en þar segir einnig að óljóst sé hver hafi verið kveikjan að tilkynningunni. Engar vísbendingar höfðu borist frá skrifstofu Melaniu um að hún myndi gefa yfirlýsingu um Epstein. Hvíta húsið hafði jafnfamt ekki greint frá umræðuefninu fyrr um daginn þegar ummæli hennar voru sett á dagskrá. „Lygarnar sem tengja mig við hinn svívirðilega Jeffrey Epstein verða að taka enda í dag,“ sagði Melania í tilkynningunni. Hún sagðist ekki hafa verið fórnarlamb Epsteins en að leiðir þeirra hefðu aðeins „legið saman“ í stutta stund árið 2000. Fréttaveitan Reuters hefur eftir Marc Beckman, yfirráðgjafa Melaniu, að „forsetafrúin Melania Trump tjái sig núna því nóg sé komið, lygunum verði að linna,“ en Donald Trump, sem var eitt sinn vinur Epstein, sleit að eigin sögn öll tengsl við hann snemma á 21. öldinni. „Ég hef aldrei verið vinkona Epsteins. Donald og mér var boðið í sömu veislur og Epstein af og til, þar sem það er algengt að fólk í sömu kunningjahópum hittist í New York-borg og Palm Beach,“ sagði Melania í tilkynningunni. „Til að það sé á hreinu, þá átti ég aldrei í neinu sambandi við Epstein eða vitorðsmann hans, Maxwell. Ég hafði aldrei neina vitneskju um misnotkun Epsteins á fórnarlömbum sínum,“ sagði hún og bætti svo við að hún hafi „hvorki komið að málinu á nokkurn hátt né verið þátttakandi.“ Epstein, sem var dæmdur kynferðisbrotamaður, átti yfir höfði sér alríkisákærur fyrir mansal á ólögráða einstaklingum þegar hann lést í fangelsi árið 2019. Dánarorsökin var úrskurðuð sjálfsvíg. Hér má sjá yfirlýsingu Melaniu sem hún flutti fyrir sal blaðamanna í Hvíta húsinu:
Donald Trump Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær skjöl sem vantað hefur í gagnasafn Epstein-skjalanna svokölluðu. Umrædd skjöl snúa að viðtölum starfsmanna Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) við konu sem sakaði Donald Trump, forseta, um að hafa brotið á sér þegar hún var þrettán ára gömul. 6. mars 2026 13:16 Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Töluvert gekk á í yfirheyrslum Clinton-hjónanna í síðustu viku fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum sem rannsakar innihald Epstein-skjalanna. Hillary gekk út úr yfirheyrslu sinni og Bill útskýrði pottamyndina af honum sem fannst í skjölunum. Myndbandsupptökur af yfirheyrslunum hafa nú verið birtar. 3. mars 2026 12:00 Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Nýútgefin skjöl varpa ljósi á það að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vitað lengur af kynferðisbrotum Jeffrey Epsteins en hann hefur viðurkennt. Í raun virðist hann hafa vitað um brot Epsteins frá því áður en fyrsta rannsókn hófst árið 2006. 10. febrúar 2026 22:02 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent „Höfum aldrei átt betra samband“ Erlent Fleiri fréttir „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sjá meira
Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær skjöl sem vantað hefur í gagnasafn Epstein-skjalanna svokölluðu. Umrædd skjöl snúa að viðtölum starfsmanna Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) við konu sem sakaði Donald Trump, forseta, um að hafa brotið á sér þegar hún var þrettán ára gömul. 6. mars 2026 13:16
Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Töluvert gekk á í yfirheyrslum Clinton-hjónanna í síðustu viku fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum sem rannsakar innihald Epstein-skjalanna. Hillary gekk út úr yfirheyrslu sinni og Bill útskýrði pottamyndina af honum sem fannst í skjölunum. Myndbandsupptökur af yfirheyrslunum hafa nú verið birtar. 3. mars 2026 12:00
Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Nýútgefin skjöl varpa ljósi á það að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vitað lengur af kynferðisbrotum Jeffrey Epsteins en hann hefur viðurkennt. Í raun virðist hann hafa vitað um brot Epsteins frá því áður en fyrsta rannsókn hófst árið 2006. 10. febrúar 2026 22:02