Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Árni Sæberg skrifar 14. janúar 2026 13:03 Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkáss hf. Styrkás hf. Stjórn Styrkáss hf. hefur samþykkt að hefja undirbúning skráningar félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027. Umsjónaraðilar með skráningu félagsins í kauphöll verða ráðnir fyrir lok þessa ársfjórðungs.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Hreinsitækni og HRT þjónusta hafi komið inn í rekstur Styrkáss frá 1. janúar 2026 og myndi fjórða kjarnasvið samstæðunnar á sviði umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Fyrir hafi verið þrjú kjarnasvið í orku og efnavörum (Skeljungur), tækjum og búnaði (Klettur) og eignaumsýslu og leigustarfsemi (Stólpi). Rekstrarhagnaður Styrkás eftir afskriftir (EBIT) sé áætlaður á bilinu 3.350 til 3.650 milljónir króna á árinu 2026. „Með ákvörðun stjórnar hefst formlega undirbúningur fyrir skráningu Styrkás í kauphöll. Samþætting hefur gengið samkvæmt áætlun og stjórnarhættir taka nú þegar mið af viðmiðum sem gilda um skráð félög. Sterkur hluthafahópur stendur að félaginu þar sem saman fer blanda af leiðandi einkafjárfestum og stórum stofnanafjárfestum. Markmiðið með skráningu í kauphöll er að nýta kosti kauphallarinnar til frekari vaxtar,“ er haft eftir Ásmundi Tryggvasyni, forstjóra Styrkáss. Þá segir að Styrkás hf. sé rekstrarfélag sem hafi verið stofnað árið 2022. Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta séu dótturfélög Styrkáss og saman myndi þessi félög samstæðu Styrkás. Það sé stefna félagsins að verða leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. „Markmið Styrkáss er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti kjarnasviða, sem eru orka og efnavara, tæki og búnaður, eignaumsýsla og leigustarfsemi og umhverfisþjónusta og iðnaður.“ Stærsti eigandi Styrkáss, með 38 prósenta eignarhlut, er Skel fjárfestingafélag hf.
Kauphöllin Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira