Innlent

Tveir hand­teknir við hús­leit í Laugar­dal og Kópa­vogi

Agnar Már Másson skrifar
Rúður voru brotnar til að hægt væri að komast inn við Austurbrún 21.
Rúður voru brotnar til að hægt væri að komast inn við Austurbrún 21. Visir/Viktor freyr

Lögreglan handtók tvo í gær í húsleitaraðgerðum í Laugardal í Reykjavík annars vegar og Kópavogi hins vegar. Alls eru fimm í haldi í tengslum við rannsók lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri glæpastarfsemi.

Málið tegir anga sína alla leið til Raufarhafnar, þar sem lögreglan rannsakar nú skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnaframleiðslu.

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá í tilkynningu að hún hafi ráðist í húsleitaraðgerðir í gær, annars vegar í Laugardal og hins vegar í Kópavogi. Tveir hafi verið handteknir. Alls eru fimm manns nú í gæsluvarðhaldi og í dag verður lagt mat á hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim sjötta, að sögn lögreglu.

Með þessu hefur lögregla framkvæmt húsleit í sex húsum í tengslum við málið. Fyrstu aðgerðir í málinu voru þann 18. júní síðastliðinn en þá var ráðist í húsleit á þremur stöðum, að sögn lögreglu. Þann dag var ráðist í húsleit á Aðalbraut 37 á Raufarhöfn og Þórólfsgötu 5 í Borgarnesi.

Síðan þá er búið að fara í húsleitir á þremur stöðum, þar með talin aðgerð gærdagsins við Austurbrún 21 í Laugardal, eins og fram kom í umfjöllun Vísis í gær.

Lögreglan hefur lítið viljað segja um málið. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×