Innlent

Minni­hluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd

Lovísa Arnardóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Jón Steinar segir málþófið orðið að skrípaleik.
Jón Steinar segir málþófið orðið að skrípaleik. Vísir/Lýður Valberg

„Minnihluti þingsins verður að sætta sig við það að vera í minnihluta. Meirihlutinn auðvitað getur komið þeim málum í gegn sem hann kýs, og þetta er bara lýðræðið. Þetta er bara skipulagið, alveg sama hvaða vitleysu þeir eru að samþykkja,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari.

Jón Steinar fjallaði um málþóf á þingi í færslu á Facebook-síðu sinni í vikunni sem hefur vakið athygli. Þar sagði hann stjórnskipan landsins skýra og að meirihlutinn ráði þar. Sé möguleiki að einhver verð fyrir tjóni af völdum nýrrar lagasetningar sé rétta leiðin að leita til dómstóla, ekki stöðva lagasetninguna með málþófi.

Færsla Jóns Steinars. Facebook

Jón Steinar segir þjóðina kjósa sé alþingismenn og meirihluti þeirra hafi völdin á Alþingi, myndi ríkisstjórn og flytji lagafrumvörp og geti komið þeim fram jafnvel þótt stjórnarandstaðan sé mjög andvíg þeim.

„Meirihlutinn getur alltaf komið fram lagafrumvörpum. Það getur tekið einhvern tíma, eins og í þessari vitleysu, þetta málþóf, en auðvitað hefur meirihlutinn valdið. Persónulega finnst mér þetta hálfgerður skrípaleikur og minnihluti Alþingis verður bara að sætta sig við það að hann er ekki við völd.“

Hann geti reynt að hafa áhrif á afgreiðslu mála en geti ekki hindrað það að mál sem ríkisstjórnin sé staðráðin í að koma fram fái framgöngu.

Dómstólar séu betri leið

Jón Steinar segir að ef lög eru samþykkt sem svo einhverjir telji að stangist á við önnur lög eða valdi tjóni þá sé hægt að leita til dómstóla.

„Ef einhver telur að það sé brotinn lagalegur réttur á sér eða sínum hagsmunum, eða ef menn telja að mannréttindi þeirra séu skert með einhverjum hætti, þá eru dómstólar leiðin.“

Hægt sé að höfða mál á hendur íslenska ríkisins vegna tjóns sem þeir telja sig verða af lagasetningunni. Allir hafi þennan rétt og geti iðkað hann.

„En þeir geta ekki hindrað að lögin séu samþykkt af meirihluta Alþingis. Lýðræðið okkar snýst um það að meirihluti alþingismanna sem kosinn er í lýðræðislegum kosningum hefur hinn raunverulegu völd í þinginu.“

Verði að virða stjórnskipulagið

Hann telur réttast fyrir stjórnarandstöðuna að láta af málþófi. Það sé gott að nýta þann rétt sem þau hafa til að andmæla en þetta sé komið langt út fyrir það.

„Auðvitað eiga menn bara að láta í minni pokann þegar þeir eru í minni pokanum. Það þýðir ekkert að berja höfðinu við steininn með það. Við erum með ákveðið stjórnskipulag í landinu og við verðum öll að virða það og sætta okkur við það, þó við ráðum ekki málum þegar aðrir gera það.“


Tengdar fréttir

Birna tekur sæti Áslaugar á þingi

Birna Bragadóttir, forstöðukona frumkvöðlaseturs og vísindamiðlunar og þriðji varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, tekur sæti Áslaugar Örnu á Alþingi á morgun föstudag.

Óvenjulegt málþóf og lítill pólitískur ávinningur

Ekkert bendir til lausnar á deilunni sem knýr áfram það „myljandi málþóf“ sem á sér stað á Alþingi, segir prófessor í stjórnmálafræði. Þófið teljist afar óvenjulegt að því leyti að stjórnarandstaðan virðist lítið græða á því pólitískt séð.

Komst ekki í golf í gær en skellti sér í morgun

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra var gagnrýnd á samfélagsmiðlum í gær fyrir að vera með bókaðan tíma í golf um miðjan dag á þingtíma. Hún segist ekki hafa getað nýtt sér tímann í gær en ætli níu holur klukkan 9:30 í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×