„Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Brotist var inn í Hreppslaug á Hvanneyri í dag en Ungmennafélagið Íslendingur rekur laugina. Formaður þess segir innbrotið vera „súrt“ enda hafi mikil uppbygging átt sér á svæðinu og sundlaugin sé rekin með sjálfboðaliðastarfi. Innlent 14.7.2026 21:48
Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Innlent 12.7.2026 16:55
Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Búið er að bera kennsl á hund sem fannst nýverið dauður við Langjökul. Hann hafði verið týndur í tæp tíu ár. Innlent 9.7.2026 18:54
„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi. Lífið 4. júní 2026 15:19
Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokks og forseti þingsins, verður sveitarstjóri í sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Tilkynnt var um ráðningu hennar í dag á sama tíma og nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning sinn. Innlent 2. júní 2026 18:38
„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar. Innlent 24. maí 2026 22:25
Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn hafa myndað saman meirihluta fyrir kjörtímabilið í Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Innlent 22. maí 2026 13:04
Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir slæmt gengi flokksins í Reykjavík ekki þýða endalok hans. Flokkurinn missti báða fulltrúa sína. Innlent 17. maí 2026 16:32
Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Meirihluti Framsóknarflokksins er fallinn. Innlent 17. maí 2026 03:00
Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 6. maí 2026 15:03
Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Æsileg eftirför sem lauk í Skútuvogi í Reykjavík var fyrst í höndum lögreglunnar á Vesturlandi sem fékk tilkynningu um athugavert aksturslag. Hún missti sjónar af manninum er hann ók inn í Hvalfjarðargöngin á móti umferð. Maðurinn er laus úr haldi lögreglu. Innlent 15. apríl 2026 13:07
Að kasta ábyrgðinni á aðra Eftir langa bið kynnti ríkisstjórnin á sérstökum blaðamannafundi aðgerðir sínar til að leggja sitt af mörkum til þess að stemma stigu við verðbólgu í landinu. Sannast sagna hefði verið best að senda út stutta tilkynningu á stjórnarráðsvefnum í staðinn fyrir þetta leikhús. Skoðun 12. apríl 2026 11:01
Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Haukur Þór Hauksson, rekstrarhagfræðingur og frístundabóndi í Borgarfirði, mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð. Haukur gekk nýlega í Miðflokkinn en áður hefðu margir eflaust skilgreint hann sem innmúraðan sjálfstæðismann. Hann er auk þess kvæntur fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Innlent 1. apríl 2026 17:57
Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu um slys sem varð fyrir ári síðan. Lítið barn lést í slysinu og eru meginorsakirnar taldar vera hálka á yfirborði vegarins og að barnabílstóllinn brotnaði við höggið. Innlent 26. mars 2026 16:57
Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Þegar hinn rómaði flatbökustaður La Colina í Borgarnesi hætti sáu vinkonurnar Rannveig Rögn Leifsdóttir og Agnes Hjaltalín Andradóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafnaklett. Undirtektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins. Viðskipti innlent 11. mars 2026 06:47
Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu Kvenfélagskonur um allt land eru orðnar afskaplega þreyttar á stöðu heilbrigðiskerfisins og hvað þá að geta ekki fengið heimilislækni eins og víða á landsbyggðinni. Einnig finnst þeim ótækt að í sumum tilfellum tala læknar ekki íslensku, heldur ensku. Innlent 7. mars 2026 13:03
Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi sem átti sér stað við Munaðarnes í Borgarfirði í gærmorgun. Tveir voru fluttir slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 7. mars 2026 11:00
Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir tveggja bíla árekstur á hringveginum við Munaðarnes í Borgarfirði um ellefuleytið. Tveir þeirra sem fluttir voru eru slasaðir. Lokað var fyrir umferð um veginn. Innlent 6. mars 2026 12:47
„Margir staðir og margir sakborningar“ Hið minnsta fimmtán manns eru sakborningar í þeim nítján málum sem tengjast skipulögðum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar. Lögreglan fyrir norðan hefur lagt hald á kannabis í kílóavís og hafa fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir verið kveðnir. Innlent 5. mars 2026 22:02
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi. Innlent 10. febrúar 2026 18:25
Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Það var glatt á hjalla á Söguloftinu í Borgarnesi á laugardag þegar Þjóðleikhúsið frumsýndi í samstarfi við Landnámssetrið glænýjan einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku - ástina og dauðann í leikstjórn Björns Thors. Menning 10. febrúar 2026 18:00
Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. Innlent 9. febrúar 2026 20:11
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. Innlent 9. febrúar 2026 12:18