Viðskipti innlent

Hrund nýr fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­hótela

Atli Ísleifsson skrifar
Hrund Hauksdóttir.
Hrund Hauksdóttir.

Hrund Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Íslandshótela.

Í tilkynningu seggir að hún hafi hafið störf hjá félaginu á fjármálasviði í september 2023 og hafi nú tekið við sem fjármálastjóri félagsins. Hrund hefur einnig setið í stjórn félagsins frá árinu 2025.

„Hrund hefur starfað sem löggiltur endurskoðandi frá árinu 2018 og hefur víðtæka reynslu af fjármálum, endurskoðun og áhættustýringu. Hún starfaði hjá BDO ehf. á árunum 2018 - 2023 þar sem hún sinnti fjölbreyttum endurskoðunar- og ráðgjafaverkefnum fyrir fyrirtæki í ólíkum geirum, meðal annars í sjávarútvegi og hótel- og veitingarekstri ásamt fyrir sveitarfélög og fjármálafyrirtæki.

Á árunum 2013 - 2017 starfaði Hrund sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði Deloitte og kom þar að endurskoðun stærstu fjármálafyrirtækja landsins, meðal annars Íslandsbanka og Arion banka, sem og rekstrarfélaga verðbréfasjóða og smærri fjármálafyrirtækja.

Frá 2005 til 2013 starfaði Hrund hjá Landsbankanum, þar af sem forstöðumaður Eigna- og skuldaáhættu á árunum 2008–2013. Hún stýrði þar teymi sérfræðinga innan áhættustýringar og bar ábyrgð á greiningu markaðs-, eigna- og skuldaáhættu bankans. Hrund starfaði einnig í útibúi bankans í London sem tengiliður við áhættustýringu á Íslandi og sinnti áður verkefnastjórn og uppgjörstengdum verkefnum á áhættusviði bankans.

Hrund er með M.Acc. gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands og B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×