Ferðaþjónusta

Fréttamynd

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Innlent
Fréttamynd

Stöndum vörð um okkar mikil­vægustu at­vinnu­grein

Ferðaþjónustan hefur verið einn helsti drifkraftur farsældar Íslendinga síðasta áratuginn. Hún skilar meiri gjaldeyristekjum til landsins en nokkur önnur atvinnugrein og beinar skatttekjur ríkis og sveitarfélaga af greininni hafa síðustu ár numið meira en 200 milljörðum króna á ári. Það er álíka fjárhæð og áætlaður heildarkostnaður við nýjan Landspítala.

Skoðun
Fréttamynd

Verk­fallið skaði orð­spor Ís­lands

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar eigi að sýna vilja sinn í verki

Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á miðnætti aðfaranótt miðvikudags.

Innlent
Fréttamynd

Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verk­falls

Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara.

Innlent
Fréttamynd

„Fyrir okkur eru flug­ferðir ekki lúxus heldur líf­æð“

Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA),  segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sleppt að lokinni yfir­heyrslu vegna hótel­bruna

Rannsókn á bruna á Center Hotel Skjaldbreið er enn í gangi. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur einn verið yfirheyrður vegna málsins en verið sleppt vegna málsins. Mikið tjón varð á hótelinu og á verslunininni Andrá. 

Innlent
Fréttamynd

„Það eru gríðar­lega miklir hags­munir í húfi“

Innviðaráðherra segir boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair alvarlegt mál og að algjört grundvallaratriði sé að deiluaðilar finni lausn á deilunni áður en til verkfalls kemur. Þó hafi möguleikinn á því að setja lög á verkfall flugvirkja ekki komið til umræðu.

Innlent
Fréttamynd

Hve­nær verður nóg nóg?

Af gefnu tilefni eru miklar umræður um aukna skattheimtu á ferðaþjónustu. Mig langar því að fara yfir gjöldin á mitt litla fyrirtæki og hvernig þau hafa aukist síðan ég stofnaði það árið 2017.

Skoðun
Fréttamynd

Ferða­þjónustan gerir Ís­land skemmti­legra

Hugsum aðeins um Ísland fyrir tuttugu árum. Hversu fjölbreytt var úrval veitingastaða, menningar og afþreyingar? Hversu margt spennandi var í boði fyrir Íslendinga sem vildu njóta alls þess sem Ísland hefur upp á að bjóða? Svarið er einfalt. Ekki svo ýkja mikið.

Skoðun
Fréttamynd

Telur yfir milljarð á dag í húfi

Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafa sam­band við far­þega

Icelandair segir að komi til verkfallsaðgerða flugvirkja muni það hafa veruleg áhrif á flugáætlun félagsins þó að ekki sé hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið. Komi til breytinga á flugáætlun muni starfsmenn félagsins hafa samband við farþega. Ítrekað hafi það verið lagt til að leggja málið fyrir gerðardóm.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar fara í verk­fall

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Tak­mörkuð sólmyrkvaáhrif“

Fjöldi ferðamanna hér á landi í sumar dróst lítilega saman milli ára og sólmyrkvinn dró ekki eins marga til landsins og menn vonuðu að sögn ferðamálastjóra. Ferðaþjónustan sé þó nokkuð sátt við sumarið miðað við óvissu í heimsmálunum.

Innlent
Fréttamynd

Er­lendi ferða­maðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins?

Umræðan um erlenda ferðamenn virðist í vaxandi mæli snúast um eina spurningu: Hvernig getum við skattlagt þá meira? Fyrirhugað er að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24% og jafnframt eru uppi hugmyndir um sérstakt innviðagjald á erlenda ferðamenn.

Skoðun
Fréttamynd

„Nú er þessi sleggja að koma fram“

Hækkanir ríkisins á gjaldskrám gætu orðið minni en kom fram í fjárlagafrumvarpi ef þríhliða kjaraviðræður við aðila vinnumarkaðarins ganga vel. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á Sprengisandi í morgun og þá sagðist hún gefa lítið fyrir þá nálgun að hækkun kílómetragjalds kæmi sérstaklega illa við íbúa á landsbyggðinni.

Innlent
Fréttamynd

Sektaður fyrir að skila ekki yfir­liti um heimagistingu

Einstaklingur sem leigði íbúð út til heimagistingar þarf að greiða hundrað þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyir að skila ekki yfirliti um útleiguna til sýslumanns. Hann sagðist aðeins hafa leigt húsnæðið út í eitt skipti í viku.

Innlent