Erlent

Banna er­lendum nem­endum að sækja Harvard

Samúel Karl Ólason skrifar
Ríkisstjórn Donalds Trump á í miklum deilum við stjórnendur Harvard.
Ríkisstjórn Donalds Trump á í miklum deilum við stjórnendur Harvard. AP/Charles Krupa

Ríkisstjórn Donalds Trump, tilkynnti forsvarsmönnum Harvard háskólans í dag að heimild skólans til að taka við nemendum erlendis frá hefði verið felld úr gildi. Þessu var hótað í síðasta mánuði en Trump og hans fólk hafa gengið hart fram gegn skólanum og öðrum í Bandaríkjunum.

Meðal annars er búið að frysta opinberar fjárveitingar til skólans en þetta nýjasta útspil mun líklega koma verulega niður á fjármálum hans. Deilurnar hafa að miklu leyti snúist um umfangsmikil mótmæli í bandarískum háskólum gegn hernaði Ísraela á Gasaströndinni.

Í tilkynningu frá heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna segir að aðgerðirnar feli í sér að erlendir nemendur í skólanum þurfi að finna sér nýja skóla, annars muni þeir missa landvistarleyfið.

Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að forsvarsmenn skólans hafi skapað óöruggt umhverfi í skólanum með því að leyfa and-bandarískum einstaklingum sem fylgi hryðjuverkamönnum að máli að áreita og ráðast á einstaklinga og þar á meðal marga gyðinga. Margir þessara hættulegu aðila séu erlendir.

Þá er haft eftir Kristi Noem, heimavarnaráðherra, að stjórnendur Harvard beri ábyrgð á ástandinu og þeir hafi einnig átt í samstarfi við Kommúnistaflokk Kína. Hún segir það forréttindi en ekki réttindi fyrir háskóla að fá að taka við erlendum nemendum.

„Harvard höfðu næg tækifæri til að gera hið rétta. Þeir neituðu,“ segir Noem.

„Allir háskólar og menntastofnanir í Bandaríkjunum geta túlkað þetta sem aðvörun.“

Þetta ítrekaði hún í viðtali við Fox News.

Hafa hafnað kröfum Trumps

Markmið Trump-liða er meðal annars að fá forsvarsmenn skólans til að breyta stjórnarháttum, ráðningum og inntökuskilyrðum. Forsvarsmenn margra annarra skóla hafa orðið við kröfum ríkisstjórnarinnar.

Stjórnendur Harvard hafa ekki viljað gera það og hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir segja aðgerðir hennar gegn skólanum ólöglegar.

Sjá einnig: Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunar­aðgerða hennar

Um 6.800 nemendur skólans á þessu skólaári koma erlendis frá eða rétt rúmur fjórðungur allra nemenda, samkvæmt gögnum sem vísað er í í frétt New York Times. Hlutfallslega borga erlendir nemendur stærri hluta skólagjalda skóla í Bandaríkjunum.

NYT hefur eftir talsmanni skólans að þessi nýjasta aðgerð stjórnvalda gegn skólanum sé ólögleg. Nemendur skólans og rannsakendur komi frá rúmlega 140 löndum og komið verði í veg fyrir að þeir verði að leita annað.

Noem hafði krafði stjórnendur Harvard um upplýsingar um sakaskrár og möguleg reglubrot erlendra nemenda við skólann. Þeirri kröfu hafa stjórnendur skólans ekki orðið við.

Heimildarmaður NYT meðal stjórnenda skólans segir að skólinn muni að öllum líkindum höfða annað mál gegn ríkisstjórninni vegna þessara aðgerða.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim

Forsvarsmenn heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa að undanförnu skikkað starfsmenn í lygapróf. Það er liður í viðleitni til að bera kennsl á fólk sem hefur rætt við blaðamenn.

Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard

Ríkisstjórn Repúblikana í Bandaríkjunum hefur hótað að banna Harvard háskólanum að taka við erlendum nemendum í nám skólans þar sem stjórn skólans neitaði að fara eftir skilyrðum stjórnarinnar. Meðal skilyrða er að tilkynna nemendur til alríkisyfirvalda sem eru andsnúnir „bandarískum gildum.“

Frysta milljarða fjár­veitingar til að refsa Harvard-háskóla

Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur fryst milljarða dollara framlög alríkisstjórnarinnar til Harvard-háskóla eftir að stjórnendur skólans neituðu að láta undan kröfum hennar. Forseti skólans segir alríkisstjórnin reyna að taka yfir stjórn hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×