Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Kjartan Kjartansson skrifar 18. október 2026 07:02 Johan Rockström Johan Rockström, forstjóri Potsdam-stofnunarinnar Vísir/Anton Brink Mannkynið hefur bæði þekkinguna og tólin til þess að kveða loftslagsvandann í kútinn en eitt stærsta verkefnið er að brjóta á bak aftur popúlískt andóf gegn aðgerðum, að mati eins af fremstu loftslagsvísindamönnum í heimi. Einangrunarhyggja og skammsýni stefni árangri í baráttunni í hættu.
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindalega skilgreind þolmörk jarðar sem sýnir að menn ganga nærri velferð náttúrulegra kerfa plánetunnar sem aldrei fyrr. Síðustu ár hefur Rockström varað við hættunni á að svonefnd veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) veikist verulega eða hrynji með áframhaldandi hlýnun jarðar en það hefði hamfarakenndar afleiðingar fyrir lífsskilyrði við norðanvert Atlantshaf. Í viðtali við Vísi ræðir Rockström meðal annars um hvers vegna áhyggjur af veikingu AMOC hafi farið vaxandi, hvernig Amasonregnskógurinn gæti orðið að Amasongresjunni í framtíðinni og hversu bjartsýnn hann er á að menn leysi loftslagsvandann, sérstaklega í ljósi uppgangs afla sem eru andsnúin loftslagsaðgerðum víða um heim. Norðurlöndin, utan Íslands, ekki brugðist við ákallinu Rockström var einn tuga loftslags- og jarðvísindamanna sem lögðu nafn sitt við opið bréf til norrænna ráðherra sem þeir afhentu Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þáverandi loftslagsráðherra, á ráðstefnu í Hörpu haustið 2024. Þar skoruðu vísindamennirnir á norræna ráðherraráðið að taka mögulegt hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) alvarlega og beita sér fyrir skjótari loftslagsaðgerðum á heimsvísu. Þeir Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, skrifuðu saman grein sem birtist í íslenskum og sænskum fjölmiðlum í janúar þar sem þeir hjuggu í sama knérunn og hvöttu til þess að kerfisáhætta í loftslagsmálum yrði sett á dagskrá norrænna stjórnvalda. Finnst þér að árangur hafi náðst og að ráðherrar hafi tekist á við verkefnið? „Það hefur klárlega fengið verulega athygli á Íslandi og frá ríkisstjórn Íslands en ég sé ekki þær aðgerðir sem þörf er á frá norrænum ráðherra og norræna ráðherraráðinu,“ svarar Rockström. Hann hefði búist við að mögulegt hrun veltihringrásarinnar yrði talin norræn öryggisógn sem ætti að vera á dagskrá funda þjóðaleiðtoga á Norðurlöndunum og hún borin fram á vettvangi Norðurskautsráðsins. „Við höfum ekki séð það sem ég tel að séu mistök. Þess vegna verðum við að halda áfram að koma til skila vísindalegu áhættumati hér,“ segir hann við Vísi. Allt bendir til þess að hringrásin veikist Veiklun og jafnvel algert hrun veltihringrásarinnar hefur verið ofarlega á baugi síðustu árin. Hringrásin flytur hlýjan sjó úr suðurhöfum norður á bóginn og gerir aðstæður við norðanvert Atlantshaf vistlegri en ella. Talið er að bráðnunarvatn af jöklum á norðurskautinu og hlýnun sjávar hafi þegar hægt á hringrásinni. Þótt þversagnarkennt kunni að hljóma gæti ein afleiðing stórfelldrar hnattrænnar hlýnunar orðið sú að það snöggkólni á Íslandi og víðar í norðanverðri Evrópu. Stefan Rahmstorf, þýskur hafeðlisfræðingur og kollegi Rockström frá Potsdam, hefur dregið upp dökka sviðsmynd um allt að níu gráðum lægri vetrarhita á Íslandi ef hringrásin stöðvaðist alveg og tuttugu gráðu kólnun við strendur Noregs. Rockström segir vaxandi áhyggjur af örlögum veltihringrásarinnar á síðustu árum skýrast af nýjum rannsóknum úr nokkrum áttum. Hermilíkön sem IPCC, loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, styðst við, sem hafa verið afar varfærin til þessa, hafa ekki verið rýnd sérstaklega með þróun AMOC í huga. Þegar þau eru skoðuð aftur kemur í ljós að meirihluti sviðsmynda sem gera ráð fyrir núverandi þróun í losun sýnir verulega veikingu hringrásarinnar. Rockström segir að þessar niðurstöður séu einna mest sannfærandi að hans mati vegna þess að þær byggist ekki á umdeildum forsendum og geri ekki ráð fyrir að neinum vendipunktum verði náð. „Þegar menn líta aftur á þessi gögn sjá þeir að, guð minn góður, þau leiða svo gott sem öll til verulegrar veikingar,“ segir Svíinn. Nýjar rannsóknir og lengri mæliraðir á sjávarhita og aukinn skilningur á því að AMOC sé ekki einangrað kerfi styðji einnig að hringrásin veikist með aukinni hlýnun. Hringrásin tengist Golfstraumnum, Labradorhafi, svaltempruðu hafhringrásinni, suðurhöfum og úrkomumynstri á jörðinni. Allt beri þannig að sama brunni. Verulegar líkur séu á að hringrásin veikist eða hrynji ef menn haldi áfram að velgja jörðinni undir uggum. „Þegar þú lítur á þessar mismunandi vísbendingar, jafnvel þó að þeim fylgi öllum óvissa, þá draga þær raunverulega úr óvissu þegar þú leggur þær allar saman vegna þess að þær benda allar í sömu átt,“ segir Rockström. Kólnun í hlýnandi heimi Vandasamt er að segja til um hvaða áhrif það hefði á lífsskilyrði á Íslandi og annars staðar í Norður-Atlantshafi ef veltihringrásin veiktist verulega, jafnvel þótt hún hryndi ekki strax. Rockström segist ekki kunnugt um neinar greiningar á beinum áhrifum veikingar á mismunandi stigum hennar. Áhrifin réðust af því hversu mikið og hversu hratt hringrásin hægði á sér. Veiktist hún um helming bærist minna af hlýjum sjó norður og svonefndur kuldapollur í hafinu suðvestan við Ísland stækkaði. „Þannig að það væri líklegt að þið upplifðuð þá þverstæðu að í miðri hlýnandi Norður-Evrópu hefðuð þið þessa uppsprettu hlutfallslegrar kólnunar,“ segir Rockström. Hann bendir á að veruleg óvissa sé um hvenær veiking hringrásarinnar gæti náð vendipunkti þar sem hrun verður óumflýjanlegt. „Við vitum ekki nákvæmlega hvenær við förum yfir vendipunkt þannig að við gætum lent í aðstæðum fyrir árið 2100 þar sem að við værum með töluverða veikingu en við værum þegar komin yfir vendipunkt en hringrásin tekur langan tíma að hrynja,“ segir Rockström. Í þessu samhengi segir Rockström miklar hitaöfgar í Evrópu í sumar áhyggjuefni. Sterkur El niño-atburður í Kyrrahafi sem hófst á þessu ári geti ekki skýrt umfang öfganna. Hugsanlegt sé að veiking veltihringrásarinnar eða breyting á norrænu vindröstinni hafi haft sitt að segja. Þó að vísindaleg óvissa sé enn til staðar um hvort og þá við hvaða mörk hringrásin gæti stöðvast eru afleiðingar þess svo alvarlegar að menn verða að taka hættunni alvarlega. Rockström ræddi í Háskólabíói meðal annars um níu þolmörk jarðar sem hann og fleiri vísindamenn skilgreindu. Sjö þeirra eru nú talin í hættu.Vísir/Anton Brink Rockström segir að líkurnar á hruni AMOC séu einhvers staðar frá einu prósenti upp í fimmtíu, en jafnvel eins prósents líkur á hamförum sé há tala. Ef líkurnar á því að það kviknaði í húsi væru eitt prósent þýddi það að það kviknaði í því á hundrað daga fresti. „Maður verður að hugsa um þetta þannig,“ segir hann. Út af farvegi lífsins Í fjölsóttum fyrirlestri í stóra sal Háskólabíós á föstudag fyrir rúmri viku dró Rockström upp dökka mynd af stöðu jarðar vegna þeirra gríðarlegu breytinga sem menn valda nú á henni með athöfnum sínum. Hægt er að hlusta á horfa á erindi Rockström í Háskólabíói í spilaranum hér fyrir neðan. Rauð viðvörunarljós loguðu fyrir flest helstu kerfi jarðar, þar á meðal stóru landísbreiðurnar, Amasonfrumskóginn og Atlantshafsveltihringrásina, sem væru þar að auki tengd innbyrðis. Yrði farið yfir þolmörk í einu þeirra gæti það hrundið af stað óafturkræfu hruni í hinum. Sæju menn ekki að sér færðu þeir lífsskilyrði á jörðinni langt út fyrir það óvenju stöðuga loftslag frá lokum síðustu ísaldar sem gerði mannkyninu kleift að fjölga sér og þróast eins hratt og raun hefur borið vitni. „Sumar, vor, haust og vetur urðu fyrirsjáanlegir. Regntímabil komu og fóru fyrirsjáanlega. Hiti varð það stöðugur,“ sagði hann um aðdraganda landbúnaðarbyltingarinnar. Þá tók nútímamaðurinn stökk fram á við og fjölgaði mjög eftir að hafa hafst við á veiðum og söfnun í hundruð þúsunda ára þegar ísaldir og hlýskeið skiptust á með afar breytilegu loftslagi. Myndin sýnir hitasveiflur á jörðinni síðustu fjögur hundruð þúsund árin. Græni renningurinn í miðjunni stendur fyrir það sem Rockström kallar farveg lífsins, það stöðuga loftslags sem varð kveikjan að hraðri framþróun mannkyns eftir síðustu ísöld. Loftslagið er nú á hraðri leið út fyrir þann farveg vegna stórfelldrar losunar manna á gróðurhúsalofttegundum.Planetary Boundaries Science Notaði Rockström takmarkaðar hitasveiflur síðustu um tólf þúsund ára sem mælistiku á „farveg lífsins“, nokkurs konar kjöraðstæður fyrir núverandi lifnaðarhætti manna. Nú stefni í að hnattræn hlýnun nái þremur gráðum borið saman við tímabilið fyrir iðnbyltingu fyrir lok aldarinnar. Svo mikil hlýnun hafi ekki átt sér stað á jörðinni í þrjár milljónir ára. „Við erum að skjóta sjálfum okkur út úr þessum farvegi lífsins,“ sagði Rockström í fyrirlestrinum. Sjúklingurinn í hættu en stendur enn Rockström var leiðandi afl í að búa til svonefndan ramma um þolmörk jarðar í níu flokkum undir formerkjum Varðmanna plánetunnar (e. Planetary Guardians). Niðurstaðan er að mannkynið sé þegar búið að ýta jörðinni út fyrir þolmörkin í sjö flokkum. Einu flokkarnir sem eru innan þolmarkanna eru ósonlagið og svifryksmagn í andrúmsloftinu en árangur hefur náðst í báðum flokkum í að vinda ofan af fyrri misgjörðum manna. Skýringarmynd af þolmörkum jörðum samkvæmt vísindalegum ramma sem Rockström og félagar hönnuðu. Rauðir og gulir litir tákna að jörðin nálgist eða sé farin yfir þolmörk í tilteknum flokkum.Planetary Health Check Líkti Rockström rammanum um þolmörk jarðar við heilsufarsskoðun hjá lækni. Niðurstaðan væri slæm, en þó ekki alslæm. „Við erum í hættu, við erum fyrir utan örugga svæðið en niðurstaðan er að sjúklingurinn er enn uppistandandi. Hann hefur enn merkilega getu til þess að dempa neikvæðu áhrifin með lífefnafræðilegum hætti. Það er í raun ótrúlegt. Við höfum engar vísbendingar um að við höfum varanlega farið yfir vendipunkta,“ sagði hann í fyrirlestrinum. Örlög kóralrifjanna innsigluð innan skamms Fyrstu fórnarlömbin eru kóralrifin í hitabeltinu. Ólíkt mögulegu hruni veltihringrásarinnar í Atlantshafi, þar sem mikil óvissa er til staðar, eru þolmörk kóralrifjanna mun afmarkaðri og óvissumörkin þrengri. „Allir eru í raun sammála um að einhvers staðar á milli einnar og 1,7 gráðu hlýnunar geti hitabeltiskóralrif ekki ráðið við tíðari og ákafari fölnunaratburði. Það er svo einfalt,“ segir Rockström. Kóralrifið mikla við Ástralíu er eitt líffræðilega fjölbreyttasta svæði jarðar með margslugnu vistkerfi. Skakkaföllin hafa dunið á rifinu með endurteknum hitabylgjum og fölnun.Vísir/Getty Kóralar eru afar viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Í viðvarandi hitabylgjum bregðast kóralarnir við álaginu með því að losa sig við þörunga sem lifa samlífi með þeim og þeir fölna. Kóralarnir drepast á endanum ef hitinn er þrálátur. Meiriháttar fölnunaratburðir hafa skekið Kóralrifið mikla undan ströndum Ástralíu ítrekað á undanförnum árum. „Fari þau yfir vendipunkt, fyrir utan að hafa áhrif á lífsviðurværi 400 milljóna manna sem reiða sig á rifin, hefur það svörunaráhrif á grunnsævi sem er undirstaða allrar fæðukeðjunnar og kolefnis- og næringarhringrásina,“ segir sænski vísindamaðurinn. Úr regnskógi í gresju Örlög Amasonregnskógarins, sem menn hafa þrengt verulega að, valda Rockström einna mestum áhyggjum. Frumskógurinn er ekki aðeins eitthvert líffræðilega fjölbreyttasta vistkerfi jarðar heldur gríðarlega stór kolefnisgeymir. Rockström sagði áhlýðendum að ef farið yrði út fyrir þolmörk skógarins gæti komið að vendipunkti þar sem hann breyttist úr kolefnisgeymi í uppsprettu losunar. Ný greining á stöðu regnskógarins bendir til þess að hættan sem steðjar að honum af völdum hraðrar skógareyðingar og minnkandi líffræðilegs fjölbreytileika hafi verið verulega vanmetin, að sögn Rockström. Víðáttumikill skógurinn er eins og tröllaukin rakavél. Meirihluti rigningar sem fellur á skóginn kemur frá útgufun vatns frá trjánum og gróðrinum sjálfum í hringrás sem viðheldur sjálfri sér. „Ef hitinn er hækkaður undir þessu kerfi, ef líffræðilegur fjölbreytileiki tapast, skógurinn eyðist, vatnshringrásin raskast, getur kerfið snúist við og orðið að uppþurrkunarvél og skógurinn breytist í gresju,“ sagði Rockström í fyrirlestrinum. Svöðusár í Amasonfrumskóginum í Brasilíu eftir skógarelda þar árið 2024. Menn ganga einnig nærri skóginum með ólöglegu skógarhöggi.Vísir/EPA Menn ganga ekki aðeins nærri skóginum með því að minnka hann. Rockström segir að aragrúi vegtenginga sem menn hafi rutt þvers og kruss um skóginn búi til göng fyrir heitt og þurrt loft sem þurrki hann upp. „Það er þetta sem getur slökkt á þessari vatnshringrás og það er hættan,“ segir hann við Vísi. Nú þegar er áætlað að menn hafi eytt um átján prósentum skógarins. Greiningin sem Rockström vísar til bendir til þess að ef meira en fjórðungur hennar glatast geti það haft óafturkræf áhrif. „Ef heilbrigður regnskógur fer yfir vendipunkt gæti það tekið hundrað ár áður en hann breytist í gresju en á leiðinni þangað missir hann kolefni, líffræðilegan fjölbreytileika og vatnshringrásina. Það er skyndileg breyting á alla vistfræðilega mælikvarða þó að hundrað ár séu langur tími fyrir okkur mennina. Þetta yrði óstöðvandi, það væri ekki hægt að snúa við.“ Hafa þekkinguna og tólin til að forðast hörmungar Allt útlit er fyrir að mannkynið nái ekki markmiðum sínum um að halda hnattrænni hlýnun innan við 1,5 gráður frá upphafi iðnbyltingar. Varaði Rockström við því að ef menn tækju sig ekki saman í andlitinu fyrr en eftir að hlýnun nær þremur gráðum verði það of seint. „Við festumst þar og verðum að minnsta kosti til ársins 3000, og ég er nokkuð viss um að það verði langt umfram það, föst í þriggja gráðu hlýnun sem verður vafalaust sundraður heimur sem getur mjög ólíklega staðið undir lífi með þeirri reisn sem við ætlumst til,“ sagði hann. Rockström lýsti hóflegri bjartsýni á að hægt yrði að ná tökum á vandanum með því að afkolefnisvæðast hratt og binda og farga kolefni til þess að vinda ofan af framúrkeyrslunni þótt það gæti tekið áratugi eða aldir. Nefndi hann meðal annars að mannkynið byggi bæði yfir þekkingunni og verkfærunum til þess að leysa loftslagsvandann. Er ekki áhyggjuefni þá að jafnvel hér á Íslandi, sem þú lofaðir fyrir forystuhlutverk í loftslagsmálum, séu menn órafjarri losunarmarkmiðum sínum og að nú séu alls kyns hægripopúlískir flokkar að komast til áhrifa í Evrópu og Brasilíu? Telur þú að það sé leið til þess að stöðva loftslagsbreytingar áður en þær fara algerlega úr böndunum? „Ég held að það sé mikilvægt að orða það þannig að vísindalega matið er mjög dökkt. Það er samt ekki hægt að kenna vísindamönnunum um allt sem hefur farið úrskeiðis því vísindin sýna að glugginn til þess að leysa vandann er enn opinn. Þegar þú leggur saman þessi áríðandi vísindi við pólitíska landslagið um þessar mundir er ástæða til þess að hafa miklar áhyggjur,“ segir hann við Vísi. Leiðtogar stórra ríkja eins og Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, Angela Merkel, fyrrverandi kanslari Þýskalands, og jafnvel Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hafi öll reynt að takast á við vandamálið en mistekist. „Núna erum við í þeirri stöðu að popúlismi, þjóðernishyggja, einangrunarhyggja og skammsýni eru ótrúlega sterk og ógna jafnvel fremstu loftslagsstefnu heimsins í Evrópusambandinu. Hvernig við brjótum þetta á bak aftur er stóra verkefnið núna.“ Samkeppnin við Kína haldi Evrópu við loftslagsmarkmið sín Heimurinn hverfist nú um póla tveggja ólíkra heimsvelda, annars vegar Bandaríkin sem hafi ákveðið að vera áfram olíuríki og hins vegar Kína sem ætli að verða raforkuríki. Kína taki nú stór skref í rafvæðingu og sé leiðandi í bæði hreinorkusamgöngutækni og endurnýjanlegum orkugjöfum. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, forseti Kína, takast í hendur í nýlegri heimsókn þess síðarnefnda vestanhafs. Ríkin tvö hafa tekið ólíka stefnu gagnvart orkugjöfum framtíðarinnar. Bandaríkin stefna á framlengja olíuöldina en Kínverjar eru nú leiðandi í endurnýjanlegri orku og nýorkutækjum.Vísir/EPA Þess vegna segir Rockström að ein sterkustu rökin fyrir því að Evrópusambandið haldi óbreyttri stefnu í loftslagsmálum séu ekki vísindalegs eðlis heldur kínverska ógnin. „Það er samkeppnin við Kína sem sannar að það að hafa metnaðarfulla loftslagsstefnu hjálpar þér að þvinga iðnaðinn til þess að auka samkeppnishæfni og nýsköpun í því sem verður augljóslega markaðsforskot framtíðarinnar,“ segir hann. Gagnrýnir sænsk stjórnvöld fyrir popúlisma Tilraunir popúlískra afla til þess að lækka jarðefnaeldsneytisverð til þess að kaupa sér vinsældir kjósenda segir Rockström skaðlegar. „Það er með 100 prósent vissu leið til þess að rústa samkeppnishæfni iðnaðar og þar af leiðandi efnahagslegri þróun þeirra ríkja.“ Rockström gagnrýnir stjórnvöld í heimalandi sínu Svíþjóð þar sem miðhægristjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra hafi þröngvað í gegn stefnu sem hafi leitt til þess að eldsneytisverð sé hvergi lægra í Evrópu en hafi áður verið eitt það hæsta í álfunni. Volvo er einn umsvifamesti vinnuveitandi Svíþjóðar, heimalands Rockström.Vísir/EPA Það skjóti skökku við í landi með nokkra af stærstu fólks- og flutningabílaframleiðendur heims, Scania og Volvo. „Þetta eru stærstu vinnuveitendur landsins og þú rekur viljandi stefnu sem rústar þessum iðnaði. Þessu er leyft að gerast fyrir allra augum bara til vinsælda.“ Rockström segist þó fullviss um að það hilli undir lok þessarar bylgju í stjórnmálum enda sé hún uppskrift að hörmungum. Ekkert vit sé í því fyrir land eins og Svíþjóð eða Evrópuríki almennt að fylla bíla með bensíni og dísil þar sem þau framleiði eldsneytið ekki sjálf heldur þurfi að kaupa það af öðrum. „Þannig að þetta er í allra óhag. Við töpum fyrir plánetuna, við töpum störfum og við töpum því við borgum öðrum. Þetta mun ekki endast, það er svo einfalt.“ Hreinorkubyltingin óstöðvandi úr þessu Orkuskipti, frá jarðefnaeldsneyti til endurnýjanlegra orkugjafa, eru svo langt á veg komin að þau eru óstöðvandi að mati Rockström. „Við erum við upphaf endaloka jarðefnaeldsneytisaldarinnar sem knýr heimshagkerfið. Það eru mjög fáir geirar þar sem það er efnahagslegt vit í því að nota jarðefnaeldsneyti í stað endurnýjanlegrar orku.“ Einu geirarnir sem séu raunverulega háðir jarðefnaeldsneyti séu plastframleiðendur og lífefnaiðnaðurinn. Allir aðrir geti notað aðra valkosti ef menn verðleggja kolefnislosun í samræmi við raunverulegan kostnað sem hlýst af henni. Rockström sagði áhlýðendum í Háskólabíó að smávægilegar breytingar dygðu skammt til þess að mannkynið næði tökum á loftslagsvandanum. Draga þyrfti úr losun um fimm prósent á hverju ári og byrja að fjarlægja kolefni úr lofthjúpnum.Vísir/Anton Brink Rockström segir að samfélagslegur kostnaður við losun á einu tonni af koltvísýringi sé að lágmarki um tvö hundruð evrur. Til samanburðar ganga losunarheimildir í evrópska ETS-viðskiptakerfinu kaupum og sölum fyrir í kringum áttatíu evrur um þessar mundir. „Ef þú verðleggur jarðefnaeldsneyti rétt með kolefnisgjaldi myndir þú í reynd skapa um leið hvata til þess að hætta alveg. Menn myndu einfaldlega rafvæða sig. [Jarðefnaeldsneyti] er mjög óhagkvæmt, því fylgir mikill kostnaður fyrir heilsu manna og það er mjög skaðlegt fyrir hagkerfi. Það er ekkert vit í því lengur og þess vegna eru sannarlega rök fyrir því að við munum snúa dæminu við. Spurningin er bara hvort við gerum það nógu hratt.“
Loftslagsmál Vísindi Hafið Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira