Innlent

RÚV muni óskar eftir upp­lýsingum frá EBU um símakosninguna

Lovísa Arnardóttir skrifar
Stefán segir að RÚV muni fylgjast með skoðun EBU á símakosningu.
Stefán segir að RÚV muni fylgjast með skoðun EBU á símakosningu. Vísir/Ívar Fannar

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að RÚV muni fylgjast með framvindu mála varðandi símakosninguna í Eurovision. Fjallað var um það í morgun að spænska ríkissjónvarpið hefði óskað þess að símakosningin yrði yfirfarin.

Verulegur munur var á fjölda atkvæða þar í símakosningu í undan- og aðalúrslitum. Ísrael fékk tólf stig í spænsku símakosningunni en engin atkvæði hjá dómnefnd. Á Íslandi fékk Ísrael engin stig frá dómnefnd en fjögur í símakosningu.

„Við munum að sjálfsögðu fylgjast með framvindu mála varðandi símakosninguna og afla sambærilegra upplýsinga og Spánverjar hafa óskað eftir frá EBU,“ segir Stefán í svari til fréttastofu.

Hann segir óvíst hvenær niðurstaða liggi fyrir.

„Við gefum okkur þann tíma sem þarf til að fara nánar yfir þetta, hvað gerist eftir það fer eftir atvikum.“


Tengdar fréttir

Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels

Austurríki kom, sá og sigraði Eurovision söngvakeppnina í gær. Á tíma leit hinsvegar út fyrir að Ísrael myndi bera sigur úr býtum, þrátt fyrir umdeilda þátttöku. Stjórnmálafræðingur segist efins um pólitíska þýðingu keppninnar en aðdáandi sem sniðgekk keppnina segist ekki hissa á góðu gengi Ísrael, það sé að þakka gegndarlausum áróðri á samfélagsmiðlum.

Ein óvæntustu úr­slit Euro­vision-sögunnar

Að loknu dramatísku Eurovision kvöldi í Basel er margt sem fólk klórar sér í kollinum yfir. Austurríkismaðurinn JJ stóð óvænt uppi sem sigurvegari með lagi sínu Wasted Love. Veðbankar töldu allar líkur á sigri Svía sem komust ekki í topp þrjú. Fréttamaður hefur fylgst grannt með Eurovision síðustu ár, og getur með sanni sagt að heildarúrslitin hafi verið ein þau óvæntustu í sögunni.

Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa

Ísraelsk stjórnvöld segja að nú standi til að hleypa ákveðnu magni af hjálpargögnum inn á Gasa svæðið eftir ellefu vikna herkví sem hefur ýtt svæðinu á barm hungursneyðar. Netanjahú forsætisráðherra segir að hungusneyð á svæðinu myndi gera hernum erfiðara fyrir í sókninni inn á svæðið sem nú er hafin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×