Viðskipti innlent

Eftir­litið gefur lítið fyrir yfir­lýsingu Styrkáss og Krafts

Árni Sæberg skrifar
Páll Gunnar Pálsson, til vinstri, er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Ásmundur Tryggvason er forstjóri Styrkáss hf..
Páll Gunnar Pálsson, til vinstri, er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Ásmundur Tryggvason er forstjóri Styrkáss hf.. Vísir

Samkeppniseftirlitið segir skýringar Styrkáss og Krafts á því að hætt var við samruna félaganna ekki í samræmi við þær skýringar sem félögin gáfu eftirlitinu. Félögin hafi óskað trúnaðar um þær skýringar.

Í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins segir að föstudaginn 10. janúar síðastliðinn hafi Styrkás hf. og Kraftur ehf. afturkallað samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins um sameiningu félaganna, en fyrir eigi Styrkás meðal annars félagið Klett sölu og þjónustu ehf.. Við afturköllun tilkynningarinnar falli rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samrunanum sjálfkrafa niður.

Samkeppniseftirlitsins hefur nú birt stutta ákvörðun um lyktir málsins, þar sem meðal annars er gerð grein fyrir meginefni rannsóknarinnar og meðferð málsins. 

Hafi ekki tekið afstöðu til markaðsskilgreininga

Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins segir að af fréttatilkynningu samrunaaðila til fjölmiðla um afturköllun samrunans megi ráða að meginástæða hennar hafi verið sú að Samkeppniseftirlitið hafi ekki fallist á þær markaðsskilgreiningar samrunaaðila, sem hafi að þeirra sögn átt stoð í framkvæmd hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandins og samkeppnisyfirvöldum á Norðurlöndum.

„Rétt er í þessu sambandi að halda því til haga að framangreindar skýringar samrunaaðila eru ekki í fullu samræmi við þær skýringar sem eftirlitinu voru gefnar. Óskuðu samrunaaðilar trúnaðar um þær. Þá er óhjákvæmilegt að taka fram að Samkeppniseftirlitið hafði ekki við rannsókn málsins tekið afstöðu til markaðsskilgreininga í málinu, en rannsókn málsins tók mið af sjónarmiðum aðila í samrunaskrá og fyrirliggjandi fordæmum úr Evrópurétti.“

Hefði orðið ráðandi á fjórtán milljarða markaði

Þá segir að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefði leitt í ljós að samanlagt séu Styrkás og Kraftur samanlagt stærstu innflytjendur vörubifreiða hérlendis. Fyrirtækið Klettur sala og þjónusta, í eigu Styrkáss, sé aðalsöluaðili Scania vörubifreiða hérlendis og reki tengt verkstæði auk annarrar starfsemi, og Kraftur selji meðal annars MAN vörubifreiðar og önnur atvinnutæki og reki tengt verkstæði.

Um sé að ræða mikilvæga atvinnustarfsemi og samkvæmt frummati Samkeppniseftirlitsins virðist heildarstærð hennar nema um 14 milljörðum króna á ári. Þá sé ekki meðtalin viðgerðar- eða viðhaldsþjónusta, sala varahluta eða ásetts búnaðar fyrir vörubifreiðar, önnur þjónusta eða vörusala sem Styrkás/Klettur og Kraftur veiti, eða tengd starfsemi í samstæðu Styrkáss og Skeljar fjárfestingafélags. 

Umsagnaraðilar hafi lýst yfir áhyggjum af stærð samsteypu Styrkáss og að markaðsráðandi staða gæti myndast með samrunanum.

Samkeppniseftirlitið hafi við rannsóknina aflað ítarlegra gagna og umsagna frá markaðsaðilum, auk upplýsinga frá samrunaaðilum sjálfum. „Vill eftirlitið þakka fyrirtækjum á viðkomandi mörkuðum fyrir þá vinnu og gögn sem þau lögðu til í þágu rannsóknarinnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×