Gert að fjarlægja stórt auglýsingaskilti við Miklubraut Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. september 2024 20:38 Skiltið liggur meðfram Miklubraut. Vísir Lónseyri ehf., eigandi lóðar við Miklubraut 101, verður gert að fjarlægja stórt auglýsingaskilti við akbrautina. Á lóðinni er Orkan og bílaapótek Lyfjavals en byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar krafðist þess að skiltið yrði fjarlægt vegna skorts á byggingarleyfi fyrir uppsetningu skiltis.
Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem var kveðinn upp á föstudag. Málavextir eru þeir að Lónseyri og LED Birtingar, sem á og rekur skiltið, kærðu ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík frá 8. mars um að slökkt yrði á auglýsingaskiltinu og það fjarlægt að viðlögðum dagsektum og þess krafist að ákvörðunin yrði felld úr gildi. Tæknilega séð ekki nýtt skilti Ákvörðun byggingafulltrúa byggðist á því að ekki hafi verið gefið út byggingarleyfi fyrir skiltinu og beindi hann upprunalega erindi sínu að Orkunni ehf. Orkan bar fyrir sig að ekki væri um nýtt skilti að ræða heldur uppfærslu á eldra skilti sem hafði verið á þessum stað í fleiri ár. Þá benti byggingarfulltrúi á að eldra skiltið hafði ekki haft byggingarleyfi og þar með um óleyfisframkvæmd að ræða. „Reykjavíkurborg barst fyrirspurn frá Vegagerðinni með tölvupósti 9. febrúar 2024 þar sem óskað var upplýsinga um hvort umrætt skilti hefði verið sett upp með leyfi Reykjavíkurborgar. Skiltið væri staðsett við ein slysahæstu gatnamót landsins og var lýst yfir áhyggjum af áhrifum þess á umferðaröryggi.“ 150 þúsund króna dagsektir 15. febrúar fékk Orkan 30 daga frest til að slökkva á og fjarlægja skiltið ella yrðu lagðar á dagsektir að fjárhæð 150 þúsund fyrir hvern dag sem drægist að ljúka verkinu. LED Birtingar ehf. svöruðu bréfi byggingafulltrúa þann 26. febrúar og bentu á að í lok árs 2021 hefði Kaldalón, móðurfélag Lónseyris, keypt lóðina af Skeljungi og að Orkan væri í fullri eigu Skeljungs. Væri því málið Orkunni óviðkomandi. „Í kjölfar kaupanna hefði LED Birtingar ehf. leigt vegg á lóðinni og sett þar upp umrætt LED-skilti. Skráður eigandi lóðarinnar væri Lónseyri ehf., dótturfélag Kaldalóns ehf. Það væri á ábyrgð lóðareiganda að sækja um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum ella þyrfti skriflegt umboð lóðareiganda fyrir slíkri umsókn.“ Önnur skilti fái að standa án leyfis Hefði bréf byggingafulltrúa því með réttu átt að beinast að LED Birtingum sem eiganda og rekstraraðila skiltisins og lóðareiganda. „Var gerð krafa um að byggingarfulltrúi tæki áform um álagningu dagsekta gagnvart Orkunni til nýrrar meðferðar, meðal annars með vísan til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og þeirrar staðreyndar að önnur svipuð auglýsingaskilti fengju að standa athugasemdalaust víða um borgina án byggingarleyfis.“ Þá sendi byggingarfulltrúi Lónseyri bréf þann 8. mars þar sem var farið fram á sömu kröfur um að slökkva á og fjarlægja skiltið að viðlögðum dagsektum. Lónseyri og LED Birtingar kærðu í kjölfarið ákvörðun byggingarfulltrúa. Umrætt auglýsingaskilti er að finna á þeirri hlið hússins sem snýr að Miklubraut.Katrín Leyfi frá Vegagerðinni lá ekki fyrir Í niðurstöðukafla úrskurðarnefndarinnar er farið yfir það að Miklabraut, þar sem umdeilt skilti stendur, telst stofnvegur og þar með í flokki þjóðvega. Samkvæmt vegalögum er Vegagerðin veghaldari Miklubrautar en í lögunum segir að óheimilt sé að staðsetja auglýsingaskilti við Miklubraut nema með leyfi Vegagerðarinnar. Slíkt leyfi lá ekki fyrir í máli þessu. „Það að kærandi hafi talið að auglýsingaskilti það sem fyrir var á veggnum hafi verið þar með lögmætum hætti leiðir ekki til þess að honum sé óskylt að sækja um byggingarleyfi fyrir hinu nýja skilti, enda hefur óleyfisframkvæmd ekki fordæmisgildi.“ Vísaði nefndin til þessa og var því kröfu Lónseyris og LED Birtinga um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa um að fjarlægja og slökkva á skiltinu hafnað. Dagsektir sem voru lagðar á til og með uppkvaðningu úrskurðarins var þó látnar niður falla.
Auglýsinga- og markaðsmál Neytendur Reykjavík Bensín og olía Tengdar fréttir Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. 30. júlí 2024 19:53 Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira
Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. 30. júlí 2024 19:53