Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Boði Logason skrifar 9. október 2026 20:46 Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn. Streymisveitan Heima opnar á næstu vikum. Sýn Á næstu vikum fer í loftið ný íslensk streymisveita sem ber heitið Heima og er samstarfsverkefni Sýnar og Sagafilm. Einungis íslenskt efni verður í boði.
Í tilkynningu frá félögunum segir að á meðal þess sem verður í boði sé úrval af leiknum íslenskum seríum á borð við Pressu, Næturvaktina, Fóstbræður, Ástríði og Stelpurnar. Þar verður líka að finna skemmtiefni eins og Tekinn, Heimsókn, Hæðina og Ísskápastríð. Safnið mun spanna fjóra áratugi af íslenskri sjónvarpsframleiðslu. Tilkynnt var um samstarfið í afmælisþætti sem sýndur var í kvöld, á fjörutíu ára afmæli fyrstu útsendingar Stöðvar 2 þann 9. október 1986. Stærsti hluti þess efnis sem fer á Heima var upphaflega frumsýnt á Stöð 2 og SÝN en að auki verður í boði úrval efnis sem framleitt hefur verið í gegnum tíðina af Sagafilm. Heima er í sameiginlegri eigu Sýnar og Sagafilm og fyrirtækin leggja bæði til dagskrársöfn sín og reka veituna í sameiningu. Það verður nóg í boði á Streymisveitunni Heima.Sýn „Þetta er efni sem þjóðin ólst upp við og það hefur legið í söfnum. Fjörutíu ár af íslensku sjónvarpsefni varð ekki til af sjálfu sér. Það er til af því að fólk kveikti á sjónvarpinu, borgaði áskriftina og fylgdist vel með. Okkur langar að skila því til baka á einn stað þar sem auðvelt er að finna það,“ segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn, í tilkynningu. Skarphéðinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sagafilm, segir í tilkynningunni að íslenskt sjónvarpsefni eigi skilið betra heimili en að safna ryki í hillum sem enginn hefur aðgang að. „Með þessari nýju alíslensku streymisveitu gefst loksins tækifæri til að nálgast síbreytilegt úrval af íslensku gæðaefni, kvikmyndum, leiknum seríum, allt frá glæpaseríum, dramaseríum til gamansería til sjónvarpsþátta af hvers kyns toga, auk heimildamynda. Stóra markmiðið er svo að Heima verði vísir að heimili íslenskrar framleiðslu. “ Í tilkynningunni segir að Heima fari í loftið á næstu vikum og verði aðgengilegt í gegnum sjónvarpsþjónustu Sýnar. Nánari upplýsingar um opnunardag, verð og vöruframboð verða kynntar þegar veitan opnar. Vísir er í eigu Sýnar.
Streymisveitur Sýn Kvikmyndagerð á Íslandi Fjölmiðlar Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Sjá meira