Viðskipti innlent

Ísey Skyr Bar og Nesti opna í Krónunni Granda

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðs- og þjónustusviðs N1.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðs- og þjónustusviðs N1.

Tveir veitingastaðir, Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt, hafa verið opnaðir innan Krónunnar á Granda. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að stöðunum sé ætlað að þjóna þeim hópi viðskiptavina sem kýs að grípa með sér hollan og góðan tilbúinn mat. Um sé að ræða fyrstu útibú veitingastaðanna í eigu N1 sem opna fyrir utan þjónustustöðvar fyrirtækisins.

Ísey býður upp á ferska og holla safa og skálar þar sem íslenska skyrið er í aðalhlutverki og á matseðli Nesti ferskt og fljótt eru djúsar, samlokur, kaffi og salöt. Í verslun Krónunnar á Granda er nú þegar í boði fjölbreytt flóra minni veitingastaða þar sem viðskiptavinum býðst að grípa með sér fljótlega og tilbúna rétti.

Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að staðirnir tveir rími vel við sýn Krónunnar. Öðrum veitingastöðum í Krónunni hafi verið vel tekið.

„Hugmyndafræðin á bakvið „búð í búð“ innan okkar stærstu verslana hefur verið afar vel tekið af okkar viðskiptavinum, en hingað til hefur úrvalið á þeim stöðum einna helst miðast við viðskiptavini sem gera matarinnkaupin seinnipart dags. Um 20% viðskiptavina Krónunnar kjósa að versla í matinn fyrir hádegi utan álagstoppa seinnipartinn og með tilkomu Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt getur þessi hópur því gætt sér á hollum morgunverði eða millimáli í einni og sömu innkaupaferðinni,“ segir Guðrún.

Ný ásýnd Nestis

Þá er haft eftir Silju Mist Sigurkarlsdóttur, forstöðumanni markaðs- og þjónustusviðs N1, að spennandi sé að kynna nýja ásýnd Nestis. Farið hafi verið í gegnum gagngera endurmörkun með áherslu á hollan mat fyrir fólk á ferðinni.

„Við erum að innleiða nýja sýn þar sem komið er betur til móts við þarfir viðskiptavina og á sama tíma gefið þeim kost á ferskum og góðum valkostum í dagsins amstri. Þetta er því fyrsta skrefið í þeirri vegferð en við munum í framhaldinu bjóða upp á Nesti ferskt og fljótt á okkar þjónustustöðvum. Við erum spennt að sjá hvernig viðskiptavinir Krónunnar á Granda taka á móti stöðunum okkar,“ segir Silja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×