Viðskipti innlent

Berenice ráðin forstöðumaður hjá Advania

Máni Snær Þorláksson skrifar
Berenice hefur verið ráðin forstöðumaður Microsoft-samstarfs hjá Advania.
Berenice hefur verið ráðin forstöðumaður Microsoft-samstarfs hjá Advania. Advania

Berenice Barrios hefur verið ráðin forstöðumaður Microsoft-samstarfs hjá Advania. Hún mun því leiða samstarf um Microsoft-lausnir innan fyrirtækisins og þvert á systurfyrirtæki þess erlendis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania. Þrjú ár eru liðin síðan Berenice hóf störf hjá Advania, áður sinnti hún starfi deildarstjóra í Microsoft-lausnum.

Berenice er fædd og uppalin í Mexíkó. Þar lauk hún BA-gráðu í markaðsfræðum og öðlaðist fjölbreytta reynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Vöxtur Advania erlendis hefur verið mikill undanfarin ár en samkvæmt tilkynningunni hverfist vöxturinn að mestu um Microsoft-lausnir.

Sigurður Sæberg Þorsteinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna Advania, segir Berenice hafa staðið sig vel í störfum sínum hjá fyrirtækinu. Á skömmum tíma hafi hún byggt upp öflugt teymi sérfræðinga.

„Fyrir utan leiðtogahæfni og yfirgripsmikla þekkingu hennar, hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim jákvæðu áhrifum sem hún hefur á samstarfsfólk sitt. Hún er ötul baráttukona fyrir jafnrétti og hefur verið okkur hvatning í því að bæta vinnustaðinn og tryggja jöfn tækifæri fyrir öll kyn og fólk af ólíkum uppruna,“ er haft eftir Sigurði í tilkynningunni.

Hann segir ljóst að Berenice muni gegna lykilhlutverki í því að tryggja ávinning viðskiptavina Advania á Íslandi.

Þá segist Berenice sjálf vera þakklát fyrir þetta nýja hlutverk. Það veiti henni tækifæri til að leggja meiri áherslu á þjónustu og umbreytandi lausnir fyrir viðskiptavini Advania.

„Með því að aðstoða fyrirtæki við að tileinka sér skýjalausnir og markaðstorg Microsoft, öðlast þau verkfæri til að vaxa og kanna ný mið. Það er ánægjulegt að aðstoða fyrirtæki við að móta sér sérstöðu á markaði, hvort sem þau eru að smíða sitt fyrsta app, þróa flókna samþættingu eða kanna nýjar lausnir,” segir hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×