Viðskipti innlent

Rjómablíða tók á móti þotu Niceair

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair, með áhöfn vélarinnar á Akureyrarflugfelli á öðrum tímanum í dag.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair, með áhöfn vélarinnar á Akureyrarflugfelli á öðrum tímanum í dag. Vísir/Tryggvi Páll

Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta í dag þegar Súlur, flugvél Niceair, kom til heimahafnar á Akureyri, nú fyrir stundu.

Þotan, að gerð Airbus A319, kom frá Lissabon í Portúgal. þar sem hún var máluð í einkennislitum Niceair. 

Tekið á móti vélinni skömmu eftir lendingu AkureyrarflugvelliVísir/Tryggvi Páll

Vélin mun sinna áætlunarflugi Niceair, sem í sumar býður upp á ferðir til London, Kaupmannahafnar og Tenerife, frá Akureyrarflugvelli. Í haust áætlar flugfélagið svo að bæta við flugi til Manchester.

Vísir/Tryggvi Páll

Vélin kemur í tæka tíð fyrir jómfrúarferð hins nýja flugfélags, sem áætluð er til Kaupmannahafnar, næstkomandi fimmtudag. Uppselt er í það flug.

Þotunni verður formlega gefið nafn við hátíðleg athöfn á Akureyrarflugvelli í dag, þar sem Eliza Reid, forsetafrú fær þann heiður að nefna flugvélina. Nafnið er að vísu þekkt, þotan ber heitið Súlur, eftir bæjarfjalli Akureyrar.

Segja má að nafnið sé einnig tilvísun í flugsögu Íslands og Akureyrar. Fyrsta farþegaflugið á Íslandi var flogið á milli Akureyrar og Reykjavíkur þann 4. júní árið 1928, á vegum Flugfélags Íslands. Flugvélin sem notuð var nefnd Súlan. Var það fyrsta flugvélin sem kom til Akureyrar.

Ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi binda miklar vonir við að með tilkomu Niceair fjölgi erlendum ferðamönnum á svæðinu, ekki síst yfir vetrartímann.

Vísir/Tryggvi Páll
Vísir/Tryggvi Páll

Tengdar fréttir

Þota Niceair kemur til Akur­eyrar

Airbus farþegaþota akureyrska flugfélagsins Niceair kemur til Akureyrar í dag en jómfrúarflug vélarinnar verður farið næsta fimmtudag.

„Við ætlum að fara fetið, förum varlega af stað“

Framkvæmdastjóri Niceair, nýjasta flugfélags Íslands, telur að markaðurinn fyrir millilandaflug til og frá Akureyri sé sterkur. Fyrst um sinn verður farið varlega af stað með einni Airbus-þotu.

Fjöldi ferðamanna gæti sexfaldast yfir vetrartímann

Fjöldi ferðamanna á Norðurlandi gæti allt að sexfaldast yfir vetrartímann með tilkomu flugfélagsins Niceair sem hefur verið stofnað um millilandaflug um Akureyri. Þetta segir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands sem telur að þetta gæti stórfjölgað störfum í ferðaþjónustu og kallað á frekari uppbyggingu á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×