Erlent

Yfirvöld víða á tánum vegna tilvika fuglaflensu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Yfirvöld í Rússlandi greindu frá því fyrr á þessu ári að þau hefðu fundið, í fyrsta sinn, hið afar smitandi afbrigði H5N8 í mönnum. Myndin er frá 2016.
Yfirvöld í Rússlandi greindu frá því fyrr á þessu ári að þau hefðu fundið, í fyrsta sinn, hið afar smitandi afbrigði H5N8 í mönnum. Myndin er frá 2016. epa/Lech Muszynski

Alþjóðlegu dýraheilbrigðisstofnuninni (OIE) hefur borist nokkur fjöldi tilkynninga síðustu daga um alvarlega fuglaflensu í Evrópu og Asíu. Þá hefur 21 maður greinst með undirtýpu H5N6 í Kína á þessu ári, fleiri en allt árið 2020. 

Í Suður-Kóreu kom nýverið upp smit á 770.000 fugla búi í Chungcheongbuk-do, þar sem slátra þurfti öllum fuglunum. Þá greindu yfirvöld í Japan frá smiti í norðausturhluta landsins í síðustu viku en í því tilviki reyndist um að ræða undirtegundina H5N8.

Í Noregi greindist H5N1 í 7.000 fugla hóp í Rogalandi og stjórnvöld í Belgíu hafa aukið viðbúnað vegna mögulegrar útbreiðslu fuglaflensu og beint því til bænda að halda alifuglum inni eftir að afar smitandi afbrigði greindist í villtri gæs í Antwerpen.

Viðbúnaður er einnig í gildi í Frakklandi og Hollandi.

Fuglaflensa getur smitast í menn ef þeir komast í snertingu við sýktan saur, fjaðrir eða kjöt.

Guardian greindi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×