Suður-Kórea

Suður-Kórea

Höfuðborg: Seúl. Mannfjöldi: 51,6 milljónir (2025). Flatarmál: 100.210 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir

Ráðamenn í Suður-Kóreu heita hörðum viðbrögðum standi einræðisstjórn Norður-Kóreu við þær hótanir að auka viðbúnað á landamærum ríkjanna. Aukin spenna er á Kóreuskaga eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust alvarlega vegna jarðsprengja sem Suður-Kóreumenn segja að hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hótar að auka við­búnað á landa­mærunum

Kim Yo Jong, áhrifamikil systir norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong Un, segir að landamæri ríkisins og Suður-Kóreu séu „mjög óstöðug“. Vegna þessa og annarra aðgerða „glæpamanna“ í Suður-Kóreu sé meðal annars verið að skoða að auka viðbúnað þar og setja aftur upp stóra hátalara við landamærin og básúna pólitísk skilaboð yfir þau.

Erlent
Fréttamynd

Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur

Donald Trump hefur beðið aðstoðarmenn sína um að koma á fundi milli hans og Kim Jong Un. Forsetinn vill hitta einræðisherrann strax í haust, gangi það eftir, og segist ætla að sannfæra Kim um að leggja niður kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu.

Erlent
Fréttamynd

Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum

Forseti Suður-Kóreu kallaði í morgun, þriðjudag, eftir sterku bandalagi við Bandaríkin. Það er eftir að Donald Trump skipaði yfirmönnum bandaríska hersins að draga verulega úr heræfingum með Suður-Kóreu, á þeim grunni að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu vegna vinasambands hans og Kims Jong Un og að Suður-Kóreumenn hefðu ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran.

Erlent
Fréttamynd

Eig­andi Michelin-staðar á­kærður fyrir notkun maura í mat

Eigandi veitingastaðar í Suður-Kóreu hefur verið ákærður fyrir notkun maura í matreiðslu. Hann á yfir höfði sér eins árs fangelsi og tveggja milljóna króna sekt. Athygli vekur að staðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er með tvær Michelin-stjörnur.

Erlent
Fréttamynd

Æfðu á­rás á Suður-Kóreu

Skammdrægrum skotflaugum og stórskotaliðsflaugum og öðrum vopnum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Forsvarsmenn herafla Suður-Kóreu segja að eldflauginni, og öðrum ótilgreindum vopnum, hafi verið skotið á haf út en Norður-Kóreumenn hafa ekki tjáð sig um æfingarnar. Ráðamenn í Rússlandi og Kína lýstu á dögunum yfir andstöðu gegn refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Vill tæpa tvo milljarða frá Samsung vegna myndar

Dua Lipa, poppstjarnan heimsfræga, hefur höfðað mál gegn Samsung, tæknirisanum frá Suður-Kóreu. Hún segir fyrirtækið hafa notað mynd af henni utan á kassa fyrir sjónvörp í leyfisleysi og fer fram á fimmtán milljónir dala (um 1,8 milljarða króna) í skaðabætur.

Lífið
Fréttamynd

Kaupa CCP aftur frá Kóreu

Stjórnendur íslenska fyrirtækisins CCP hafa gert samkomulag við forsvarsmenn móðurfélags þess frá Suður-Kóreu, um að kaupa fyrirtækið aftur, sex árum eftir að það var selt til Pearl Abyss. Kaupvirðið er sagt vera fimmtán milljarðar króna en fyrirtækið var á sínum tíma selt fyrir 29 milljarða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bestu kvik­myndir 21. aldarinnar

Fyrsti fjórðungur 21. aldarinnar er liðinn og af því tilefni ákváðu tveir íslenskir háskólaprófessorar að taka saman lista yfir 25 bestu kvikmyndir tímabilsins. Þeir leituðu til 149 íslenskra álitsgjafa og úr varð forvitnilegur listi með afgerandi sigurvegara og miklum kynjahalla.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

At­vinnu­laus aumingi trompar dauðakölt

Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fyrr­verandi for­seti dæmdur í fimm ára fangelsi

Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir misnotkun valds, hindrun framgangs réttvísinnar og fyrir skjalafals í tengslum við misheppnaða tilraun hans til að setja á herlög í landinu árið 2024. Um er að ræða fyrstu dómsuppkvaðninguna yfir forsetanum fyrrverandi, en hann gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu, jafnvel dauðarefsingu, þar sem enn á eftir að kveða upp úrskurði í þremur málum til viðbótar sem tengjast embættisfærslum forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Lögðu lengi á ráðin um her­lög

Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár.

Erlent