Viðskipti innlent

Forn­bóka­búðin á Klappar­stíg opnar úti­bú í hús­næði Máls og menningar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ari Gísli Bragason, eigandi fornbókabúðarinnar Bókin á Klapparstíg, opnar útibú í kjallara Máls og menningar á Laugavegi.
Ari Gísli Bragason, eigandi fornbókabúðarinnar Bókin á Klapparstíg, opnar útibú í kjallara Máls og menningar á Laugavegi. Vísir/Facebook

Fornbókabúðin Bókin, sem staðsett er á horni Klapparstígs og Hverfisgötu mun opna útibú í kjallara Laugavegar 18, þar sem Mál og menning var áður til húsa. Útibúið verður staðsett í kjallaranum en á efri hæðunum verður opnaður tónleikastaður og kaffihús að sögn Ara Gísla Bragasonar, eiganda Bókarinnar.

Ari Gísli opnar útibúið í samstarfi við Garðar Kjartansson, veitingamann. Stefnt er á að opna staðinn þann 1. desember eða eftir því sem kórónuveirufaraldurinn leyfir. Ari segir líklegt að það verði ekki fyrr en eftir áramót.

Kæru vinir og vinkonur allar. Í dag opna ég bókabúðina mína Bókin Klapparstíg 25-27, lokað hefur verið 2 vikur. Búðin...

Posted by Ari Gísli Bragason on Sunday, October 25, 2020

„Við erum bara að koma okkur fyrir í kjallaranum og ég verð þarna með einhverjar 25 þúsund bækur til sölu. Svo fer það bara eftir kóvitinu hvenær við náum að opna,“ segir Ari Gísli í samtali við fréttastofu.

Garðar hefur undirritað tíu ára leigusamning við eigendur húsnæðis Máls og menningar.

„Þetta verður hús tónlistar, bókmennta og lista,“ sagði Garðar í samtali við Vísi í byrjun október. Stefnt er að því að hafa líflegt í húsinu og er stefnt að því að þar verði lifandi tónlist öll kvöld vikunnar. Húsnæðið mun áfram bera nafnið Mál og menning.

Bókin á Klapparstíg verður áfram opin fyrir bókmenntaáhugamenn og virðast einhverjir netverjar spenntir fyrir nýju útibúi Bókarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×