Lykilfólki hjá Isavia sagt upp störfum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2020 16:38 Móðurfélag Isavia sér um rekstur Keflavíkurflugvallar og stoðdeildir Vísir/Vilhelm
Flugvallarstjóra Reykjavíkurflugvallar, viðburðarstjóra og aðstoðarkonu forstjóra hjá Isavia var sagt upp störfum í dag. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við Vísi að fyrirtækið sé í skipulagsbreytingum. Samtals hefur fimm verið sagt upp í febrúar og þar af þremur á síðustu dögum. Heildarfjöldi starfsmanna hjá Isavia er um 1300 manns. Auk þess var starfsmannastjóra á Keflavíkurflugvelli sagt upp störfum. Fyrir jól fengu tveir framkvæmdastjórar á Keflavíkurflugvelli uppsagnarbréf. Ingólfur Gissurarson, fráfarandi flugvallarstjóri Reykjavíkurflugvallar, segir að uppsögnin hafi komið sér jafnmikið í opna skjöldu í morgun og öðrum. Miklar breytingar séu vissulega í gangi hjá fyrirtækinu. Þetta sé partur af lífinu og hann haldi áfram veginn. Isavia hefur verið skipt upp í móðurfélag sem sér um rekstur Keflavíkurflugvallar og stoðdeildir. Tvö dótturfélög hafa verið stofnuð um innanlandsflugvelli annars vegar og flugleiðsögukerfi á Norður-Atlantshafi hins vegar. Forstjóri Isavia hefur sagt skiptinguna í þeim tilgangi að skýra línur og veita rekstrareiningum aukið sjálfstæði.
Vinnumarkaður Vistaskipti Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Sorpa endurskoðar verðskrá vegna losunar hrossataðs Neytendur Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Sjá meira