Allt að 1,7 prósenta lækkun á íbúðalánavöxtum Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. október 2019 08:27 Almennt hefur hægst á fasteignamarkaðnum eftir mikla siglingu undanfarinna ára. Vísir/vilhelm
Vextir á fasteignalánum hafa lækkað um 0,5 til 1,7 prósentustig samhliða 1,25 prósentustiga lækkun á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands frá því í maí. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir október. Um leið hefur aðeins dregið úr nýjum íbúðalánum frá því í september og frá sama mánuði árið áður. „Mikill munur er þó á samsetningu nýrra lána en ný óverðtryggð lán hafa aukist um 41% á milli ára meðan verðtryggð lán hafa dregist saman um 51%,“ að því er segir í samantekt um skýrsluna.Merki um lítinn samdrátt Almennt hefur hægst á fasteignamarkaðnum eftir mikla siglingu undanfarinna ára. Meðalsölutími íbúða annarra en nýbygginga hefur þó lengi haldist nokkuð stöðugur á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur dregið úr veltu í byggingariðnaði á árinu og innflutningur á byggingarhráefni hefur dregist saman. Starfsfólki í byggingariðnaði með erlent lögheimili hefur jafnframt farið fækkandi undanfarin tvö ár og fækkar enn. Starfsfólk með íslenskt lögheimili hefur hins vegar ekki verið fleira síðan árið 2008. „Heildarfjöldi starfsfólks í greininni er því enn með mesta móti. Því fjölgar þó hægar en áður og voru 3% fleiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra.“ Skýrslu íbúðalánasjóðs fyrir október 2019 má nálgast í heild hér.
Efnahagsmál Húsnæðismál Mest lesið ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent Kerecis fólk fjárfestir í flugi Viðskipti innlent Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Fleiri fréttir Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Sjá meira