Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Jón Daníelsson segir af skelfilegum aðstæðum í húsnæði Félagsbústaða við Bríetartún 20. Jón segir til standa að dóttur hans, sem er fíkill, verði hent þaðan út vegna vangreiddrar húsaleiguskuldar meðan nær væri að hún fengi greitt fyrir að sætta stöðugum ógnum annars leigjanda. Innlent 5.5.2025 11:18
Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir vöruhúsið við Álfabakka, eða „græna skrímslið“ flókið mál. Húsið hafi verið lengi á skipulagi en útlitið hafi farið fyrir brjóstið á fólki þegar húsið var komið upp. Borgin sé tilbúin til að miðla málum svo hægt sé að finna lausn sem henti öllum. Innlent 4.5.2025 22:44
Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Tímaspursmál sé hvenær fasteignamarkaðurinn taki við sér en mikið misræmi er á milli framboðs og eftirspurnar að mati hagfræðings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar. Staðan hafi vissulega verið svartari þó að nýjar íbúðir seljist illa. Innlent 4.5.2025 21:00
Kaupsamningur undirritaður um Grósku Fasteignafélagið Heimar undirritaði í gær samning um kaup á öllu hlutafé Grósku ehf. og Gróðurhússins ehf. Gróska á fasteigninga Grósku í Vatnsmýrnni, eina stærstu skrifstofubyggingu landsins. Viðskipti innlent 24. apríl 2025 08:02
Opið hús fyrir útvalda Viðskiptaráð gaf nýverið út úttekt á húsnæðisstefnu stjórnvalda undir yfirskriftinni Steypt í skakkt mót. Þar kemur fram að húsnæðisskortur á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist vegna stefnu um að draga úr framboði nýrra íbúða á almennum húsnæðismarkaði. Skoðun 23. apríl 2025 07:33
Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Nýjar íbúðir seljast verr en gamlar íbúðir vegna þess að nýjar íbúðir eru á þrengra stærðarbili. Tvöfalda þyrfti magn smærri íbúða á fasteignamarkaði til að anna eftirspurn. Meiri verðhækkun og minni sveiflur á fasteignamarkaði en á markaði innlendra hlutabréfa er til marks um óeðlilega stöðu á eignamarkaði á Íslandi samkvæmt HMS. Viðskipti innlent 23. apríl 2025 06:26
Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Fjarðabyggð hefur verið dæmd til að kaupa hús á Reyðarfirði á 139 milljónir króna. Fasteignamat hússins er 72,25 milljónir króna, rétt rúmlega helmingur kaupverðsins. Viðskipti innlent 22. apríl 2025 16:22
Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, tókust á um borgarmálin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þær ræddu leikskólamálin og húsnæðismálin og voru ekki sammála um margt. Innlent 22. apríl 2025 10:33
Hvernig húsnæðismarkað vill Viðskiptaráð? Bjarg íbúðafélag var stofnað árið 2016 sem viðbragð við óviðunandi aðstæðum á húsnæðismarkaði. Skoðun 16. apríl 2025 18:00
„Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, telur húsnæðisstefnu stjórnvalda „siðlausa“. Frekar eigi að aðstoða fólk við að eignast sínar íbúðir en að styðja ákveðin leigufélög eða húsnæðisfélög sem ekki séu öllum aðgengileg. Auk þess ýti stefna stjórnvalda undir skort á húsnæðismarkaði og hærra fasteignaverð. Innlent 16. apríl 2025 09:09
Hætta við uppbyggingu við tjörnina í Seljahverfi Fallið hefur verið frá hugmyndum um uppbyggingu um 75 til 100 íbúða við settjörnina í Seljahverfi í Breiðholti. Innlent 9. apríl 2025 06:57
Vopnin bíta ekki Vaxtaákvarðanir Seðlabanka Íslands halda ekki aftur af hækkun húsnæðisliðar í vísitölu. Hækkun vaxta dregur úr kaupum launafólks á fasteignum, sem fer í staðinn á leigumarkað þar sem þrýstingur myndast og leiguverð hækkar með tilheyrandi áhrifum á húsnæðislið verðbólgunnar. Skortur á lóðum til uppbyggingar húsnæðis viðheldur háum vöxtum. Umræðan 7. apríl 2025 09:35
Söfnuðu 140 milljónum fyrir Kvennaathvarfið Alls söfnuðust tæplega 140 milljónir fyrir Kvennaathvarfið í söfnunarþættinum Á allra vörum sem var sýndur á RÚV í gær. Markmið átaksins var að styðja við uppbyggingu nýs Kvennaathvarfs en Kvennaathvarfið er nú með í byggingu nýtt húsnæði. Innlent 6. apríl 2025 07:39
Fiskurinn í blokkunum Mikið hefur verið rætt og ritað um breytingar á veiðileyfagjöldum, og ég ætla svo sem ekki að bæta miklu við þá umræðu sem slíka. Hins vegar langar mig að fjalla um eina afleiðu þeirra sem snertir okkur öll: húsnæðismarkaðinn. Skoðun 5. apríl 2025 15:00
Sífellt erfiðara fyrir almenning að eignast þak yfir höfuðið Á síðustu 15 árum hafa aðgerðir og aðgerðarleysi yfirvalda torveldað venjulegu fólki að eignast húsnæði. Markmið yfirvalda hefur ekki verið að þrengja að möguleikum fólks til að eignast þak yfir höfuðið heldur hafa önnur markmið ráðið för án þess að huga að áhrifum þeirra á húsnæðismarkaðinn. Með því að herða útlánareglur til íbúðakaupa, takmarka lóðaúthlutanir og þyngja regluverk skipulagsmála er svo komið að sveitarfélög ráða ekki við að uppfylla skyldur sínar um að tryggja nægt framboð á húsnæði. Þessi staða hefur skapað íbúðaskort og hækkað verð fasteigna langt umfram annað verðlag, sem síðan ýtir upp vöxtum á íbúðlánum. Afleiðingin er að íbúðaskortur eykst, húsnæðisliður viðheldur hárri verðbólgu og launafólk ræður ekki við að kaupa sína fyrstu eign. Umræðan 4. apríl 2025 09:34
ÍL-sjóður sýknaður í níu dómsmálum Íbúðalánasjóður var í dag sýknaður í níu dómsmálum í Landsrétti. Öll málin höfðuðu einstaklingar gegn sjóðnum og vildu meina að uppgreiðsluþóknun sjóðsins væri ólögmæt. Viðskipti innlent 3. apríl 2025 19:50
Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Nýtt íbúðahverfi sprettur upp við Kringluna á næstu árum. Framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum segir hönnun hverfisins sækja innblástur frá gömlu Reykjavík. Innlent 28. mars 2025 21:00
Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Fyrir verkalýðshreyfinguna sem sterkasta afl breytinga og framfara í landinu hefur ríkjandi ófremdarástand í húsnæðismálum löngu náð því stigi að vera óþolandi með öllu. Skoðun 28. mars 2025 11:01
Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal Nýr starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og verkalýðsfélaganna BSRB og ASÍ á að skoða nýjar leiðir til þess að auka framboð og hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Hópurinn á að skila sínum tillögum í maí. Starfshópurinn mun skoða sérstaklega hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfársárdal auk þess sem hann á að kortleggja helstu möguleika á uppbyggingu næstu 10 til 15 árin. Innlent 28. mars 2025 09:47
Bein útsending: Borgarstjóri ræðir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri boðar til húsnæðisfundar í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan níu. Yfirskrift fundarins er Byggjum borg fyrir fólk og verður sú áhersla í erindi borgarstjóra og fyrirlesara. Innlent 28. mars 2025 08:15
Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Síðustu tíu ár hefur húsnæðiskostnaður að jafnaði valdið 58% verðbólgunnar. Þróunin hefur ýtt undir eignaójöfnuð milli kynslóða, gert Seðlabankanum erfitt fyrir að nýta stjórntæki sín með góðu móti og skapað þrýsting á vinnumarkaði, enda verður húsnæði sífellt þyngri byrði í bókhaldi heimila. Skoðun 27. mars 2025 10:01
Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári Horfur eru á 1,8 prósent hagvexti í ár og að hann verði drifinn áfram af aukinni innlendri eftirspurn, á meðan framlag utanríkisviðskipta verður neikvætt. Viðskipti innlent 25. mars 2025 09:17
Helmingi fleiri íbúðir teknar af söluskrá en á sama tíma árið 2023 Fasteignamarkaðurinn var virkari í janúar síðastliðnum en árin 2023 og 2024 en rúmlega 700 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu. Þá hefur íbúðum sem teknar eru af söluskrá fjölgað hratt í febrúar. Innlent 20. mars 2025 07:07
Má bera eiganda Gríska hússins út Leigusali húsnæðis á Laugavegi má bera út eiganda veitingastaðarins Gríska hússins en staðurinn hefur verið til húsa í umræddu húsnæði um nokkurra ára skeið. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu og hefur Landsréttur staðfest hana. Innlent 18. mars 2025 11:30
Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Viðskipti innlent