Íslenski boltinn

Þorsteinn: Kemur í ljós í lok móts hvort það var rétt að reka Kristján

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chuck spilaði sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í gær.
Chuck spilaði sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í gær. Vísir/Andri Marinó
Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, segir að enn standi til að styrkja leikmannahóp liðsins áður en lokað verður fyrir félagaskipti um mánaðarmótin.

Keflavík hefur þegar fengið þá Farid Zato og Bandaríkjamanninn Chuck í glugganum og spiluðu þeir báðir er liðið steinlá fyrir Víkingi í gær, 7-1. Chuck spilaði allan leikinn en Zato kom inn á sem varamaður í hálfleik.

„Við erum kannski ekki smeykir um stöðu okkar í deildinni en okkur líður ekki vel. Við ætluðum okkur að gera betur,“ sagði Þorsteinn í samtali við Vísi í dag. „Við erum enn að vinna í því að fá leikmenn og styrkja hópinn. Það er því ekki öll nótt úti enn.“

Hann segir að helst sé verið að skoða erlenda leikmenn en ljóst er að það þarf að bregðast við meiðslavandræðum liðsins. „Sigurbergur Elísson, Hörður Sveinsson, Guðjón Árni Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson eru allir frá. Það munar um minna.“

Kristján Guðmundsson var rekinn sem þjálfari Keflavíkur í byrjun júnímánaðar en liðið var þá bara með eitt stig. Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson tóku við og unnu ÍBV, 3-1, í sínum fyrsta leik. Síðan þá hefur Keflavík ekki unnið leik og er í neðsta sæti með fimm stig.

„Við erum allir saman í því að reyna að safna stigum og koma okkur upp töfluna. Það gæti orðið erfitt en það er alltaf von.“

„Auðvitað má ræða svona hluti eftir á hvort það hafi verið rétt ákvörðun að skipta um þjálfara. Það hefur ekki breytt neinu um stöðu okkar í deildinni. En ákvörðunin var tekin og það verður bara að skoða í mótslok hvort hún hafi verið rétt eða ekki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×