Fótbolti

Fagnaði á nærbuxunum - Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mirko Vucinic og John Arne Riise fagna umræddu marki.
Mirko Vucinic og John Arne Riise fagna umræddu marki. Nordic Photos / AFP

Mirko Vucinic fagnaði sigurmarki sínu í leik Roma og Cagliari um helgina á nokkuð sérstæðan máta.

Leikmenn gerast oft sekir um að klæða sig úr að ofan þegar þeir fagna mikilvægum mörkum en Vucinic gekk óneitanlega skrefinu lengra er hann ákvað að klæða sig úr stuttbuxunum líka.

Markið var vissulega mikilvægt en þökk sé marki Vucinic í uppbótartíma leiksins vann Roma 3-2 sigur. Francesco Totti og Simone Perrotta skoruðu hin mörk Roma en þeir Daniele Conti og Jeda fyrir Cagliari.

Hér má sjá myndband þar sem Vucinic fagnar marki sínu. Hann uppskar gult spjalt fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×