Fótbolti

Þjálfari ársins á Ítalíu orðaður við Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.

Roberto Mancini fékk í dag hinn gullna bekk í hendurnar en það eru verðlaun sem þjálfari ársins á Ítalíu fær.

Mancini stýrði Inter til Ítalíumeistaratitils þriðja árið í röð á síðasta tímabili.

Mancini er atvinnulaus sem stendur en Jose Mourinho tók í sumar við starfi hans hjá Inter. Það er þó ekki reiknað með að Mancini verði án atvinnu lengi en hann er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Real Madrid.

Talið er líklegt að Bernd Schuster verði látinn taka pokann sinn á næstunni en Real Madrid er fimm stigum á eftir erkifjendunum í Barcelona sem trjóna á toppi spænsku deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×