Sport

Grindavík fór létt með KFÍ

Einn leikur fór fram í Intersport deild karla í körfubolta í kvöld. Grindavík vann auðveldan sigur á botnliði KFÍ, 102-73 og er nú í 8. sæti með 20 stig eða 14 stigum á eftir Keflvíkingum sem trygðu sér deildarmeistaratitilinn um helgina. Þá fór einn leikur fram í 1. deild karla þar sem ÍS lá á heimavelli, 71-80 fyrir Breiðablik þar sem Jónas P Ólason var stigahæstur í sigurliðinu með 23 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×