Handbolti

Frestað vegna veðurs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir er í lykilhlutverki hjá ÍBV.
Birna Berg Haraldsdóttir er í lykilhlutverki hjá ÍBV. Vísir/Diego

Leik HK og ÍBV í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik hefur verið frestað vegna veðurs. Frá þessu greinir HSÍ, Handknattleikssamband Íslands.

Leikur kvöldsins átti að fara fram í Kórnum í Kópavogi en Eyjakonur komast ekki frá Vestmannaeyjum vegna veðurs og því hefur leiknum verið frestað.

HSÍ hefur gefið út að leikurinn fari fram annað kvöld, 6. nóvember, klukkan 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×