Viðskipti erlent

Ný uppfærsla mun gera gamla iPhone hraðari
Apple kynnti í gær margar nýjungar sem bæta á við næsta stýrikerfi fyrirtækisins, iOS 12, og sömuleiðis watchOS, tvOS og macOS.

Svona virkar Instagram í raun og veru
Instagram útskýrir algóriþmann sinn í fyrsta skipti.

Falsa dóma um rússneska veitingastaði í aðdraganda HM
Rússnesk ráðgjafaþjónusta, Bacon agency, hefur nú brugðið á það ráð að hreinlega falsa dóma fyrir veitingastaði á Trip Advisor á ensku og öðrum tungumálum

„Ég get ekkert bara ráðið konu af því að mig langar til þess“
Konur passa ekki inn, vilja forðast brasið og eiga erfitt með að leysa „flókin viðfangsefni.“

Kjúklingarækt Brasilíu í hættu
Verkfall vörubílstjóra hefur leitt til skorts og stöðvað verksmiðjur víða um landið. Verst hefur það þó komið niður á kjúklingaræktendum í Brasilíu.

Þúsundir verslana Starbucks loka í dag vegna þjálfunar í samskiptum kynþátta
Um átta þúsund verslunum kaffihúsakeðjunnar Starbucks munu loka í klukkutíma síðar í dag svo starfsmenn fyrirtækisins geti sótt námskeið í samskiptum kynþátta.

Birta upplýsingar um kostaðar auglýsingar
Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur opnað fyrir aðgang að gagnabanka sínum þar sem hægt er að sjá kaupendur kostaðra kosninga- og stjórnmálaauglýsinga.

Netflix stærra en Disney
Netflix var um tíma í gær verðmætasta fjölmiðlafyrirtæki heims og skaust fram úr Disney sem áður vermdi fyrsta sætið. Markaðsvirði fyrirtækisins hækkaði um tvö prósent á hlutabréfamörkuðum fyrri part dags en lækkaði síðan síðdegis sem gaf Disney aftur naumt forskot.

Segja Facebook stunda persónunjósnir
Mark Zuckerberg er sakaður um að hafa þróað aðgerðaáætlun fyrir Facebook sem miðaði að því að nýta sér mikið magn persónulegra upplýsinga notenda til þess að fyrirtæki hans gæti grætt milljarða og gert út af við keppinauta.

Þúsundum sagt upp hjá Deutsche Bank
Gert er ráð fyrir því að hinn þýski Deutsche Bank muni segja upp meira en 7000 starfsmönnum á næstu vikum og mánuðum.

Facebook vill nektarmyndir fyrirfram
Valdir notendur Facebook í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi og Ástralíu fá nú að taka þátt í tilraunaverkefni samfélagsmiðilsins þar sem þeim býðst að senda Facebook nektarmyndir af sjálfum sér áður en myndin er síðan er send öðrum.

Virtir þýskir hagfræðingar leggjast gegn tillögum um endurbætur á evrunni
Alls 154 þýskir hagfræðingar, margir hverjir mjög virtir, leggjast gegn tillögum Emmanuel Macron Frakklandsforseta um breytingar á myntsamstarfinu um evruna í grein sem birtist í Frankfurter Allgemeine Zeitung í dag.

Marks og Spencer loka hundrað verslunum innan fjögurra ára
Stjórn Marks og Spencers ræðst í allsherjar endurskipulagningu.

Kínverjar og Bandaríkjamenn slá viðskiptastríði sínu á frest
Ríkin ætla að falla frá gagnkvæmum tollum eftir að Kínverjar samþykktu að auka innflutning á bandarískum vörum og þjónustu.

Páfagarður vill hertar reglur um „siðlaust“ fjármálakerfi
Ákveðnum tegundum afleiða er lýst sem tifandi tímasprengjum í yfirlýsingu Páfagarðs.

Eigandi Grímsstaða á Fjöllum orðinn ríkasti maður Bretlandseyja
Jim Ratcliffe, sem keypti Grímsstaði á Fjöllum auk nokkurra jarða í Vopnafirði árið 2016, er orðinn ríkasti maður Bretlandseyja samkvæmt úttekt sem Sunday Times birti um helgina og fjallað er um á vef Guardian.

Bein útsending: SpaceX sendir Bangabandhu út í geim
SpaceX mun reyna að skjóta Bangabandhu gervitungli á loft frá Nasa Kennedy Space Center í Flórída í kvöld.

Google kynnir viðbót sem mun geta hringt símtöl fyrir þig
Viðbótinni er ætlað að auðvelda notendum að nálgast upplýsingar og þjónustu, en viðbótin var kynnt á Google I/O ráðstefnunni í gær.

Bretar ætla að þurrka út blautþurrkur
Blautþurrkur brotna í flestum tilfellum ekki niður í náttúrunni og eru stærsti skaðvaldur fráveitukerfa á Bretlandi.

Kolefnisfótspor ferðamennsku fjórfalt stærra en talið var
Þegar losun gróðurhúsalofttegunda sem tengist neyslu og ferðalögum ferðamanna er talin með er kolefnisfótspor þeirra mun stærra en áður hefur verið áætlað.

Færeyingar þurfa að bíða með að syngja olíulagið
Átján ára olíuleitarsögu Færeyja virðist lokið, að minnsta kosti um sinn, eftir að eina félagið, sem sótti um í síðasta útboði Færeyinga, dró umsókn sína til baka.

Þúsund hagfræðingar vara Trump við að endurtaka fyrri mistök
Rúmlega eitt þúsund hagfræðingar, þar á meðal 14 nóbelsverðlaunahafar, hafa sett nafn sitt við viðvörun til Bandaríkjaforsetans Donald Trump.

Twitter hvetur notendur til að skipta um lykilorð
Örbloggmiðillinn Twitter hefur hvatt alla 330 milljón notendur sína til að skipta um lykilorð.

Tesla tók dýfu eftir ókurteisi Elons Musk
Virði hlutabréfa í Tesla minnkaði um sjö prósent í gær eftir að Elon Musk, eigandi og forstjóri, tók þá óvæntu ákvörðun að neita að svara spurningum fjármálagreinenda á símafundi um fjármál fyrirtækisins.

Hægt hefur á hagvexti á evrusvæðinu
Hagvöxtur jókst um 0,4 prósent á evrusvæðinu fyrstu þremur mánuðum ársins. Hægt hefur á hagvexti í ríkjum Evrópska myntbandalagsins eftir kröftugan vöxt á árinu 2017.

Ætla að keppa við YouTube
Disney-samsteypan tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi setja í loftið nýja og gjaldfrjálsa myndbandaveitu í sumar.

Spá minnkandi iPhone-sölu
iPhone X er einkar laglegur sími, en Apple virðist vera í vandræðum með að koma honum í hendur neytenda.

Sögufrægur gítarframleiðandi í þrot
Lánveitendur hins sögufræga bandaríska gítarframleiðanda Gibson hafa tekið yfir fyrirtækið eftir að stjórnendur þess óskuðu eftir því að fyrirtækið yrði tekið til gjalþrotameðferðar.

Norsk laxeldisfyrirtæki féllu í verði vegna áforma um auðlindagjöld
Hlutabréfaverð í norskum laxeldisfyrirtækjum lækkaði í Kauphöllinni í Osló eftir að norsk stjórnvöld upplýstu um áform um að setja sérstök auðindagjöld á norsk laxeldisfyrirtæki.

T-Mobile og Sprint í eina sæng
Bandaríski fjarskiptarisinn T-Mobile hefur samþykkt að festa kaup á einum helsta keppinauti sínum, fjarskiptafyrirtækinu Sprint, fyrir um 26 milljarða bandaríkjadala.