Bandaríkin

Samkomutakmarkanir ekki leitt til fleiri fæðinga á Vesturlöndum
Nýlegar rannsóknir og bráðabirgðatölfræði í Bandaríkjunum og Evrópu leiða í ljós að ekki hefur orðið sprenging í fæðingum í upphafi þessa árs eins og einhverjir bjuggust ef til vill við þegar samkomutakmarkanir voru settar á víða um heim vegna kórónuveirufaraldursins; fólk hefði lítið annað að gera en að fjölga sér.

Rannsaka aðild starfsmannastjóra Trump að þrýstingsherferð í Georgíu
Athafnir Marks Meadow, fyrrverandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, í þrýstingsherferð Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, til að breyta kosningaúrslitum í Georgíu eru líklegar til að vekja athygli umdæmissaksóknara sem rannsakar hvort að Trump hafi brotið lög með afskiptum sínum af kosningunum.

Fyrsti fundur Biden-liða og Kínverja fór ekki vel af stað
Fyrsti fundur háttsettra embættismanna Bandaríkjanna og Kína fór harkalega af stað í Alaska í gærkvöldi. Báðar hliðar fóru hörðum orðum um hina fyrir framan myndavélar á viðburði sem við hefðbundnar aðstæður tekur einungis nokkrar mínútur en tók nú tæpa klukkustund.

Stígur fram og sakar Armie Hammer um nauðgun
24 ára gömul kona, sem gengur undir nafninu Effie, hefur stigið fram og sakað leikarann Armie Hammer um andlegt og kynferðislegt ofbeldi í fjögurra ára sambandi þeirra. Samband þeirra stóð yfir með hléum á sama tíma og hann var giftur fyrrverandi eiginkonu sinni Elizabeth Chambers.

Bein útsending: Síðasta prófið fyrir fyrsta skotið til tunglsins
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og Boeing munu í kvöld kveikja á fjórum hreyflum fyrstu eldflaugarinnar sem skjóta á á braut um tunglið seinna á árinu.

Covid-kreppa Trump
Á meðan margir milljarðamæringar hafa hagnast gríðarlega síðustu misseri hefur öðrum ekki farnast jafn vel í heimsfaraldrinum sem nú gengur yfir.

Ætla ekki að tala við Bandaríkin án ívilnana
Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast ekki ætla að ræða við Bandaríkjamenn um mögulega afvopnun, fyrr en Bandaríkin hafa látið af „fjandsamlegri“ stefnu sinni gagnvart einræðisríkinu. Meðlimir ríkisstjórnar Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hafa reynt að ná sambandi við kollega sína í Norður-Kóreu frá því í febrúar en án árangurs.

Keypti skál á garðsölu fyrir 35 dali en seldi hana fyrir 722 þúsund dali á uppboði
Postulínsskál sem áhugamaður um fornminjar keypti fyrir 35 dali í garðsölu í New Haven í Connecticut í Bandaríkjunum í fyrra hefur verið seld á uppboði fyrir 722 þúsund dali. Það samsvarar rúmlega 90 milljónum króna.

Vanessa Bryant opinberaði nöfn þeirra sem mynduðu Kobe á slysstaðnum
Vanessa Bryant birti í nótt nöfn þeirra sem tóku myndir af líkamsleifum Kobe Bryant og annarra á slysstaðnum þar sem NBA goðsögnin fórst í þyrluslysi ásamt dóttur sinni og sjö öðrum fyrir rúmu ári síðan.

Ákærður fyrir átta morð eftir „mjög slæman dag“
Maður sem skaut átta til bana, þar af sex konur af asískum uppruna, í árásum á þrjár mismunandi nuddstofum í Atlanta í Bandaríkjunum í vikunni hefur verið ákærður fyrir átta morð. Hinn 21 árs gamli árásarmaður segist ekki vera rasisti.

Kveðst hafa sannanir fyrir heimilisofbeldi af hálfu Pitts
Bandaríska leikkonan Angelina Jolie segist hafa sannanir fyrir því að hún hafi þurft að þola heimilisofbeldi af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns, Brads Bitt. Þetta kemur fram í skjölum sem Jolie á að hafa lagt fyrir dómara, en þau Jolie og Pitt deila enn um framfærslu og meðlags vegna barna sinna sex.

Rússar kalla sendiherra sinn heim vegna ummæla Biden um Pútín
Stjórnvöld í Kreml hafa kalla rússneska sendiherrann í Bandaríkjunum heim til skrafs og ráðagerða vegna ummæla Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, um að Vladímír Pútín, rússneski starfsbróðir hans, sé „morðingi“ sem muni súpa seyðið af því að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar vestanhafs í haust.

Öflugustu sprengjuþotur Bandaríkjahers æfðu undan ströndum Íslands í fyrrinótt
Tvær B-2 Spirit-herþotur og tvær B-1B Lancers-herþotur voru látnar hittast undan ströndum Íslands í fyrrinótt í æfingaflugi, sem Bandaríkjaher segir að hafi verið til að undirstrika þá miklu áherslu sem flugherinn leggi á norðurslóðir. Önnur tegundin er hljóðfrá, hin torséð og getur borið kjarnorkuvopn, og eru þær taldar skæðustu sprengjuþotur NATO-herja.

James Levine látinn
James Levine, fyrrverandi tónlistarstjóri Metropolitan-óperunnar í New York, er látinn 77 ára að aldri. Hann lést þann 9. mars síðastliðinn en New York Times greinir frá.

Ráðherrar á flakki um Asíu gagnrýna Kínverja harðlega
Yfirvöld í Bandaríkjunum opinberuðu í gær viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir gegn 24 embættismönnum í Kína og Hong Kong vegna andlýðræðislegra aðgerða Kínverja í Hong Kong.

Tveir látnir eftir stærðarinnar flugeldasprengingu á heimili
Tveir menn eru látnir eftir stórar flugeldasprengingar á heimili í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær. Þrír særðust lítillega og einn hundur drapst í sprengingunni sem skóku hverfi í borginni Ontario, nærri Los Angeles.

Kveikja á hreyflum nýrrar eldflaugar annað kvöld
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) stefnir á að gera enn eina tilraunina með hreyfla eldflaugarinnar Space Launch System sem hönnuð hefur verið til að senda menn til tunglsins og til Mars. Þróunarvinnan hefur þó dregist verulega og kostað mun meira en til stóð.

McConnell varar við „sviðinni jörð“ í öldungadeildinni
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, varaði Demókrata í gær við því að Repúblikanar myndu skilja eftir sig sviðna jörð ef reglan um aukin meirihluta verði felld niður. Joe Biden, forseti, segist styðja að breyta reglunni til fyrra horfs.

Rússar reyndu að hafa áhrif á bandamenn Trump
Vladímír Pútín Rússlandsforseti skipaði persónulega fyrir um tilraunir rússnesku leyniþjónustunnar til þess að koma höggi á Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðasta haust. Leyniþjónustan er meðal annars sögð hafa háð leynilega herferð til þess að hafa áhrif á nána bandamenn Donalds Trump, þáverandi forseta.

Hvetur stuðningsmenn til að bólusetja sig
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hvetur stuðningsmenn sína til þess að fá bólusetningu gegn kórónuveirunni.

Missti sjónina tímabundið eftir of stóran skammt 2018
Bandaríska söngkonan Demi Lovato missti sjónina tímabundið eftir að hafa tekið inn of stóran skammt fíkniefna árið 2018. Nærri tveir mánuðir liðu þar til að sjónin varð það góð á ný þannig að hún gat lesið bók. Hún glímir þó við vandamál með sjónina enn þann dag í dag.

Átta skotnir til bana í Atlanta í árás sem beindist gegn asísku fólki
Átta voru skotin til bana í Atlanta í Georgíuríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Skotárásirnar voru gerðar á þremur stöðum og er sami einstaklingur grunaður um þær allar.

Systir Kim segir Biden að valda ekki vandræðum
Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, sendi Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans tóninn í morgun. Hún sagði Biden að forðast það að valda usla, ef hann vildi sofa vel næstu fjögur árin.

Fyrsti ráðherra Bandaríkjanna af frumbyggjaættum
Bandarískir öldungadeildarþingmenn staðfestu í gærkvöldi tilnefningu þingkonunnar Deb Haaland í embætti innanríkisráðherra. Þar með varð hún fyrsti fumbygginn sem verður ráðherra í sögu Bandaríkjanna.

Bond-leikarinn Yaphet Kotto er látinn
Bandaríski leikarinn Yaphet Kotto, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í Alien og Bond-myndinni Live and Let Die, er látinn. Hann varð 81 árs gamall.

Tinder ætlar að veita bakgrunnsupplýsingar um notendur
Notendur stefnumótasnjallforritsins Tinder í Bandaríkjunum geta brátt nálgast opinberar upplýsingar um sakaferil og ofbeldi annarra notenda sem þeir gætu farið á stefnumót með. Til stendur að þjónustan verði tekin upp á fleiri stefnumótaforritum fyrirtækisins í fyllingu tímans.

Ólafur Darri við hlið Jamie Dornan í nýjum hasarþáttum BBC og HBO Max
Ólafur Darri Ólafsson mun fara með eitt aðalhlutverka í spennuþáttunum The Tourist sem verða meðal annars sýndir á BBC og streymisveitunni HBO Max.

Tveir handteknir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn sem dó
Tveir menn hafa verið handteknir og ákærðir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn Brian D. Sicknick þegar árásin á þinghús Bandaríkjanna stóð yfir þann 6. janúar. Sicknick dó á sjúkrahúsi degi síðar.

Það var enginn með henni í liði
Heimildarmyndin Framing Britney Spears, sem kom út í síðasta mánuði, hefur beint kastljósinu að róstusömu, og oft og tíðum harmþrungnu, lífshlaupi söngkonunnar Britney Spears, sem hefur verið undir forræði föður síns síðan árið 2008. Mánuðina á undan hafði andlegri heilsu Britney hrakað verulega – nánast í beinni útsendingu í fjölmiðlum sem fylgdu henni hvert fótmál.

Brotist inn til Hinriks og Markle í tvígang
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið kærður fyrir að brjótast inn í setur Hinriks Bretaprins og Meghan Markle, eiginkonu hans, í Kaliforníu yfir jólin.